Prince látinn 57 ára

Einn virtasti tónlistar­maður Banda­ríkjanna og heimsins, Prince, lést í dag 57 ára, samkvæmt fréttum fjölmiðla.

Tónlistar­maðurinn Prince, eða Prince Roger Nelson, lést í dag, 57 ára. Það var afþreyingar­vefurinn TMZ sem greindi fyrstur frá þessum tíðindum í dag, en aðrir miðlar hafa síðan flutt sömu fréttir. Dánar­orsök hefur ekki verið staðfest.

Prince þótti með áhrifamestu tónlistar­mönnum Banda­ríkjanna, og var afburða gítar­leikari, söngvari, laga­smiður og útsetjari. Hann var fjölhæfur, og einstakur þegar kom að lifandi tónlistar­flutningi. Töfrandi sviðs­framkoma hans heillaði tónlistar­unnendur um allan heim, á löngum ferli hans. Hann seldi meira en 100 milljónir eintaka af plötum sínum og gaf út meira en 30 plötur á ferli sínum ýmist undir eigin nafni eða hljómsveita sem hann leiddi.

Eitt hans frægasta lag, var ballaðan Purple Rain, sem kom út á samnefndri plötu 1984. Prince vann fyrir sér sem atvinnu­tónlistar­maður frá tánings­aldri, en gerði sinn fyrsta plötu­samning 19 ára. Fyrsta plata hans kom út 1978, For You.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár