Ný gullöld kaffivélarinnar og Melitta Bentz

Þegar Melitta Bentz, 35 ára húsmóðir í Dresden í Þýska­landi, stóð yfir eldhús­vaskinum á heimili sínu vorið 1908 og hreinsaði korginn úr kaffi­könnunni, fór hún að velta fyrir sér hvort ekki væri mögulegt að losna við korginn, ekki bara úr könnunni heldur líka úr kaffinu. Húsbóndinn Hugo var væntanlegur heim í kaffi og Melitta hafði skellt í eina eplaköku. Þegar húsbóndinn kom inn úr dyrunum, stóð heima að eplakakan var tilbúin og kaffið sömuleiðis.

Meðan þau hjónin sátu yfir kaffinu, og epla­kökunni, fór Melitta að segja bónda sínum frá hugmynd sem hún hefði fengið. Hugo skildi ekki alveg útkýringarnar en lýsti sig fylgjandi hverju því sem fjarlægt gæti korginn úr kaffinu. Melitta lét ekki sitja við orðin tóm, með nagla gerði hún lítið gat á botninn á lítilli blikkdós, fékk svo stórt blað úr stílabók sonar síns og kom því fyrir í dósinni. Í þessa heima­tilbúnu kaffi­trekt setti Melitta kaffi og hellti svo sjóðandi vatni í „trektina“ sem hún hafði sett bolla undir. Kaffið var nokkra stund að drjúpa niður í bollann en sér til mikillar ánægju fann frú Melitta að í kaffinu var ekki vottur af korgi. Henni var ljóst að hún hafði þarna dottið niður á aðferð við að búa til korglaust kaffi. Líklega hefur hana þó ekki órað fyrir að heilli öld síðar væri uppfinning hennar, í bókstaflegri merkingu, á allra vörum og kaffi­vélar byggðar á þessari hugmynd seldar um allan heim ásamt trektum og þar til gerðum pappírs­pokum (pappírs­filt).

Pokarnir frá Melittu. MYND: Wikipedia.

Fékk einkaleyfi á uppfinningunni


Melitta Bentz hélt áfram að þróa hug­mynd­ina sem hún hafði fengið og 8. júlí 1908 fékk hún skráð einka­leyfi á „trekt­ar­á­haldi klæddu filt­pappír“ eins og það var kallað. Mánuði síðar stofn­aði hún fyr­ir­tæki sem bar nafn hennar, Melitta. Fyr­ir­tækið var í upp­hafi smátt í sniðum og Melitta fór ekki út fyrir tún­garð­inn í leit að starfs­fólki. Hugo bóndi hennar sagði upp sinni vinnu og tveir synir þeirra hjóna hófu störf hjá fyr­ir­tæk­inu. Fyrst í stað voru kaffi­trekt­irnar ekki trekt­laga heldur lík­astar þeim nið­ur­suðu­dósum sem eru kall­aður heildósir og úr blikki. Þótt Melitta hafi kannski ekki þekkt orðið vöru­þróun hélt hún áfram að bæta gæði trekt­ar­innar, sem um 1930 var orðin trekt­laga og þar að auki komin með rifflur að innan.

Pokarnir frá Melittu. MYND: Wikipedia.
Pokarnir frá Melittu. MYND: Wikipedia.

Pappírinn varð jafnframt betri með árunum. Einka­leyfið hélt ekki að eilífu og fyrir miðja síðustu öld voru fjölmörg fyrirtæki farin að framleiða bæði trektar og poka, í ýmsum stærðum. Ennþá var vatnið hitað í katli eða potti og svo hellt yfir kaffið í trektinni. Einu tilbrigðin við þessa aðferð voru hvort bunan úr katlinum skyldi vera mjó, hvort best væri að bleyta fyrst aðeins í kaffinu og hvort vatnið ætti að bullsjóða eða vera aðeins undir suðumarki. Þessi atriði öll, eða hvert um sig, voru og eru jafnvel enn iðulega deiluefni. Ekki hlupu allir upp til handa og fóta yfir þessum nýmóðins kaffi­trektum en héldu áfram að hella uppá með sömu aðferð og lengi hafði tíðkast. Taupoki (gamlir nærbolir sagðir bestir) og blikk­kanna voru þar í aðal­hlutverki.

Rafmagnið kemur í kaffikönnurnar


Á árunum eftir síð­ari heims­styrj­öld komu fram fjöl­margar nýj­ungar til þess ætl­aðar að gera lífið auð­veld­ara, þar á meðal í eld­hús­inu. Ein þess­ara nýj­unga var kaffi­vélin sem svo er nefnd. Það var þýskt fyr­ir­tæki, Wigoman sem árið 1954 setti á mark­að­inn tæki sem byggði á upp­finn­ingu Melittu Bentz, en bætti þó ýmsu við. Trektin var á sínum stað og pok­inn líka en hins vegar var það raf­magns elem­ent sem hit­aði vatnið og leiddi það í eins konar leiðslu yfir trekt­ina og svo niður í gegnum kaffið og í könnu sem fylgdi kaffi­vél­inni. Þetta voru tíma­mót í kaffi­gerð.

Frú Melitta Bentz var þá ekki lengur á lífi, hún lést í lok júní 1950 en hafði skráð sig á spjöld sögunnar eins og það er kallað. Melitta fyrir­tækið er hinsvegar enn til og fram­leiðir kaffi­vélar, rafmagns­katla, trektir og trekta­poka. Starfsemin fer fram víða um heim og starfs­menn í dag eru um fjögur þúsund.

Fram­sóknar- og vinstri­menn sagðir drekka Braga kaffi, í gulum pokum, úr kaup­fé­lag­inu en Sjálf­stæð­is­menn Rio kaffi frá Kaaber í blá- og hvítrönd­óttum pokum.


Kaffivélar verða almenningseign


Á næstu árum komu tugir teg­unda slíkra kaffi­véla á mark­að­inn, þar á meðal frá Melitta. Vélar þessar voru hver annarri líkar, grund­vall­ar­tæknin ætíð sú sama en útlitið örlítið mis­mun­andi. Ekki verður tölu komið á allar þær teg­undir kaffi­véla sem á þessum árum litu dags­ins ljós. Tækni­þró­unin var lítil, sumar voru með sér­stakri hita­hellu til að halda upp­á­hell­ingnum heitum, aðrar með mis­mun­andi hita­still­ingum á þessum hellum en grund­vall­ar­tæknin óbreytt. Kaffi­brennslur buðu flestar, eða allar, uppá mjög svipað kaffi, milli­brennt, og á Íslandi var það jafn­vel talið fara eftir póli­tík hvaða kaffi var drukkið á heim­ilum lands­manna. Fram­sóknar- og vinstri­menn sagðir drekka Braga kaffi, í gulum pokum, úr kaup­fé­lag­inu en Sjálf­stæð­is­menn Rio kaffi frá Kaaber í blá- og hvítrönd­óttum pokum.

Kaffi­vélarnar voru tiltölu­lega ódýrar enda tæknin einföld. Reyndar voru til margskonar önnur tæki til kaffi­gerðar, til dæmis ítalskar hellu­könnur og pressu­könnurnar sem upphaf­lega komu sennilega frá Frakk­landi en ekkert þessara tækja komst í hálf­kvisti við uppáhellingar­vélarnar hvað vinsældir og útbreiðslu varðaði. Ekki má heldur gleyma skyndi­kaffinu (oftast kallað Neskaffi) sem fyrst kom á markaðinn um 1940 og er til í mörgum og mismun­andi tegundum.

Kaffi­vélar í stórri raftækja­verslun í Kaupmanna­höfn. MYND: BORGÞÓR ARNGRÍMSSON

Breytt kaffitíska


Um 1990 urðu miklar breyt­ingar í kaffi­drykkju­siðum. Nú var eng­inn maður með mönnum nema að eiga „alvöru“ kaffi­vél sem gæti töfrað fram gæða­kaffi og jafn­vel malað baun­irnar jafn­óðum og hitað mjólk útí kaffið. Tugir eða hund­ruð teg­unda slíkra véla komu á mark­að­inn, mis­jafnar bæði hvað varð­aði verð og gæði. Enn jókst svo sam­keppnin þegar hinar svo­nefndu Nes­presso vélar komu á mark­að­inn, þar var kaffið í formi síróps og margar bragð­teg­undir í boði. Loks komu púð­arnir, eða kodd­arnir eins og sumir kalla fyr­ir­bærið. Þar var kaffi­duftið í litlum poka, sem settur var í þartil­gerða vél, ýtt á takka og þá bun­aði kaffið í boll­ann. Gömlu kaffi­vél­arnar voru þó áfram á mark­aðnum þótt ýmsum þætti það heldur hall­æris­legt að bjóða uppá slíkan upp­á­hell­ing. Einn og einn hélt sig líka við hand­virku upp­á­hell­ing­ar­að­ferð­ina, vatnið hitað í katli og hellt yfir kaffi í trekt.

Ný gullöld


Þótt gömlu hefð­bundnu kaffi­vél­arnar hafi aldrei horfið og átt sína tryggu not­endur dróst sala þeirra mjög saman í flestum löndum á síð­asta ára­tug lið­innar aldar og allt fram til 2013. En tími þeirra var ekki lið­inn. Upp­á­hellt kaffi komst, ef svo má segja, aftur í tísku. Enginn veit bein­línis ástæð­una en ýmsir kaffi­drykkju­spek­ingar telja að margir séu hrein­lega orðnir leiðir á því að drekka kaffi­bland­aða mjólk, eins og sumir kalla vin­sæla kaffi­drykki. Margt ungt fólk vilji ein­fald­lega kaffi en ekki kaffi­bland. Hver svo sem ástæðan er er stað­reyndin sú að sala á hefð­bundnum upp­á­hell­ing­ar­vélum hefur víða um lönd auk­ist stór­lega á síð­ustu tveimur árum. Skrifari þessa pistils lagði leið sína í stóra raf­tækja­verslun í Kaup­manna­höfn fyrir nokkrum dögum. Þar taldi hann 58 mis­mun­andi gerðir kaffi­véla, rúmur helm­ingur þeirra hefð­bundnar upp­á­hell­inga­vélar. Samkvæmt tölum danskrar neyt­enda­stofu seld­ust sam­tals 220 þús­und kaffi­vélar í Danmörku í fyrra, það svarar til þess að tólfta hvert heim­ili í land­inu hafi eign­ast slíkt tæki. Af þessum 220 þús­und vélum voru tæp­lega 30 þús­und af gerð­inni Melitta.

Kaffivélar í stórri raftækjaverslun í Kaupmannahöfn. MYND: BORGÞÓR ARNGRÍMSSON
Kaffi­vélar í stórri raf­tækja­verslun í Kaup­manna­höfn. MYND: BORGÞÓR ARNGRÍMSSON
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár