Seðlabankinn hafði ekki skýra lagaheimild til að flytja verkefni til ESÍ

Seðla­bankanki Íslands hafði ekki skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efni við umsýslu og sölu eigna til einka­hluta­fé­lags í eigu bank­ans. Umrætt einka­hluta­fé­lag, Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ), hefur fengið til sín allar þær eignir og kröfur sem Seðla­bank­anum hefur áskotn­ast vegna hruns­ins. Um er að ræða eignir, meðal ann­ars hlutir í fyr­ir­tækjum og fast­eignir, og kröfur upp á hund­ruði millj­arða króna. ESÍ hefur á und­an­förnum árum selt margar þeirra eigna sem félag­inu áskotn­að­ist.

Í bréfi sem umboðs­maður Alþingis sendi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í síð­ustu viku, vegna athug­unar sem hann hefur unnið á síð­ustu árum vegna atriða tengdum athug­unum og rann­sóknum Seðla­banka Íslands um ætluð brot á reglum um gjald­eyr­is­höft, er fjallað sér­stak­lega um flutn­ing verk­efna Seðla­bank­ans á við umsýslu og sölu eigna til ESÍ.

Tilefni þess­arrar athug­unar umboðs­manns voru meðal ann­ars ábend­ingar um að þeir sem komið hefðu fram fyrir hönd bank­ans og ESÍ "hefðu gert það með áþekkum hætti og um væri að ræða einka­að­ila en ekki rík­is­stofnun. "Er það afstaða umboðs­manns að skýr­ingar bank­ans um laga­heim­ild til flutn­ings verk­efn­anna hafi ekki verið full­nægj­andi. Umboðs­maður leggur áherslu á að auk þess sem full­nægj­andi laga­heim­ild þurfi að vera fyrir hendi til slíks flutn­ings opin­berra verk­efna frá rík­is­stofnun sé líka mik­il­vægt að þeir starfs­menn sem fjalli um þessi mál, við­semj­endur um þessar eignir og kröfur og almennir borg­arar séu ekki í vafa um eftir hvaða reglum, svo sem um með­ferð valds og upp­lýs­inga, hæfi og máls­með­ferð að öðru leyti, eigi að fara í þessum til­vikum."

 

"Ruslakista" troðfull af hruneignum


ESÍ hefur leikið stórt hlut­verk í upp­gjöri Seðla­banka Íslands við banka­hrunið und­an­farin ár. Inn í félagið, og dótt­ur­fé­lag þess Hildu, hefur þeim fulln­ustu­eignum og upp­gjörs­samn­ingum sem Seðla­bank­inn hefur leyst til sín verið hrúgað. Á meðal þeirra eigna sem ESÍ heldur á eru allar kröfur Seðla­bank­ans á Glitni, Kaupþing og Lands­bank­ann. Félagið er því langstærsti inn­lendri kröfu­hafi þeirra slita­búa, sem nú er stefnt að því að gera upp á næstu mán­uðum. Það er oft kallað "rusla­kista" Seðla­bank­ans í hálf­kær­ingi á meðal manna í við­skipta­líf­inu.

Í lok árs 2012 átti ESÍ bók­færðar eignir upp á 326 millj­arða króna. Stjórn­endur félags­ins hafa verið dug­legir við að selja eignir und­an­farin ár og um síð­ustu ára­mót voru eignir þess metnar á 209 millj­arða króna. Í ágúst aug­lýsti ESÍ dótt­ur­fé­lagið Hildu til sölu. Það félag á 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/kröfur upp á 2,9 millj­arða króna. Hilda á alls sex dótt­ur­fé­lög og hjá félag­inu starfa 13 manns. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og mun­aði þar lang­mestu um hreinar rekstr­ar­tekjur, sem eru sala eigna og lána á tíma­bil­inu. Auk þess námu leigu­tekjur 139 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár