Sveitarstjórnin hafnar „öllum slíkum áformum um vindorkuver“

Einn þeirra vindorku­kosta sem fékk grænt ljós í meðferð verkefnis­stjórnar 4. áfanga ramma­áætlunar og rataði í nýtingar­flokk í tillögu­drögum hennar var Vind­heima­virkjun í Hörgárdal. Sveitar­stjórnin vill hins vegar ekki sjá hana.

Sýnileiki vindmylla í Vindheimavirkjun frá Hörgárdalsvegi, milli bæjanna Lönguhlíðar og Hallfríðarstaða
Sýni­leiki vind­mylla í Vind­heima­virkjun frá Hörg­ár­dals­vegi, milli bæj­anna Löngu­hlíðar og Hall­fríð­ar­staða Mynd: Úr skýrslu Fallorku um tillöguna

„Sveitar­stjórn samþykkti að hafna öllum slíkum áformum um vind­orkuver í Hörg­ársveit.”

Svo mörg eru orðin í fundar­gerð sveitar­stjórnar Hörg­ársveitar frá því í lok apríl um þau tillögu­drög verkefnis­stjórnar fjórða áfanga ramma­áætlunar að flokka áformaða Vind­heima­virkjun í orku­nýtingar­flokk. Fimm vindorku­kostir voru metnir af verkefnis­stjórninni og lagt til að þrír fari í nýtingar­flokk og tveir í biðflokk. Hin fimm fyrir­huguðu vind­orkuverin eru auk Vind­heima­virkjunar við Alviðru, Sólheima, í Garpsdal og ofan Búrfells.

Sveitar­félagið Hörg­ársveit við Eyjafjörð var stofnað 12. júní 2010 með sameiningu Hörg­árbyggðar og Arnar­neshrepps og nær yfir Galmaströnd, Hörgárdal, Öxnadal og Kræklinga­hlíð. Íbúarnir voru í lok síðasta árs 623 talsins.

Fyrir­tækið Fallorka ehf., sem er með hið allt að 40 MW vind­orkuver í austan­verðum Hörgárdal á prjónunum, er að fullu í eigu Norður­orku, sem aftur rekur veitur á Akureyri og víðar á Eyja­fjarðar­svæðinu. Hörg­árdalur er umkringdur bröttum og háum fjöllum. Um dalinn rennur Hörgá en í dalbotninum er aðallega ræktunar­land og tún en einnig votlendi. Nokkur skógræktar­svæði eru austanmegin í dalnum „og geta þau haft talsverð áhrif á hrýfi og orku­framleiðslu á svæðinu,“ segir í skýrslu um virkjana­kostinn sem verkfræði­stofan Efla vann fyrir Fallorku. Í dalnum eru nokkrir bóndabæir sem og sumar­húsabyggð. Þjóðvegur 1 liggur um Hörgárdal sem og byggða­línan. Svæðið sem er fyrir­hugað fyrir Vind­heima­virkjun er í um 200-300 m hæð í aflíðandi hlíð. Myllurnar yrðu 8-10 talsins og 150-200 metrar á hæð í hæstu stöðu.

Í niður­stöðu verkefnis­stjórnar fjórða áfanga ramma­áætlunar, sem sendi frá sér skýrslu­drög í lok mars er hún lauk starfs­tíma sínum, segir að hið fyrir­hugaða virkjunar­svæði í Hörgárdal hafi fengið fremur lága verðmæta­einkunn. Hins vegar yrðu áhrif virkjunarinnar á ferða­þjónustu og útivist neikvæð. Sýnileiki vind­orkuversins yrði umtalsverður og mynd það blasa við öllum vegfarendum sem fara um Hörgárdal og Öxnadal og ferða­mönnum á enn stærra svæði. Vind­heima­virkjun er fyrir­huguð á svæði sem er mjög nærri byggð og nokkur fjöldi íbúa mun búa við viðvarandi sjónræn áhrif. Það má, að því er fram kemur í niður­stöðum verkefnis­stjórnarinnar, búast við að skiptar skoðanir verði um áformin. „Lítil kynning“ hafi farið fram á þessum áformum og að nokkur hætta geti verið á að deilur skapist um framkvæmdina.

Sveitarstjórn hafi stærsta hlutverkið

„Þegar um er að ræða vindorku­kosti sem hafa fyrst og fremst áhrif í einu sveitar­félagi og snerta hagsmuni íbúa og land­eigenda beint þá telur verkefnis­stjórn mikilvægt að sveitar­stjórn í lýðræðis­legu samráði við íbúa hafi stærsta hlut­verkið í ákvörðun um hvort heimila beri framkvæmdir,“ segir í almennum rökstuðningi verkefnis­stjórnarinnar um að setja Vind­heima­virkjun í orku­nýtingar­flokk. „Loka­ákvörðun um leyfi til framkvæmda verður í öllum tilfellum í höndum sveitar­stjórna á grund­velli niður­stöðu mats á umhverfis­áhrifum og að teknu tilliti til upplýsinga sem aflað er við vinnslu skipulags­áætlana.“

Í vinnu verkefnis­stjórnarinnar var gerð rannsókn á mögulegum samfélags­legum áhrifum nokkurra virkjana­kosta, þeirra á meðal Vind­heima­virkjunar. Í henni voru að hluta til lögð til grund­vallar viðtöl við sveitar­stjórnar­menn og hagsmuna­aðila.

Samkvæmt henni eygja talsmenn Hörg­ársveitar ekki umtals­verð efnahagsleg tækifæri af Vind­heima­virkjun og telja að fasteigna­skattar af henni yrðu ekki miklir. Væntingar um stað­bundin efnahagsleg áhrif virðast helst tengjast jörðum þar sem virkjunin yrði reist með endur­gjaldi fyrir land. Litlu máli virðist skipta að sveitar­félögin á svæðinu, þar á meðal Hörg­ársveit, eiga Fallorku sem er virkjunar­aðilinn. Skiptar skoðanir voru um hvort Vind­heima­virkjun hefði áhrif á raforku­framboð en takmörkuð flutnings­geta raforku er til Eyja­fjarðar vegna gamallar byggða­línu og bentu talsmenn sveitar­félagsins á að litlar vatns­virkjanir gætu verið hluti af lausn þess vandamáls. Lítil sem engin kynning hefur farið fram á verk­efninu í sveitar­félaginu og gagnrýndu fulltrúar sveitar­félagsins það.

Í ljósi reynslunnar af neikvæðri umræðu um endurnýjun byggða­línunnar í Hörg­ársveit, sem sveitar­stjórnar­mönnum þótti einnig illa kynnt, er talin hætta á að neikvæð umræða og jafnvel deilur skapist um Vind­heima­virkjun. Efasemdir eru um að Vind­heima­virkjun falli að því samfélagi sem Hörg­ársveit vill leggja áherslu á, þ.e. svæði þar sem unnt er að búa nálægt þjónustu og störfum á Akureyri, en geta notið þess á sama tíma að vera í rólegra umhverfi.

Í niður­stöðum þess faghóps ramma­áætlunar sem skoðaði áhrif á ferða­þjónustu og útivist kemur fram að viðhorf til Vind­heima­virkjunar séu að mestu leyti neikvæð, sérstak­lega meðal ferða­þjónustu­aðila.

Helsti kostur að hafa minni sýnileika en aðrir vindorkukostir

Helsti kostur tillög­unnar var talinn sá að fjöldi vindmylla og sýnileiki þeirra væri minni en annarra vind­orkuvera sem metin voru og að virkjunin gæti stuðlað að auknu raforku­öryggi á Norður­landi. Hins vegar töldu fleiri viðmælendur Vind­heima­virkjun hafa neikvæð áhrif en jákvæð. Virkjunin myndi sjást vel frá Eyjafirði og Sval­barðsströnd/Grenivík sem og frá hluta af Trölla­skaga. Faghópurinn mat einnig sem svo að þegar ferðamenn sem ferðuðust umhverfis Trölla­skaga yrðu fyrir áhrifum af sýnileika vind­orkuversins í Hörgárdal „myndu þau áhrif fylgja þeim eftir á ferða­laginu“.

Mjög margir ferðamenn eru alla jafna á svæðinu, þar eru miklir afþreyingar­möguleikar og fjöl­breyttar ferða­leiðir sem standa ferða­mönnum til boða sumar sem vetur.

„Það er engu líkara en runnið hafi æði á fyrirtæki og rafmagns­riddara sem vilja reisa vind­orkuver víða um land,“ skrifar Sveinn Runólfsson, fyrr­verandi Landgræðslu­stjóri í nýjasta tölublað Bænda­blaðsins. Hann bendir á að á fjórða tug vindorku­hugmynda hafi ratað inn á borð síðustu verkefnis­stjórnar ramma­áætlunar. „Svo virðist sem fjár­festar og aðrir vilji festa sér hagstætt stæði í landinu þrátt fyrir að undir­búningur margra þeirra virðist vera afar skammt kominn,“ skrifar Sveinn. Hann segir það „vekja furðu“ hversu langt undir­búningur er kominn í uppbyggingu nokkurra vind­orkuvera án þess að nokkur kynning hafi átt sér stað til sveitar­stjórna og íbúa hlut­aðeigandi byggða.

Rafmagnsvíkingarnir

„Meirihluti fyrir­hugaðra vind­orkuvera virðist vera í eigu erlendra fyrir­tækja með hérlenda samverka­menn – rafmagns­víkinga. Stórfellt erlent eignar­hald á raforku­framleiðslu hér á landi hlýtur að vera stjórn­völdum og þjóðinni allri umhugsunar­efni. Lætur nærri að ef öll þessi vind­orkuver verða að veruleika væri uppsett afl mun meira en öll raforku­fram­leiðslan landsins um þessar mundir. Hvað á að gera við alla þessa orku og hverjir ætla að kaupa hana?“

Hann bendir á að stað­setning vindmylla og vind­orkuvera í byggð hafi „mikil og víðtæk“ búsetu­áhrif. Víti til varnaðar sé uppsetning tveggja vindmylla fyrir nokkrum árum við byggðina í Þykkvabæ sem þó séu lægri en vind­myllurnar sem rætt er nú um að reisa víða um land. „Þrátt fyrir að vind­myllurnar í Þykkvabænum hafi verið óstarfhæfar síðustu misserin hafa þær ekki verið fjar­lægðar og eru öllum til ama [...] Íbúar Þykkvabæjar gleðjast þó yfir að gnýrinn frá þeim angrar þá ekki lengur.“

Að mati Sveins skortir ekki aðeins heildarsýn fyrir landið allt í þessum mála­flokki heldur einnig yfir hvar vind­orkuver eigi alls ekki að vera með tilliti til áhrifa á landslag. Enn fremur vantar sárlega leiðsögn og „tæki“ fyrir sveitar­stjórnir til að taka vandaðar og samræmdar ákvarðanir um nýtingu vindorku. „Á meðan framan­greint liggur ekki fyrir eiga sveitar­stjórnir aðeins þann kost að hafna öllum hugmyndum um vind­orkuver eða fresta ákvörðunum.“

Til þess að varðveita sérstöðu íslensks landslags er ljóst að mati Sveins að það fyrir­finnst „enginn staður hér á landi þar sem vind­orkuver geta verið í sátt við náttúruna og okkur sjálf. Alþingi ætti að taka þá ákvörðun að vind­orkuver verði ekki reist hér á landi. Slík ákvörðun kemur í veg fyrir óafturkræf umhverfis­slys.“

Á tímamótum

„Íslendingar standa á tímamótum varðandi nýtingu orku­auðlinda því virkjun vindorku er að hefjast af fullum krafti,“ skrifaði Guðrún Péturs­dóttir, formaður verkefnis­stjórnar 4. áfanga ramma­áætlunar í skýrslunni um tillögu­drögin. „Þótt vindurinn sé óþrjótandi er land undir vind­orkuver það ekki. Landið er hin takmarkaða auðlind í þessu tilfelli. Vind­myllur eru nú um 150 m háar og fara hækkandi. Þær eru því afar áberandi í landslagi og sjást víða að. Vind­orkuver munu valda miklum breytingum á ásýnd landsins ef ekki verður varlega farið.“

Verkefnis­stjórnin telur brýnt að sett verði heildar­stefna um virkjun vindorku hér á landi og tekin ígrunduð ákvörðun um hvort afmarka eigi fá vel skilgreind svæði fyrir vind­myllur eða setja því litlar skorður hvar vind­orkuver fá að rísa. „Nú er einstakt tækifæri að setja slíka stefnu áður en framkvæmdir hefjast víða um land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár