Methagnaður hjá N1, Krónunni og ELKO

Smásölu- og orku­fyrirtækin sem eru í eigu Festi skiluðu bestu rekstrar­niðurstöðum sínum frá upphafi í fyrra. Á meðal ástæðna þess voru auknar tekjur frá N1 rafmagni.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi. Mynd: Aðsend

Orku- og smásölu­félagið Festi skilaði tæplega fimm milljarða króna hagnaði í fyrra, sem er tvöfalt hærri upphæð en árið 2020.

Dóttur­félög Festi – sem eru meðal annars N1, Krónan og ELKO – skiluðu öll bestu rekstrar­niðurstöðum sínum frá upphafi á árinu, meðal annars vegna mikilla verð­hækkana. Þetta kemur fram í nýbirtu ársuppgjöri félagsins og fjár­festinga­kynningu vegna síðasta ársfjórðungs­uppgjörs.

Tæpur hálfur milljarður úr eldsneyti og rafmagni

Tekjur allra þriggja dóttur­félaganna jukust töluvert á árinu, en aukningin var þó mest hjá N1, þar sem hún nam tæpum átta milljörðum króna. í fjárfesta­kynningu sem fylgdi síðasta ársfjórðungs­uppgjöri segir að verð­hækkun eldsneytis hafi haft mikil áhrif, en auk þess hafi salan á eldsneyti aukist töluvert.

Einnig jókst framlegð af eldsneytis- og rafmagns­sölu um 456 milljónir króna á síðasta ársfjórðungi, en samkvæmt Festi er það rúmlega helmings­aukning á milli ára.

Í þessum tölum er sala N1 Rafmagns á raforku til heimila í gegnum þrautavara­leið stjórn­valda, en félagið hefur verið gagnrýnt fyrir að rukka neytendur allt að 75 prósentum yfir auglýstu verði.

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður hefur N1 beðið neytendur afsökunar á verð­laginu og sagðist félagið ætla að endur­greiða mismun á uppgefnum taxta og þrautavara­taxta frá mars til nóvember í fyrra. Félagið hafði áður tilkynnt að það ætlaði aðeins að endur­greiða mismuninn í nóvember og desember 2021.

Verðið á bensíni og olíum hækkaði svo um 18 prósent í fyrra, en sú verð­hækkun hefur aukið verð­bólguna hérlendis um 0,6 prósentu­stig. Sömuleiðis tók verðið á rafmagni, sem hefur haldist nokkuð stöðugt á síðustu árum, kipp í síðasta mánuði, samkvæmt tölum frá Hagstofunni.

Krónan og ELKO í góðri stöðu

Samkvæmt ársreikningi Festi hefur rekstur Krónunnar og ELKO einnig bæst töluvert á síðustu mánuðum. Hagnaður Krónunnar nam 1,6 milljörðum króna og hefur hann tæplega tvöfaldast á milli ára. Hlutfallsleg aukning hagnaðar hjá ELKO var svipuð, en raftækja­verslunin skilaði 900 milljónum króna í hagnað í fyrra, miðað við 543 milljónir króna í hagnað árið 2020.

Bæði matvara og raftæki hækkuðu töluvert í verði í byrjun síðasta árs, en á síðustu mánuðum hefur vægi þeirra í verð­bólgunni þó minnkað.

Samkvæmt Festi var framlegð Krónunnar á síðasta ársfjórðungi í takti við væntingar, en tekjurnar voru þá um 2 prósentum meiri en á sama tíma árið fyrr. Tekju­aukningin var nokkuð meiri hjá ELKO á sama tíma, en samkvæmt fjárfesta­tilkynningunni er hún meðal annars vegna þess að verslun í flugstöð Leifs Eiríks­sonar hafi verið að ná sér á strik að undan­förnu.

ELKO nýtur þess einnig að vera með sterka stöðu á markaði fyrir raftæki, en fyrir­tækið hefur 49 prósenta markaðs­hlutdeild þar. Engin önnur raftækja­sala kemst nálægt þeirri stöðu, en næst­stærsta fyrir­tækið á markaðnum er heimilis­tæki með 9,6 prósenta hlutdeild af markaðnum.

Fjárfestingar, arðgreiðslur og endurkaup fram undan

Festi spáir því að rekstur dóttur­félaga þess haldist áfram jákvæður og að rekstrar­hagnaður (EBITDA) samstæðunnar muni nema rúmum níu milljörðum króna. Félagið segir þó nokkra óvissu vera um þá þróun, meðal annars vegna hnökra í aðfanga­keðju á heims­markaði og óróa á heims­markaðs­verði eldsneytis.

Í ár býst félagið svo við að greiða hluta hagnaðarins til hluthafa sinna í gegnum arðgreiðslur og endurkaup á eigin bréfum. Búist er við 1,58 milljarða króna arðgreiðslum í ár, auk þess sem félagið mun kaupa eigin bréf fyrir 837 milljónir króna á yfir­standandi ársfjórðungi.

Annar hluti hagnaðarins mun svo fara í aukinn rekstur félagsins, en það býst við að ráðast í fjár­festingar fyrir 5,5 milljarða króna í ár. Í fjár­festinga­kynningu félagsins segir að þetta ár verði „mikið fjárfestingarár“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár