Hvalárvirkjun muni rýra víðerni Ófeigsfjarðarheiðar um tæpan helming

Samkvæmt niður­stöðum Wildland Research Institute myndi Hval­árvirkjun hafa verulega neikvæð áhrif á heild­stæða víðerna­upplifun Ófeigs­fjarðar­heiðar og næsta nágrennis.

Nákvæm kort­lagning vísinda­manna við Háskólann í Leeds á óbyggðum víðernum Ófeigs­fjarðar­heiðar sýnir að mannvirki Hval­árvirkjunar myndu rýra víðernin um 45 til 48,5 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúru­verndar­samtökunum ÓFEIGU í dag.

Samtökin fengu rannsóknar­setrið Wildland Research Institute (WRi) við Háskólann í Leeds til að ráðast í kort­lagninguna síðastliðið sumar. WRi hefur þróað nákvæmar stafrænar aðferðir til að kort­leggja og skilgreina víðerni, mun nákvæmari en beitt hefur verið víðast hvar, samkvæmt ÓFEIGU.

Dr. Stephen Carver og Oliver Kenyon hjá WRi kynntu niður­stöðu rann­sóknarinnar á fundi samtak­anna í dag. Fram kom hjá þeim að kort­lagning víðernanna byggðist á greiningu á stafrænum þrívíðum land­upplýsinga­gögnum, land­notkun, fjarlægð frá mann­virkjum og aðgangs­stöðum vélknúinna farar­tækja.

„Gögnin eru notuð til að greina með mikilli nákvæmni sýnileika mann­virkja sem geta haft áhrif á víðerna­upplifun. WRi hefur þróað forrit til þessarar greiningar sem byggir á svipuðum aðferðum og forrit tölvu­leikja,“ segir í tilkynningu samtak­anna.

Markmið kort­lagningar WRi er að meta heildar­áhrif fyrir­hugaðrar Hval­árvirkjunar á víðerna­upplifun á Ófeigs­fjarðar­heiði og nágrenni. Samkvæmt ÓFEIGU er með Hval­árvirkjun fyrirséð að mannvirki muni skerða þessa upplifun og hafi því verið ákveðið að fá WRi til að kort­leggja víðernin og greina áhrif virkjunarinnar.

Hvalárvirkjun hefði verulega neikvæð áhrif á heildstæða víðernaupplifun

„Skerðing víðerna af völdum Hval­árvirkjunar felst í aðkomu­vegum fyrir þunga­vinnuvélar, öðrum nýjum vegum, stíflum, yfir­föllum, lónstæðum, skurðum, raflínum og stöðvar­húsi. Enn fremur minnkandi rennsli í Rjúkandi, Hvalá og Eyvind­arfjarðará ásamt samsvar­andi áhrifum á fossa á svæðinu. Áhrifin á fossana eru hins vegar ekki tekin með í mælingum WRi,“ segir í tilkynningunni.

Þá taki niður­staða greiningarinnar af öll tvímæli um að áform um Hval­árvirkjun hafi verulega neikvæð áhrif á heild­stæða víðerna­upplifun Ófeigs­fjarðar­heiðar og næsta nágrennis.

Kortlagði öll sjónræn áhrif mannvirkjanna á svæðinu

Fyrrnefnd stofnun WRi hefur unnið að þróun ítarlegrar kort­lagningar á víðernum í samráði við skosk stjórn­völd, meðal annars í þjóð­görðum og óbyggðum víðernum, samkvæmt ÓFEIGU. Byggt sé á land­upplýsingum í hárri upplausn til að meta land­fræðilegt umfang áhrifa og sé meðal annars metið hvort áhrif eru mikil eða lítil með tilliti til fjar­lægðar. „Sem dæmi má nefna að hús er ekki aðeins metið út frá stað­setningu, heldur hefur hæð þess áhrif á hversu langt sjónrænu áhrifin ná. Lágt hús eða hús sem stendur í dæld hefur þannig minni sjónræn skerðingar­áhrif en hátt hús eða hús sem stendur á hæð.“

Til viðbótar við kort­lagningu á víðerna­skerðingu af völdum Hval­árvirkjunar kortlagði WRi öll sjónræn áhrif mann­virkjanna á svæðinu, það er hvaðan sést til þeirra. Þau áhrif eru mun umfangs­meiri en aðeins skerðing óbyggðra víðerna, samkvæmt niður­stöðunum.

Wildland Research Institute er sjálfstæð fræða­stofnun með sérþekkingu á víðernum, stefnu­mótun, kort­lagningu og landslags­mati. Aðferða­fræði og forrit WRi hefur einkum verið þróuð í tengslum við kort­lagningu í skoskum þjóð­görðum og annast WRi ráðgjöf til skosku ríkis­stjórnarinnar á þessu sviði. Að auki er WRi meðhöfundur víðerna­kort­lagningar Evrópu­sambandsins og aðstoðar Alþjóða náttúru­verndar­stofnunina (IUCN) við kort­lagningu víðerna­gæða í Frakk­landi. WRi hefur einnig unnið með þjóðgarða­stofnun Banda­ríkjanna og unnið að mati á víðerna­gæðum í Kína, samkvæmt ÓFEIGU.

Hægt að skilgreina óbyggð víðerni út frá raunverulegum aðstæðum

Í tilkynningu náttúru­verndar­samtakanna kemur fram að í náttúru­verndar­lögum sé svohljóðandi skilgreining á óbyggðum víðernum: „Óbyggt víðerni: Svæði í óbyggðum sem er að jafnaði a.m.k. 25 km2 að stærð eða þannig að hægt sé að njóta þar einveru og nátt­úrunnar án truflunar af mann­virkjum eða umferð vélknúinna farar­tækja og í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mann­virkjum og öðrum tækni­legum ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunar­lónum og uppbyggðum vegum.“

Tölulegu viðmiðin séu fyrst og fremst til leið­beiningar og nálgun þeirra skili fremur grófum niður­stöðum. Með nákvæmum kort­lagningar­aðferðum á borð við þær sem WRi framkvæmir sé hægt að skilgreina óbyggð víðerni út frá raun­verulegum aðstæðum á hverjum stað.

„Víðerna­greiningar í Evrópu hafa sýnt að 1 prósent af „villtustu“ óbyggðum víðernum Evrópu ná yfir tæpa 57 þúsund ferkílómetra. Þar af eru 24 þúsund ferkílómetrar þessa eina prósents á Íslandi, eða 42% af „villtustu“ víðernum álfunnar. Með skilgreiningunni „villtustu“ er átt við víðerni sem eru hvað lengst frá öllum mann­virkjum eða aðgangs­stöðum vélknúinna farar­tækja,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár