Þessi sápukúla mun springa

Nýverið leik­stýrði Dagur Kári Pétursson dönsku kvik­myndinni Hygge! – endurgerð á ítölsku kvik­myndinni Perfetti Sconoscuti (Perfect Strangers). Hún hefur verið endurgerð næstum þrjátíu sinnum í hinum ýmsu löndum, þar á meðal á Íslandi sem kvik­myndin Villibráð eftir Elsu Maríu Jakobs­dóttur. Hún er nú sýnd í Bíó Paradís og Dagur féllst á viðtal.

Dagur Kári skrifaði handritið að Hygge! á sex vikum og ferlið einkenndist af léttleika og leik – sem honum fannst hressandi.
Dagur Kári skrif­aði hand­ritið að Hygge! á sex vikum og ferlið ein­kennd­ist af létt­leika og leik – sem honum fannst hressandi. Mynd: Golli

Það er ákveðin nostalgía fólgin í því að sjá bíómynd eftir Dag Kára. Hverfa inn í lágstemmdan húmor og til tíma­bilsins þegar fyrsta myndin hans var frumsýnd og áhorfandi skynjaði óvenju sjálfs­örugga myndrænu fyrir íslenska mynd; hantering hans á sögum sínum lifir með nostalgískum fingra­förum í vitund jafnaldra.

Segja má að hann hafi sem leik­stjóri jafnt sem handrits­höfundur komið fram með nokkrum trukki. Að minnsta kosti lúrir það þannig í minni áhorfanda sem var uppnuminn eftir Nóa albínóa og horfði á tímabili á myndir hans sem komu út um tíma hver á fætur annarri. Þessar Dags-legu myndir.

Fæðing hans sem leik­stjóra var nýr dagur í íslenskri kvik­myndagerð, fæðing sem hófst með Nóa albinóa, en áður hafði hann reyndar gert tvær stuttmyndir. Áhrifanna gætti lengi vel, rétt eins og koma hans í heiminn hafði áhrif þegar pabbi hans, rithöfundurinn Pétur Gunnarsson, skrifaði um hann í ljóða­bókinni Splunkunýr dagur.

…

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár