Seðlabanki Íslands hafnar athugasemdum umboðsmanns Alþingis

Már Guðmundsson seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Yfir­stjórn Seðla­banka Íslands seg­ist ekki geta séð hvernig bank­inn geti komið til móts við athuga­semdir umboðs­manns Alþingis um með­ferð gjald­eyr­is­mála og segir til­vik og athuga­semdir sem umboðs­maður gerði athuga­semdir við séu „víða óljós“. Yfir­stjórn bank­ans hafnar því einnig að hafa brotið gegn lög­mæt­is­reglu með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Eigna­safns Seðla­banka Íslands (ESÍ) eftir banka­hrun, en það félag hefur fengið til sín allar þær eignir og kröfur sem Seðla­bank­anum hefur áskotn­ast vegna hruns­ins. Um er að ræða eignir, meðal ann­ars hlutir í fyr­ir­tækjum og fast­eignir, og kröfur upp á hund­ruði millj­arða króna. ESÍ hefur á und­an­förnum árum selt margar þeirra eigna sem félag­inu áskotn­að­ist.

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð sem yfir­stjórn Seðla­banka Íslands hefur tekið saman fyrir banka­ráð hans vegna bréfs sem umboðs­maður Alþingis sendi 2. októ­ber 2015 vegna athug­unar hans á með­ferð gjald­eyr­is­mála og umsýslu og með­ferð krafna og eigna sem félög í eigu bank­ans fara með.

Sér ekki hvernig bankinn getur komið til móts við umboðsmann

Grein­ar­gerð Seðla­bank­ans að hluta til um gjald­eyr­is­mál og þá gagn­rýni umboðs­manns Alþingis sem hann setti fram á með­höndlun Seðla­bank­ans í umsögn sinni. Í áliti umboðs­manns frá því í októ­ber kemur meðal ann­ars fram að hann hafi sjálfur, strax við upp­haf athug­unar hans í lok árs 2010, stað­næmst sér­stak­lega við þá leið sem farin var í lögum þegar gjald­eyr­is­höftin voru tekin upp haustið 2008. Þar var Seðla­banka Íslands fengin heim­ild til að gefa út, að fengnu sam­þykki ráð­herra, reglur um gjald­eyr­is­mál. Hinar eig­in­legu efn­is­reglur um gjald­eyr­is­höftin voru í regl­unum og brot gegn þeim gátu varðað refs­ingum. Umboðs­maður taldi vafa leika á því að þetta fyr­ir­komu­lag upp­fyllti þær kröfur sem leiða af reglum um lög­bundnar refsi­heim­ildir og skýr­leika refsi­heim­ilda.

Til við­bótar komu síðan atriði sem lutu að sam­þykki ráð­herra á regl­unum og birt­ingu þess, en eins og fram hefur komið, þá felldi Seðla­bank­inn niður 23 mál á dög­unum, þar sem sér­stakur sak­sókn­ari telur regl­urnar gall­aðar. Enginn ein­stak­lingur hefur fengið dóm fyrir brot á gjald­eyr­is­lögum, frá því fjár­magns­höft voru lög­fest í nóv­em­ber 2008, eða fyrir tæpum sjö árum.

Banka­ráðs Seðla­banka Íslands hefur sam­þykkt að láta gera athugun á fram­kvæmd gjald­eyr­is­reglna bank­ans, m.a. vegna nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis.

Í grein­ar­gerð yfir­stjórnar Seðla­banka Íslands segir að hún geti ekki séð hvernig bank­inn geti komið til móts við athuga­semdir umboðs­manns Alþingis. „Að meg­in­stefnu til lúta athuga­semdir UA að gildi reglna um gjald­eyr­is­mál sem refsi­heim­ild ásamt til­vís­unum til refsi­heim­ilda, en slíkt er ekki á for­ræði Seðla­bank­ans að meta. Þar að auki liggur fyrir afstaða ráð­herra til gildis regln­anna sem refsi­heim­ild. Líkt og UA bendir á er það fyrst og fremst hlut­verk dóm­stóla að taka afstöðu til slíkra álita­mála. Að öðru leyti eru ábend­ingar umboðs­manns almenns eðlis og lúta að laga­fram­kvæmd almennt, en ekki aðeins að lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál. Þegar efni bréfs­ins er dregið saman, hvað varðar með­ferð gjald­eyr­is­mála, verður ekki séð hvernig Seðla­bank­inn geti komið til móts við athuga­semdir hans, einkum vegna þess að til­vik eða athuga­semdir sem UA virð­ist byggja á eru víða óljós.“

Alþekkt fyrirkomulag um víða veröld

Hitt atriðið sem gagn­rýnt var í bréfi umboðs­manns var að Seðla­banki Íslands hefði ekki skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efni við umsýslu og sölu eigna til ESÍ. Um er að ræða eignir, meðal ann­ars hlutir í fyr­ir­tækjum og fast­eignir, og kröfur upp á hund­ruði millj­arða króna. ESÍ hefur á und­an­förnum árum selt margar þeirra eigna sem félag­inu áskotn­að­ist.

Tilefni þess­arrar athug­unar umboðs­manns voru meðal ann­ars ábend­ingar um að þeir sem komið hefðu fram fyrir hönd bank­ans og ESÍ „hefðu gert það með áþekkum hætti og um væri að ræða einka­að­ila en ekki rík­is­stofnun. "Er það afstaða umboðs­manns að skýr­ingar bank­ans um laga­heim­ild til flutn­ings verk­efn­anna hafi ekki verið full­nægj­andi. Umboðs­maður leggur áherslu á að auk þess sem full­nægj­andi laga­heim­ild þurfi að vera fyrir hendi til slíks flutn­ings opin­berra verk­efna frá rík­is­stofnun sé líka mik­il­vægt að þeir starfs­menn sem fjalli um þessi mál, við­semj­endur um þessar eignir og kröfur og almennir borg­arar séu ekki í vafa um eftir hvaða reglum, svo sem um með­ferð valds og upp­lýs­inga, hæfi og máls­með­ferð að öðru leyti, eigi að fara í þessum til­vikum."

Yfir­stjórn Seðla­bank­ans segir í grein­ar­gerð sinni að það sé alþekkt um víða ver­öld að sett séu upp sér­stök félög eða sjóðir um eign­ar­hald og stýr­ingu fulln­ustu­eigna í kjöl­far fjár­málakreppu. Með stofnun ESÍ hafi verið að bregð­ast við for­dæma­lausu ástandi í kjöl­far banka­hruns­ins. Þetta á bæði við um bank­ana hér á landi sem og rík­is­sjóði og seðla­banka erlendis.

Hún hafnar því að brotið hafi verið gegn lög­mæt­is­regl­unni með stofnun ESÍ. „Eingöngu var um að ræða aðskilnað innri verk­þátta Seðla­bank­ans sem ekki getur talist íþyngj­andi fyrir borg­ar­ana enda höfðu þessar ráð­staf­anir í engu áhrif á rétt­indi eða skyldur þeirra sem Seðla­bank­inn átti kröfu á vegna banka­hruns­ins né þeirra sem hafa átt eða kunna að eiga við­skipti við ESÍ. Starf­semi félags­ins felur ekki í sér hefð­bundna stjórn­sýslu, því hefur ekki verið falið að taka stjórn­valds­á­kvarð­anir heldur hefur það með höndum inn­heimtu og fulln­ustu krafna og sölu fulln­ustu­eigna sem byggir alfarið á grund­velli fulln­ustu­réttar, kröfu- og samn­inga­réttar, rétt eins og verk­efni ann­arra kröfu­hafa hinna föllnu banka.“

Með­höndlun krafn­anna og fulln­ustu­eign­anna í höndum ESÍ hafi verið og sé ekki með öðrum hætti en ef eign­irnar hefðu áfram verið skráðar í bókum Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár