Aukin hernaðarumsvif Rússa valda ugg og ótta

Stóraukið hernaðar­brölt Rússa vekur ugg í brjósti margra nágranna þeirra. Ekki þarf að fjölyrða um ástandið í Úkraínu og þá skálmöld sem þar ríkir og margir telja Rússa bera að miklu leyti ábyrgð á en það er þó ekki allt og sumt. Norður­landabúar, íbúar Eystrasalts­landanna, Bretar og fleiri hafa ekki síður áhyggjur af rússneska flug­hernum sem að undan­förnu hefur aukið umsvif sín til mikilla muna. Rússneskar herflugvélar eru æ oftar á ferðinni á svæðum þar sem flug­umferð er mikil, einkum yfir Eystrasalti.

Tvö alvarleg tilvik á síðasta ári


Á síð­asta ári skall í tvígang hurð nærri hælum. Þann 3. mars mun­aði aðeins hárs­breidd að far­þega­þota frá SAS, sem var nýfarin í loftið frá Kastrup, og rúss­nesk her­flug­vél rækjust á. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar segir að ein­ungis snar­ræði flug­stjór­anna hjá SAS ásamt góðu skyggni hafi forðað stór­slysi. Aðeins 90 metrar voru milli vél­anna og í þessu sam­hengi er það minna en hárs­breidd!

Alls 132 farþegar, auk áhafnar, voru um borð í farþega­vélinni sem var á leið til Rómar. Vélarnar voru skammt fyrir sunnan Malmö þegar þetta gerðist. Rússnesku flug­mennirnir höfðu slökkt á ratsjár­svara vélarinnar (transponder) en hann sendir frá sér upplýsingar um stefnu vélarinnar, flughæð og hraða. Rússneski sendi­herrann í Kaupmanna­höfn var kallaður „á teppið“ hjá danska utan­ríkis­ráðherranum sem sagðist hafa sett í brýnnar og talað með þungum áherslum.

Rússar héldu því fram að engin hætta hefði verið á ferðum, tugir kíló­metra hefðu verið á milli vél­anna tveggja.

Rússar svöruðu því til að þeirra vél hefði verið á alþjóð­legu flugsvæði og varðandi ratsjár­sendinn væri það að segja að í þeim efnum færu þeir eins að og eftirlits-og njósna­vélar NATO þegar þær væru á ferðinni. Hitt atvikið átti sér stað yfir Eystrasalti 12. desember yfir Eystrasalti. Fimmtíu sæta farþegavél Cimber flug­félagsins, á leið frá Kaupmanna­höfn til Póllands, fékk þá boð frá flug­umferðar­stjórn að breyta hæð og flug­stefnu til að forðast hugsanlegan árekstur við rússneska herflugvél, sem ekki var með kveikt á ratsjársvaranum. Í rann­sóknar­skýrslu vegna þess atviks segir að fjar­lægðin milli vélanna hafi verið allt of lítil, miðað við þær reglur sem fylgja beri í fluginu. Rússar héldu því fram að engin hætta hefði verið á ferðum, tugir kílómetra hefðu verið á milli vélanna tveggja.

Áhyggjur og aukinn viðbúnaður


Und­an­farið hefur mikið verið rætt og ritað um þessi mál í dönskum fjöl­miðlum. Dönsku utan­ríkis-og varn­ar­mála­ráð­herr­arnir (og margir ráð­herrar ann­arra Evr­ópu­landa) hafa lýst yfir miklum áhyggjum vegna síauk­inna ferða rúss­neskra her­flug­véla, einkum yfir Eystralsalti en einnig með­fram ströndum Noregs og víðar.

Á þessu svæði er mikil flug­umferð og víða þröngt setinn bekkurinn í loftinu ef svo má að orði komast. Yfir­stjórn NATO fylgist líka grannt með og að undan­förnu hefur margoft verið greint frá því í fréttum að banda­lagið sé að efla viðbúnað sinn með ýmsu móti. Svíar, Norðmenn og Danir hafa gert marg­háttaðar ráðstafanir til að fylgjast betur með athöfnum Rússa. Danski flug­herinn herinn hefur nýlega tekið í notkun nýjan og endur­bættan flugradar í aðal­stöðvunum í Skydstrup á Suður-Jótlandi. Með þessum nýja radar eykst allt eftirlit á mjög stóru svæði, ekki síst á Norðurslóðum en þangað renna Rússar sem kunnugt er hýru auga.

Sænski herinn leitaði að kafbát í skerja­garðinum fyrir utan Stokkhólm í október, sem talið var að hefði verið rússneskur. Kafbáturinn fannst hins vegar aldrei.

Hvað vakir fyrir Rússum?


Í við­tali í danska sjón­varp­inu fyrir nokkrum dögum, þar sem rætt var um þessi mál sagði danskur þing­maður að stundum væri sagt að vegir ást­ar­innar væru órann­sak­an­legir. Það væri sjálf­sagt satt og rétt en þetta ætti ekki síður við um Rússa, ekki síst Pútín for­seta. Pútín hefur reyndar margoft lýst yfir að hann vilji hefja Rússland til vegs og virð­ingar á ný; úr öskustónni eins og hann hefur gjarna orðað það. Útgjöld til her­mála hafa verið stór­aukin, Pútín leggur mikla áherslu á Norð­ur­slóðir og á fundi rúss­neska þjóðar­ör­ygg­is­ráðs­ins í apríl á síð­asta ári kvaðst hann vilja koma á fót sér­stakri stofnun til að sam­hæfa alla þætti og stefnu í mál­efnum rík­is­ins varð­andi þetta mik­il­væga svæði eins og hann komst að orði, Norð­ur­slóða­stofnun.

Aukin umsvif Rússa áhyggjuefni


Í við­tali við breska blaðið The Tel­egraph í fyrra­dag lýsti Anders Fogh Rasmus­sen fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri NATO miklum áhyggjum vegna Pútíns. Hann kvaðst ótt­ast að Pútín blandi sér í inn­an­rík­is­mál Eystra­salts­ríkj­anna með sama hætti og á Krím­skaga og í Úkraínu. Það er að segja; egna og styðja Rússa í Eist­landi, Lett­landi og Litháen til and­stöðu við stjórn­völd. “Pútín dreymir um gamla Sovét” sagði Anders Fogh. Og ekki nóg með það „með því að Rússar beint og óbeint blandi sér í mál­efni þess­ara fyrrum Sov­étlýð­velda myndi reyna á styrk og sam­stöðu NATO,“ sagði Anders Fogh og bætti við „Pútín vill nefni­lega gjarna láta reyna á hina svo­nefndu 5. grein NATO sátt­mál­ans, einn fyrir alla, allir fyrir einn. Með öðrum orðum, hversu langt hann getur gengið.“

Sænski herinn leitaði að kafbát í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm í október, sem talið var að hefði verið rússneskur. Kafbáturinn fannst hins vegar aldrei.
Sænski her­inn leit­aði að kaf­bát í skerja­garð­inum fyrir utan Stokk­hólm í októ­ber, sem talið var að hefði verið rúss­neskur. Kaf­bát­ur­inn fannst hins vegar aldrei.

Í áður­nefndu viðtali segir Anders Fogh það mikið áhyggju­efni að á sama tíma og Rússar stórauki fjár­veitinga til hermála skeri NATO þjóðirnar meira og meira niður. Það sé umhugsunar­vert og framkvæmda­stjórinn fyrr­verandi klikkti út með að segja „það gengur ekki að loka augunum og vona það besta, Evrópa hefur áður farið flatt á því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár