Ríkisstjórnin getur ekki svarað því hvað felst í loforði sem sett er fram í stjórnarsáttmála

Í stjórnar­sáttmálanum segir að skatt­matsreglur verði endur­skoðaðar til að koma í „veg fyrir óeðlilega og óheilbrigða hvata til stofnunar einka­hlutafélaga“. Hvorki forsætis- né fjármála- og efnahags­ráðuneytið geta svarað því hvað þetta þýðir.

Stjórnarsáttmálinn var kynntur 30. nóvember síðastliðinn.
Stjórn­ar­sátt­mál­inn var kynntur 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar frá 30. nóvember segir að skatt­matsreglur verði endur­skoðaðar og að komið verði í veg fyrir „óeðlilega og óheilbrigða hvata til stofnunar einka­hlutafélaga“. Þar segir að enn fremur verði regluverk í kringum tekju­tilflutning „tekið til endur­skoðunar til að tryggja að þau sem hafa eingöngu fjármagns­tekjur reikni sér endur­gjald og greiði þannig útsvar.“

Engar frekari skýringar eru gefnar í sátt­málanum á því hvernig endurmat á skatt­matsreglum eigi að fara fram, hvaða óeðlilegu og óheil­brigðu hvata eigi að koma í veg fyrir né hvernig tryggja eigi að þeir sem hafi eingöngu fjármagns­tekjur verði látnir greiða útsvar og þeirra mála sem er að finna á þing­málaskrá ríkis­stjórnarinnar bera það með sér að fjalla um ofan­greind atriði.

Tók 28 daga að fá svar

Sem stendur er ekki starfandi sérstakur upplýsinga­fulltrúi ríkis­stjórnarinnar og því sendi Kjarninn fyrir­spurn þar sem óskað var frekari skýringar á umræddri endur­skoðun, og því hvaða óeðlilegu og óheil­brigðu hvata þyrfti að koma í veg fyrir, eða hvernig eigi að láta þá sem hafa eingöngu fjármagns­tekjur greiða útsvar, til upplýsinga­fulltrúa forsætis­ráðuneytisins þann 3. janúar síðastliðinn. Svar barst degi síðar, þar sem staðfest var að fyrir­spurnin hafði fengið málanúmer, og í því stóð: „Umrætt verkefni í stjórnar­sáttmála hefur verið skilgreint hjá fjármála- og efnahags­ráðuneytinu. Erindi þitt er því hér með framsent þangað.“

Samkvæmt upplýsinga­lögum er stjórn­valdi skylt að taka ákvörðun um hvort orðið sé við beiðni um upplýsingar svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skal skýra frá ástæðu tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið svaraði Kjarnanum nákvæmlega viku eftir að fyrir­spurnin var send frá forsætis­ráðuneytinu til þess, þann 11. janúar 2022. Í svarinu sagði einfald­lega: „Ekki tekst að ljúka svari til þín fyrir tilskilinn frest en ráðuneytið stefnir að því að hafa lokið við að svara þér fyrir lok næstu viku.“

Þegar næstu viku lauk hafði ekkert svar borist og Kjarninn sendi ítrekun á ráðuneytið 25. og 28. janúar. Efnislegt svar barst loks mánudaginn 31. janúar, 28 dögum eftir að upprunaleg fyrir­spurn var send á forsætis­ráðuneytið.

Hluta fyrirspurnar vísað aftur til ráðuneytis sem gat ekki svarað henni

Í svari fjármála- og efnahags­ráðuneytisins sagði að unnið væri að því að skipta verkefnum stjórnar­sáttmálans niður á ráðuneytin. „Ekki er komin endanleg mynd á útfærslu verkefna, en gera má ráð fyrir að verkefnið sem þú nefnir komi í hlut fjármála- og efnahags­ráðuneytisins og e.t.v. í samvinnu við önnur ráðuneyti. Ekki liggur fyrir mat á tekjum sem kunna að leiða af einstökum breytingum, enda skammt um liðið frá því að sátt­málinn var birtur.“

Þar sagði einnig að ráðuneytið gæti ekki „svarað því hvaða hvata ríkis­stjórnin telur „óeðlilega og óheilbrigða“, og þarf upplýsinga­fulltrúa ríkis­stjórnarinnar eða eftir atvikum FOR [forsætis­ráðuneytið] að meðhöndla slíka fyrir­spurn.“

Vert er að ítreka að fyrir­spurn Kjarnans var upphaf­lega send á forsætis­ráðuneytið sem beindi henni til fjármála- og efnahags­ráðuneytisins, sem segir nú að forsætis­ráðuneytið eigi að svara fyrir­spurninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár