Vinstri græn lögðu fram fjórðung allra fyrirspurna til atvinnuvegaráðuneytisins

Þingmenn Pírata hafa beint 47 fyr­ir­spurnum til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins á þessu kjör­tíma­bili. Þingmenn Mið­flokks­ins hafa lagt fram 46. Þingmenn Vinstri grænna bera ábyrgð á flestum fyr­ir­spurnum til ráðu­neyt­is­ins síð­ustu fimm ár.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram fyrirspurn um fyrirspurnir til allra ráðuneyta.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram fyr­ir­spurn um fyr­ir­spurnir til allra ráðu­neyta. Mynd: Bára Huld Beck

Frá byrjun árs 2015 og fram til dags­ins í dag hafa þing­menn beint alls 358 fyr­ir­spurnum til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, sem fer meðal ann­ars með mál­efni allra helstu atvinnu­vega íslensks sam­fé­lags. Fjöldi þeirra hefur auk­ist ár frá ári, en árið 2015 voru fyr­ir­spurn­irnar 36. Í fyrra voru þær hins vegar 94 og fjöldi þeirra því 160 pró­sent meiri.

Flestar fyr­ir­spurn­irnar komu frá þing­mönnum Vinstri grænna, eða alls 25 pró­sent heild­ar­innar. Píratar voru sá þing­flokkur sem spurði næst mest, en 18 pró­sent fyr­ir­spurn­anna voru frá þeim. Björn Leví Gunn­ars­son var með flestar fyr­ir­spurnir þing­manna flokks­ins, en ein af hverjum tíu fyr­ir­spurnum sem lagðar hafa verið fram á tíma­bil­inu komu frá honum.

Mið­flokk­ur­inn, sem hefur ein­ungis setið á þingi frá því síðla árs 2017, ber ábyrgð á 13 pró­sent af öllum fram­lögðum fyr­ir­spurnum. Heild­ar­fjöldi fyr­ir­spurna sem þing­menn hans hafa lagt fram til ráðu­neyt­is­ins á þessu kjör­tíma­bili er 46. Það er einni fyr­ir­spurn færri en þing­menn Pírata hafa lagt fram á sama tíma.

Þetta kemur fram í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um kostnað atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins við skrif­leg svör við fyr­ir­spurnum. Í svar­inu er ekki til­greint hver kostn­að­ur­inn við að svara fyr­ir­spurnum sé. Ekki sé haldið sér­stak­lega utan um um tíma­fjölda starfs­manna í tengslum við svör við fyr­ir­spurnum þing­manna og því ekki hægt að til­greina nákvæman kostnað vegna þessa „enda er litið svo á að þessi verk­efni séu hluti af þeim verk­efnum sem ráðu­neyt­inu beri að sinna.“

Sam­fylk­ingin bar ábyrgð á tíu pró­sent allra fyr­ir­spurna sem sendar voru til ráðu­neyt­is­ins frá 2015, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokkur settu fram níu pró­sent þeirra hvor, Viðreisn sjö pró­sent og Flokkur flokks­ins sex pró­sent. Björt Framtíð, sem náði ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ingum, lagði fram eitt pró­sent fyr­ir­spurna á tíma­bil­inu á meðan að flokk­ur­inn átti full­trúa á Alþingi.

Beint að Pírötum sérstaklega

Svarið er til­komið vegna fyr­ir­spurnar frá Brynjari Níels­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Brynjar vildi vita hversu margir starfs­menn kæmu að því að und­ir­búa svör við fyr­ir­spurnum þing­manna og hver áætl­aður heild­ar­fjöldi vinnu­stunda við að væri síð­ast­liðin fimm ár. Hann vildi líka fá sér­tæk­ari svör varð­andi heild­ar­kostnað ráðu­neyta við skrif­leg svör við fyr­ir­spurnum frá þing­flokki Pírata á yfir­stand­andi lög­gjaf­ar­þingi og hversu margar vinnu­stundir starfs­manna hafa farið í að svara þeim. Þá óskaði Brynjar eftir að fá upp­lýs­ingar um hvað fyr­ir­spurnir til skrif­legs svars frá hverjum þing­manni í þing­flokki Pírata væru hátt hlut­fall slíkra fyr­ir­spurna til ráð­herra.

Gengið hefur verið út frá því að fyr­ir­spurn­inni sé sér­stak­lega beint að Birni Leví, sem hefur lagt fram flestar fyr­ir­spurnir allra þing­manna á und­an­förnum þingum. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, sagði í kjöl­far fram­lagn­ingar henni, í stöðu­upp­færslu á Facebook, eft­ir­far­andi: „Brynjar Níelsson sem lagt hefur fram heilt eitt frum­varp og eina fyr­ir­spurn að eigin frum­kvæði, bjó til 10 fyr­ir­spurnir til þess að kvarta yfir því hvernig Björn Leví Gunn­ars­son vinnur vinn­una sína. Latasti þing­mað­ur­inn kvartar yfir vinnu­semi kollega síns. You can´t make this shit up.“

Brynjar tjáði sig um við­brögð Pírata við fyr­ir­spurn­inni skömmu síðar á sama vett­vangi og skrif­aði: „Nú ráfa vinir mínir úr gagns­lausa flokknum eins og haus­lausar hænur um allt netið til að hefna sín á kall­inum, sem vog­aði sér að spyrja hvað gagns­lausar fyr­ir­spurnir þeirra kost­uðu skatt­greið­endur. Helst er ég sak­aður um leti og hafa verið í tölv­unni í þingsalnum. Ef það er leti að trufla ekki vinn­andi fólk með þýð­ing­ar­lausum fyr­ir­spurnum játa ég sök. Sjálfum finnst mér það vera merki um leti að heimta að aðrir afli upp­lýs­inga sem hægt er að sækja sjálfur að mestu. En að fara í tölv­una endrum og eins undir óskilj­an­legum og drep­leið­in­legum ræðum er að lækn­is­ráði til að draga úr líkum á að maður reyni að hengja sig í gard­ín­unni í beinni útsend­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár