Utanríkisráðuneytið útvistar þjónustu til Samtaka atvinnulífsins fyrir 200 þúsund krónur á mánuði

Hagsmuna­samtök fyrir­tækja fá 2,4 milljónir frá hinu opinbera fyrir hagsmuna­gæslu erlendis.

Áætlaður kostnaður vegna samstarfs­samnings utan­ríkis­ráðuneytisins við Samtök atvinnu­lífsins er 200 þúsund krónur á mánuði, eða 2,4 milljónir á samnings­tímanum. Þetta kemur fram í svari utan­ríkis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Stundarinnar um málið. 

Fram kom í frétta­tilkynningu þann 26. janúar síðastliðinn að Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins, hefðu undir­ritað samning um samstarf stjórn­valda og SA um eflingu þjónustu við útflutnings- og markaðsmál íslenskra fyrir­tækja í þeim tilgangi að „auka slagkraft þeirra á erlendum mörkuðum“.

Bergþóra Halldórs­dóttir, lögfræðingur og sérfræðingur á samkeppnishæfnisviði Samtaka atvinnu­lífsins, mun gegna hlutverki erindreka um samstarf atvinnu­lífsins og utan­ríkis­þjónustunnar. 

Stundin fékk samninginn afhentan frá utan­ríkis­ráðuneytinu á grund­velli upplýsinga­laga, en hann má sjá í heild hér að neðan:

Samningur utan­ríkis­ráðuneytisins við Samtök atvinnu­lífsins bar á góma í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma í dag. „Ég tel það mikið fagnaðar­efni að ætlunin er að auka og styrkja utan­ríkis­viðskipta­þjónustu okkar Íslendinga og einnig það að hæstvirtur utan­ríkis­ráðherra hefur skrifað undir samkomulag, m.a. við Samtök atvinnu­lífsins, í þá veru að fela þeim ákveðin verkefni, ákveðna ráðgjöf og fleira sem tengist því að efla utan­ríkis­viðskipta­þjónustuna,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, formaður Viðreisnar. „Ég tel þetta mikið fagnaðar­efni. Auðvitað vakna samt ákveðnar spurningar um það hvaða stefnu ríkis­stjórnin hefur mótað í þessa veru.“ Þá beindi hún nokkrum spurningum til Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra:

„Ætlar ríkis­stjórnin að fela önnur verkefni á sviði utan­ríkis­viðskipta­þjónustu og utan­ríkis­þjónustu einka­aðilum? Er það stefna ríkis­stjórnarinnar? Ég mun ekki fara mjög gegn því en ég vil bara fá svar um skýra stefnu. Er ætlunin að leita til annarra hagsmuna­aðila en Samtaka atvinnu­lífsins sem eru mjög öflug samtök? Ég þekki það mjög vel eftir að hafa starfað þar í þrjú ár. Mun ríkis­stjórnin stefna að því að leita til annarra hagsmuna­aðila eins og ASÍ eða einka­aðila hvað varðar það að efla utan­ríkis­viðskipta­þjónustuna sem við viljum öll gera?“ 

Þá spurði hún hvort forsætis­ráðherra væri fylgjandi því „að færa aukin verkefni ráðuneytanna, eins og utan­ríkis­ráðuneytisins, til hagsmuna­aðila, til einka­aðila úti í bæ, sem eru öflugir“. Katrín Jakobs­dóttir nefndi í svari sínu að sjálf hefði hún setið í ríkis­stjórn þegar Íslands­stofa var sett á fót með það fyrir augum að efla samstarf ólíkra hagsmuna­aðila og stjórn­valda um utan­ríkis­viðskipti. Hún liti ekki svo á að með samningum á borð við þann sem gerður var við Samtök atvinnu­lífsins væri verið að færa utan­ríkis­þjónustu í hendur einka­aðila heldur væri einvörðungu verið að fela einka­aðilum tiltekin verkefni og stuðla að heilla­vænlegu samstarfi við atvinnu­lífið. Þorgerður Katrín fagnaði þessum svörum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár