Karlmaður skotinn til bana í nótt

Einn er í haldi lög­reglu vegna máls­ins og er rann­sókn þess í algjörum for­gangi að því er segir í til­kynn­ingu lög­regl­unnar.

Karl­manni á fer­tugs­aldri var ráð­inn bani skömmu fyrir mið­nætti í gær­kvöldi í aust­ur­borg­inni. Til­kynn­ing um málið barst lög­reglu klukkan 23:57 í gær­kvöldi að því er segir í til­kynn­ingu sem lög­reglan sendi fjöl­miðlum nú síð­degis. Samkvæmt til­kynn­ingu frá lög­regl­unni fund­ust áverkar eftir skot­vopn á líki manns­ins. Þar segir enn fremur að einn sé í haldi lög­regl­unnar vegna máls­ins og að rann­sókn sé í algjörum for­gangi hjá emb­ætt­inu.

Í annarri til­kynn­ingu sem lög­reglan sendi fjöl­miðlum skömmu fyrir hádegi í dag var sagt frá því að lög­reglan hefði verið kölluð að húsi í aust­ur­borg­inni um mið­nætti í gær­kvöldi vegna til­kynn­ingar um slas­aðan karl­mann sem var þar utan við húsið. „End­ur­lífg­un­ar­til­raunir hófust strax á vett­vangi og í kjöl­farið var mað­ur­inn fluttur á Land­spít­al­ann, en var úrskurð­aður lát­inn skömmu eftir kom­una þangað. Maðurinn var á fer­tugs­aldri,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í frétt Vísis segir að karl­maður á fer­tugs­aldri hafi verið hand­tek­inn í Garðabæ vegna aðildar að mál­inu. Þar segir einnig að ekki hafi verið unnt að fá við­tal við lög­reglu, enda málið á við­kvæmu stigi. Samkvæmt til­kynn­ingum frá lög­regl­unni verða frek­ari upp­lýs­ingar sendar fjöl­miðlum þegar rann­sókn máls­ins vindur fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár