Tryggvi Gunnarsson endurkjörinn umboðsmaður Alþingis

Tryggvi Gunn­ars­son var end­ur­kjör­inn í emb­ætti umboðs­manns Alþingis á þing­fundi á laug­ar­dag. Tryggvi hefur gengt starf­inu frá því í nóv­em­ber 1998 en skip­ana­tími hans átti að renna út um næstu ára­mót. Hann hefur nú verið kjör­inn í starfið til 31. des­em­ber 2019.

Tryggvi var einn þeirra þriggja ein­stak­linga sem skip­uðu rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði skýrslu sinni í apríl 2010.

Mikið mætt á umboðsmanni á árinu

Umboðs­maður Alþingis hefur verið tölu­vert í sviðs­ljós­inu á þessu ári. Í jan­úar birti hann nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna rann­sóknar leka­máls­ins svo­kall­aða. Þar segir hann að ráð­herr­ann, sem þá hafði þegar sagt af sér emb­ættið, hafi gengið langt út fyrir vald­svið sitt í mál­inu. Hún hafi haft ítrekuð og mikil afskipti af rann­sókn leka­máls­ins, sem snérist um leka þáver­andi aðstoð­ar­manns hennar, Gísla Freys Val­dórs­sonar, á upp­lýs­ingum um um hæl­is­leit­endur til val­inna fjöl­miðla. Gísli Freyr hlaut átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir lek­ann í nóv­em­ber 2014.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra vegna leka­máls­ins seint á árinu 2014. Hún baðst afsök­unnar á fram­göngu sinni í mál­inu.

Í apríl birti umboðs­maður álit í til­efni af kvörtun starfs­manna Fiski­stofu til emb­ætt­is­ins vegna ákvörð­unar Sigurðar Inga Jóhans­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu til Akur­eyrar. Í áliti umboðs­manns segir að yfir­lýs­ingar og bréf Sigurðar Inga til starfs­manna Fiski­stofu vegna flutn­ings­ins hafi ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti.

Hörð gagnrýni á Seðlabankann

Í byrjun sendi umboðs­maður Alþingis svo bréf til Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis vegna athug­unar sem hann hafði unnið á síð­ustu árum vegna atriða tengdum athug­unum og rann­sóknum Seðla­banka Íslands vegna gruns um brot á reglum um gjald­eyr­is­höft. Í bréfi hans kemur m.a. fram að Seðla­banki Íslands hafði ekki skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efni við umsýslu og sölu eigna til einka­hluta­fé­lags í eigu bank­ans. Umrætt einka­hluta­fé­lag, Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ), hefur fengið til sín allar þær eignir og kröfur sem Seðla­bank­anum hefur áskotn­ast vegna hruns­ins. Um er að ræða eignir, meðal ann­ars hlutir í fyr­ir­tækjum og fast­eignir, og kröfur upp á hund­ruði millj­arða króna. ESÍ hefur á und­an­förnum árum selt margar þeirra eigna sem félag­inu áskotn­að­ist. Í bréf­inu gagn­rýnir umboðs­maður einnig fram­kvæmd gjald­eyr­is­reglna seðla­bank­ans.

Bankaráð Seðla­banka Íslands ákvað á grund­velli þeirrar nið­ur­stöður að láta gera athugun á þessum málum. Seðla­bank­inn svar­aði gagn­rýni Tryggva með grein­ar­gerð sem var birt í dag. Þar seg­ist yfir­stjórnin ekki geta séð hvernig bank­inn geti komið til móts við athuga­semdir umboðs­manns Alþingis um með­ferð gjald­eyr­is­mála og segir til­vik og athuga­semdir sem umboðs­maður gerði athuga­semdir við séu „víða óljós“. Yfir­stjórn bank­ans hafnar því einnig að hafa brotið gegn lög­mæt­is­reglu með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins ESÍ.

Ekki aukaframlag til frumkvæðisrannsókna

Kjarninn greindi frá því 10. des­em­ber að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis teldi það grund­vall­ar­at­riði að umboðs­manni Alþingis verði gert kleift að starfa fag­lega og að emb­ættið fái nægi­legt fjár­magn til að sinna lög­bundnum verk­efnum sínum með þeim hætti sem hann telur full­nægj­andi. Allir nefnd­ar­menn, sem koma úr öllum flokkum sem sæti eiga á Alþingi, skrif­uðu undir álitið. Líka þeir sem til­heyra stjórn­ar­flokk­unum tveimur. Þrátt fyrir þann ein­hug náð­ist ekki sam­staða um það í fjár­laga­nefnd að auka fram­lög til umboðs­manns um þessar 15 millj­ónir króna. Hins vegar var fallið frá 13 millj­óna króna nið­ur­skurði á fram­lagi til emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár