Borgaraleg úrkynjun í beinni

Sigríður Jóns­dóttir leik­hús­rýnir fjallar um Íbúð 10b eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Sýningin markar end­ur­komu leik­stjór­ans, Baltasar Kormáks, í leik­húsið eftir dágóða fjar­veru.

Leikhús

Íbúð 10B

Höfundur Ólafur Jóhann Ólafsson
Leikstjórn Baltasar Kormákur
Leikarar Nína Dögg Filippusdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Björn Thors, Sveindís Dóra Einarsdóttir, Unnsteinn Stefánsson, Margrét Vilhjálmsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson

Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: Sunneva Ása Weisshappel Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Myndbandshönnun: Ásta Jónína Arnardóttir Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson og Gísli Galdur Þorgeirsson

Þjóðleikhúsið
Niðurstaða:

Niðurstaða: Íbúð 10b er glæsileg á yfirborðinu en uppfyllir ekki væntingar.

Gefðu umsögn

Fáguð kvöld­stund í fal­legu umhverfi með víni og ostum umbreyt­ist í víg­völl borg­ar­legu milli- og yfir­stétt­ar­innar. Íbúð 10b eftir Ólaf Jóhann Ólafsson var frum­sýnt í Þjóð­leik­hús­inu nýlega og markar end­ur­komu höf­undar og leik­stjór­ans, Baltasar Kormáks, í leik­húsið eftir dágóða fjar­veru. 

Tvenn hjón hitt­ast í for­drykk til að und­ir­búa yfir­vof­andi hús­fund. Einn íbúi fjöl­býl­is­húss­ins hefur áform um að hýsa tutt­ugu hæl­is­leit­endur í íbúð­inni sinni. Til þess þarf sam­þykki hús­fé­lags­ins og hjónin eru saman komin til að koma í veg fyrir þessi áform. Íbúð 10b ger­ist í raun­tíma og er leikið í tæpa tvo klukku­tíma án hlés þar sem borg­ara­leg hræsni er borin á borð fyrir áhorf­endur til að japla á. 

Í kynn­ing­ar­texta sýn­ing­ar­innar er Íbúð 10b sett fram sem grein­ing á mörkum góð­mennsk­unnar þar sem mann­gæskan er fljót að víkja þegar ein­stak­lingar upp­lifa fjöl­breyti­leika sem árás á ímyndað öryggi sitt. En á end­anum sýnst Íbúð 10b miklu frekar um …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Sophusdóttir skrifaði
    Ég hefðu ekki viljað missa af þessari sýningu
    3
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Ég ætla að sjá þessa sýningu!!
    3
    • MSB
      Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
      Ég líka- og minn "leikhússhópur". Veðjum á höfundinn og leikhópinn :)
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár