„Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið“

Fyrr­verandi bæjar­stjóri á Ísafirði segir að hann hafi aldrei notið stuðnings Sjálfstæðis­flokksins. Eftir snjó­flóðin í síðasta mánuði hafi verið rifist á bæjar­stjórnar­fundi um „kjánalega hluti eins og hver ætti að taka á móti forsætis­ráðherra.“

Guðmundur Gunnarsson, fyrr­verandi bæjar­stjóri Ísafjarðar­bæjar, segir í viðtali við Mannlíf í dag að hann hafi orðið þess mjög fljótt áskynja eftir að hafa verið ráðinn í starfið að hann nyti ekki stuðnings Sjálfstæðis­flokksins, sem var stærri flokkurinn í meirihlutanum í sveitar­félaginu.

Ágrein­ingurinn, sem leiddi til skyndilegra starfs­loka Guðmundar í síðasta mánuði, hafi ekki snúist um ákveðin mál heldur nálgun og aðferðir. Meirihlutinn hafi litið á hann sem starfs­mann sem ætti fyrst og síðast að taka við skipunum en hann sjálfur hefði litið á vinnuna sem teymis­vinnu. Það sem sitji mest í honum frá bæjarstjóra­ferlinum sé símtal sem hann fékk frá Noregi í desember 2019 frá Daníel Jakobs­syni, formanni bæjarráðs Ísafjarðar­bæjar í starfs­leyfi og fyrr­verandi bæjar­stjóra, sem þá var á leiðinni aftur heim til Ísafjarðar. „Hann endaði símtalið á því að segja svona í fram­hjáhlaupi: „Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið.“ Ég man að mér fannst þetta furðulegt og taktlaust og skrýtið. Hver segir svona í gríni eða alvöru?“

Rifist um hver ætti að taka á móti forsætisráðherra

Í viðtalinu við Mannlíf segir Guðmundur að það hafi líka skapast sérstakur ágrein­ingur um hlutverk bæjar­stjórans og sýnileika í kjölfar snjó­flóðanna á Flateyri og í Súganda­firði um miðjan janúar. Sá ágrein­ingur varð til þess að upp úr sauð.

Guðmundur segir að meirihlutinn hafi lýst yfir óánægju með það hvernig hann hefði komið upplýsingum til þeirra og að hann hefði ekki sinnt kjörnu fulltrúunum nægilega mikið á þessum tíma. Til átaka kom á bæjar­stjórnar­fundi 17. janúar þar sem Guðmundur rauk á endanum á dyr. Hann segir við Mannlíf að honum hafi þótt fundurinn ótímabær, þar sem enn var allt í hers höndum vegna snjó­flóðanna, vegna þess að hann hefði snúist um að fara í saumana á því hvað hefði verið hægt að gera betur. „Að fá þetta yfir sig … að við gerðum ekki nóg. Ég var búinn að leggja allt sem ég átti í að vera til staðar. En það var ekki nóg. Plantan í Litlu hryllings­búðinni var enn þá svöng. Svo fór þetta að snúast um kjánalega hluti eins og hver ætti að taka á móti forsætis­ráðherra og hver ætti að fara í þyrluna og eitthvað svona bull.“

Nokkrum dögum síðar var haldinn sátta­fundur þar sem talsmenn meirihlutans lýstu yfir óánægju sinni með Guðmund og störf hans. Í kjölfarið var samið um starfslok hans og nýverið tilkynnti Guðmundur að hann myndi flytja frá Ísafirði með fjöl­skyldu sinni. Í stöðu­uppfærslu á Facebook sagði hann meðal annars: „Hér líður okkur ekki lengur vel. Atburðir síðustu vikna hafa gert það að verkum. Ekki síst þær furðu­skýringar sem grasserað hafa í kjölfar starfs­lokanna. En þetta er eins og það er. Við sjáum sæng okkar upp reidda og viljum ekki vera hluti af samfélagi þar sem fyrir­ferðamiklar stjórnmála­hreyfingar umbera fanta­brögð freka kallsins og dreifa svo rógburði til að réttlæta þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár