Allt í hnút í rammaáætlun – aðeins þrettán virkjanakostir metnir

Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hafði aðeins nokkra mán­uði til að meta þá vind­orku­kosti sem komu inn á hennar borð frá Orku­stofnun og nokkra mán­uði til hvað varðar hug­myndir að vatns­afls- og jarð­varma­virkj­unum.

Staðsetning þeirra virkjunarkosta sem voru metnir í 4. áfanga rammaáætlunar.
Stað­setn­ing þeirra virkj­un­ar­kosta sem voru metnir í 4. áfanga ramma­á­ætl­unar. Mynd: Úr skýrslu verkefnisstjórnar

Aðeins þrettán virkj­un­ar­kostir og svæði voru tekin til flokk­unar verk­efn­is­stjórnar 4. áfanga ramma­á­ætl­unar áður en skip­un­ar­tími hennar rann út nú um mán­aða­mótin. Ekki vannst tími til kynn­ingar á til­lögum eins og lög gera ráð fyrir heldur aðeins til að gera drög að til­lögum. Kynn­ingin, þar sem hag­að­ilar geta sent inn athuga­semdir, mun því koma í hlut næstu verk­efn­is­stjórnar.

[links]Í til­lögu­drög­unum eru níu virkj­ana­kostir í nýt­ing­ar­flokki og fjórir í bið­flokki. Verk­efn­is­stjórnin taldi ekki til­efni til að flokka neitt svæði í vernd­ar­flokk. Fjórar stækk­anir á virkj­unum Lands­virkj­unar og HS Orku eru í nýt­ing­ar­flokki, tvær vatns­afls­virkj­anir Orkubús Vest­fjarða sömu­leiðis sem og þrjú vind­orku­ver; í Borg­ar­byggð, Hörg­ár­byggð og Reyk­hóla­hreppi.

Ein virkj­ana­hug­mynd á Vest­fjörðum er sett í bið­flokk, tvö vind­orku­ver og ein vatns­afls­virkjun, Ham­ar­s­virkjun á Aust­ur­landi.

Til­lög­urnar eiga eftir að fara í tvö aðskilin kynn­ingar- og sam­ráðs­ferli sem taka um 4-5 mán­uði. Ný verk­efn­is­stjórn mun því fá það verk­efni að fara yfir allar ábend­ingar sem ber­ast og taka afstöðu til þeirra. Ekki fyrr en að það mat liggur fyrir er loka­skýrslu með til­lögum skilað til ráð­herra sem getur svo gert á þeim breyt­ingar áður en hann leggur þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða fyrir Alþingi.

Þessi flókna og erf­iða staða á sér nokkrar skýr­ingar en þó þá helsta að tappi hefur mynd­ast í því ferli sem ramma­á­ætlun er. Ferli sem var m.a. ætlað að greiða úr ágrein­ingi í sam­fé­lag­inu um virkj­ana- og nátt­úru­vernd­ar­mál. Núgild­andi ramma­á­ætlun, 2. áfangi, er orðin átta ára gömul, var sam­þykkt á Alþingi í jan­úar árið 2013. Tvær verk­efna­stjórnir hafa lokið störfum frá þeim tíma en aðeins ein náði að klára vinnu sína líkt og til var ætl­ast.

[adspot]

Þegar Björt Ólafs­dóttir, þáver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, skip­aði verk­efn­is­stjórn til fjög­urra ára í apríl 2017 hafði þings­á­lykt­un­ar­til­laga um 3. áfanga áætl­un­ar­innar ekki enn verið afgreidd á þingi. Þetta skap­aði þá þegar laga­lega óvissu um störf nýrrar stjórnar og mjög dróst að fá virkj­ana­kosti til mats frá Orku­stofnun. Þeir fyrstu bár­ust ekki fyrr en vorið 2020 og frek­ari gögn sem óskað var eftir voru að ber­ast allt þar til í febr­úar á þessu ári.

„Engan grun­aði að þings­á­lykt­un­ar­til­laga byggð á vinnu við 3. áfanga ramma­á­ætl­unar yrði ekki enn sam­þykkt af Alþingi þegar skip­un­ar­tími verk­efn­is­stjórnar rynni út – fjórum árum eftir skipun,“ skrifar Guðrún Pét­urs­dóttir, for­maður verk­efn­is­stjórnar, í for­mála skýrslu sem stjórnin hefur nú skilað af sér. „Þessi dráttur á eðli­legri máls­með­ferð er sann­ar­lega ekki í anda lag­anna um ramma­á­ætlun, enda búa þau ekki yfir neinum leið­bein­ingum um hvernig taka skal á slíkri stöðu.“

Vegna óvissunnar aug­lýsti Orku­stofnun ekki eftir nýjum virkj­un­ar­kostum fyrstu ríf­lega tvö ár skip­un­ar­tíma verk­efn­is­stjórn­ar­innar. Í árs­byrjun 2019 sá stjórnin sér svo ekki annað fært en að fara fram á það við stofn­un­ina að lýsa eftir þeim.

Knappur tími

Þegar fyrstu kost­irnir bár­ust loks vorið 2020 var knappur tími til að fram­kvæma þær rann­sóknir sem nauð­syn­legar voru til að meta verð­mæti við­kom­andi land­svæða og hin marg­vís­legu áhrif sem virkj­an­irnar kunna að hafa á þau. Því varð nið­ur­staða verk­efn­is­stjórnar að hún stefndi að því á skip­un­ar­tíma sínum að ljúka mati og fyþrstu flokkun þrettán virkj­un­ar­kosta sem tækir voru til með­ferðar.

Er verk­efn­is­stjórn 4. áfanga var skipuð hafði þings­á­lykt­un­ar­til­laga byggð á til­lögu verk­efn­is­stjórnar 3. áfanga verið lögð fyrir Alþingi í tvígang, en ekki hlotið afgreiðslu. Fyrst var hún lögð fram 1. sept­em­ber árið 2016 er Sigrún Magn­ús­dóttir var umhverf­is­ráð­herra. Ekki náð­ist að afgreiða til­lög­una áður en stjórn­ar­skipti urðu í jan­úar 2017. Björt Ólafs­dóttir sem tók við umhverf­is­ráðu­neyt­inu lagði til­lög­una fram á ný en aftur urðu stjórn­ar­slit áður en Alþingi hafði afgreitt hana.

Þegar verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar hóf störf vorið 2017 „var ekki von á öðru en að Alþingi afgreiddi nið­ur­stöður 3. áfanga ramma­á­ætl­unar sem þings­á­lykt­un­ar­til­lögu áður en langt um liði,“ segir í nýrri skýrslu stjórn­ar­innar. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra lagði hana loks fram í nóv­em­ber í fyrra. Fyrstu umræðu á þingi er lokið.

Í skýrslu verk­efn­is­stjórn­ar­innar er farið ítar­lega yfir þá atburða­rás sem hófst er hún tók til starfa vorið 2017. Þar sem Alþingi hafði þá ekki lokið með­ferð 3. áfanga ramma­á­ætl­unar kall­aði Orku­stofnun ekki eftir virkj­un­ar­kostum til mats vegna næsta áfanga. Verk­efn­is­stjórnin hafði engu að síður áhuga á að sinna sínu lög­boðna hlut­verki að meta virkj­un­ar­kosti og hóf því haustið 2017 að kanna mögu­leika á að taka til mats þá kosti sem stjórn 3. áfanga ramma­á­ætl­unar hafði raðað í bið­flokk. Sá áhugi var ítrek­aður á fyrsta fundi með Guðmundi Inga, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, í jan­úar 2018, og fylgt eftir í tvígang skömmu síðar, m.a. með bréfi til ráðu­neyt­is­ins. Ekki hefur borist form­legt svar við því bréfi, en eftir fund með ráð­herra um vorið leit verk­efn­is­stjórnin svo á að heim­ilt væri að taka til mats kosti í bið­flokki gild­andi ramma­á­ætl­unar, þ.e. 2. áfanga.

Fyrndar útgáfur virkjunarkosta

Farin var vett­vangs­ferð um sum­arið og fimm virkj­un­ar­kostir í bið­flokki gild­andi áætl­unar – sem einnig var raðað í bið­flokk í 3. áfanga – skoð­aðir. En þá komu í ljós miklar breyt­ingar á mörgum þess­ara virkj­ana­hug­mynda og stjórnin komst því að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri skyn­sam­legt að ráð­ast í mat á „fyrndum útgáfum virkj­un­ar­kosta“ og var horfið frá því.

Enn var því á þessum tíma­punkti óljóst hvort og þá hvaða virkj­un­ar­kosti verk­efn­is­stjórn myndi taka til mats. En stjórnin treysti því að ekki væri langt að bíða afgreiðslu Alþingis og að í kjöl­farið myndi Orku­stofnun lýsa eftir nýjum virkj­un­ar­kostum 4. áfang­ans.

Orku­stofnun hefur um ára­bil gert ágrein­ing um það að ramma­á­ætlun fjalli um vind­orku­kosti á þeirri for­sendu að vindur sé ekki stað­bund­inn orku­gjafi. Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið hefur haldið hinu gagn­stæða fram. Ofan á allt saman skap­aði þessi ágrein­ingur tafir og óvissu í starfi verk­efn­is­stjórn­ar­innar.

[adspot]

Stjórnin fór fram á það við Orku­stofnun í árs­byrjun 2019 að kallað yrði eftir nýjum virkj­ana­hug­myndum. Það gerði stofn­unin í ágúst það ár en í aug­lýs­ing­unni var eng­inn skila­frestur. Verk­efn­is­stjórnin gerði athuga­semd við þetta og fór fram á að hún fengi sendar þær umsóknir sem yrðu komnar 1. febr­úar 2020, um þremur árum eftir að skip­un­ar­tími hennar hófst.

Orku­stofnun sendi fyrir þann dag tólf virkj­un­ar­kosti; sex í vind­orku, fimm í vatns­orku og einn í jarð­varma. Tveimur mán­uðum síðar kom svo önnur send­ing virkj­un­ar­kosta frá stofn­un­inni og voru kost­irnir þá orðnir 45; þrjú jarð­varma­ver, sjö vatns­orku­ver, ein sjáv­ar­falla­virkjun og 34 vind­orku­ver. Í ágúst 2020 bár­ust verk­efn­is­stjórn auk þess gögn frá Orku­stofnun varð­andi stækkun jarð­varma­vers­ins í Svarts­engi.

Stofn­unin sagð­ist hafa yfir­farið inn­send gögn vegna virkj­un­ar­kosta í vatns­afli og jarð­varma en í ljósi meintrar réttaró­vissu um stöðu vind­orku í ramma­á­ætlun legði hún ekki mat á hvort gögn um kosti í vind­orku væru full­nægj­andi.

Misjöfn gæði gagna

Gæði gagna sem fylgdu vind­orku­kost­unum voru því mis­jöfn. Verk­efn­is­stjórn sendi því Orku­stofnun enn eitt bréfið um hvaða við­bót­ar­gagna væri þörf og hún beðin að kalla eftir þeim. Orku­stofnun skar list­ann yfir umbeðin gögn tölu­vert niður og kvaðst reiðu­búin að senda hann til umsækj­enda ef stjórnin óskaði þess sem í fram­hald­inu var gert. Var óskað eftir því að þeir aðilar sem hefðu sett fram hug­myndir að vind­orku­verum skil­uðu við­bótar gögnum fyrir miðjan júlí. Engin slík bár­ust.

Um haustið dró þó til tíð­inda er verk­efn­is­stjórn­inni barst til­kynn­ing frá Orku­stofnun um að sent yrði bréf til fram­kvæmda­að­ila vind­orku­vera með nýjum og upp­færðum lista yfir gagna­skil. Þannig voru öll gögn um vind­orku­kosti, sem þegar höfðu verið send inn, dregin til baka. Faghópar höfðu þá varið vikum í að rann­saka fimm kosti sem voru nægi­lega skil­greindir en gögnin sem þeim höfðu fylgt voru langt umfram það sem Orku­stofnun fór nú fram á. Engu að síður, segir í skýrslu verk­efn­is­stjórn­ar­innar, fór Orku­stofnun fram á að matsvinnu við þessa kosti yrði hætt meðan form­legrar afgreiðslu væri beðið. Eftir nokkrar deilur var nið­ur­staðan sú að verk­efn­is­stjórnin og fag­hóp­arnir unnu að mati á kost­unum fimm.

Tímamót

Orku­stofnun sendi síðan verk­efn­is­stjórn­inni vind­orku­kosti á nýjan leik sam­kvæmt hinu nýja fyr­ir­komu­lagi. Þar sem þeir fyrstu bár­ust ekki fyrr en 8. des­em­ber í fyrra, og voru enn að ber­ast um miðjan febr­úar í ár, reynd­ist ekki unnt að taka þá til mats og bíða þeir því afgreiðslu næstu verk­efn­is­stjórnar.

Í heild bár­ust verk­efn­is­stjórn­inni hug­myndir að 34 vind­orku­verum.

„Íslend­ingar standa á tíma­mótum varð­andi nýt­ingu orku­auð­linda því virkjun vind­orku er að hefj­ast af fullum krafti,“ skrifar for­mað­ur­inn Guðrún Pét­urs­dóttir í skýrslu verk­efn­is­stjórn­ar­innar. „Þótt vind­ur­inn sé óþrjót­andi er land undir vind­orku­ver það ekki. Landið er hin tak­mark­aða auð­lind í þessu til­felli.“ Hún bendir á að vind­myllur séu nú um 150 metra háar og fari hækk­andi. Þær séu því „afar áber­andi“ í lands­lagi og sjást víða að. „Vind­orku­ver munu valda miklum breyt­ingum á ásýnd lands­ins ef ekki verður var­lega farið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár