Átta virkjanir áformaðar á vatnasviði Hraunasvæðis

„Nýtt virkj­ana­á­hlaup“ er hafið á Aust­ur­landi að mati nátt­úru­vernd­ar­sam­taka. Margar smá­virkj­anir eru fyr­ir­hug­aðar í ám austan Vatna­jök­uls sem áður voru hluti af stærri virkj­ana­hug­myndum. Ham­ar­s­virkjun er stærst og yrði önnur stíflan 50 metrar á hæð.

Að minnsta kosti átta virkj­anir eru fyr­ir­hug­aðar á vatna­sviði Hrauna­svæð­is­ins á Aust­ur­landi. Sú stærsta, Ham­ar­s­virkjun sem Arctic Hydro áformar, er meðal þeirra tólf nýju virkj­ana­kosta sem verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar hefur nú fengið til með­ferðar. Virkj­unin yrði í Ham­ars­firði í Djúpa­vogs­hreppi og upp­sett afl hennar 60 MW. Arctic Hydro hefur á síð­ustu árum fengið rann­sókn­ar­leyfi fyrir tveimur öðrum virkj­unum á svæð­inu. Önnur þeirra er Geit­dals­ár­virkjun á Fljóts­dals­hér­aði, sem þegar er orðin umdeild.

Upp­taka­svæði ánna austan Vatna­jök­uls eru Hraunin sem til forna nefnd­ust Svið­in­horna­hraun. Þær renna um langa og lit­ríka dali og ein­kenn­ist umhverfið meðal ann­ars af smá­jöklum, vötnum og stöflum hraun­laga.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem áformað er að virkja á þessu svæði. Orku­stofnun lagði til hug­mynd um 126 MW Hrauna­virkjun til Beru­fjarðar, eins og hún nefn­ist, í 3. áfanga ramma­á­ætl­unar. Hug­myndin er í bið­flokki sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu. Önnur virkjun, Hrauna­virkjun til Suð­ur­dals í Fljóts­dal, sem Orku­stofnun lagði einnig til, hlaut sömu örlög. Sú hug­mynd gerir ráð fyrir 115 MW virkjun. Ákvörðun verk­efn­is­stjórnar byggði á því að ekki lægju fyrir nægj­an­leg gögn.

Svo horft sé enn lengra í bak­sýn­is­speg­il­inn voru virkj­anir á Hrauna­svæð­inu fyr­ir­hug­aðar sem hluti af risa­vax­inni Hrauna- og Jök­ulsár­veitu við upp­haf ald­ar­innar. Sú veita tók m.a. til Kára­hnjúka, Eyja­bakka og vatns­falla á Hrauna­svæð­inu.

Hug­mynd­irnar átta sem eru til skoð­unar á svæð­inu nú, í mörgum þeirra áa sem stóru virkj­an­irnar tvær gerðu ráð fyrir, eru nær allar undir 10 MW. Þar af leið­andi þurfa þær ekki lögum sam­kvæmt að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar. Orku­stofnun hefur gefið út rann­sókn­ar­leyfi vegna þeirra allra, fimm til Orku­söl­unnar ehf., sem er í eigu Rarik og þar með rík­is­ins, og þrjú til Arctic Hydro, félags sem er í 40% eigu Bene­dikts Ein­ars­sonar.

Undir fölsuðum formerkjum smávirkjana

„Í aðdrag­anda Kára­hnjúka­virkj­unar og aðliggj­andi Hrauna­veitna voru gefin fyr­ir­heit um að það þyrfti ekki framar að virkja meir fyrir austan. Nú, aðeins 15 árum síðar, er hins­vegar hafið nýtt virkj­ana­á­hlaup á rest­ina af ósnortnum víð­ernum á hálendi Aust­ur­lands og nú undir fölsuðum for­merkjum „smá­virkj­ana“ 9,9 MW,“ segir í bréfi frá Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum Aust­ur­lands og Land­vernd sem sent var nýverið til for­sætis-, fjár­mála- og umhverf­is­ráð­herra.

Í bréf­inu er fjallað sér­stak­lega um fyr­ir­hug­aða Geit­dals­ár­virkjun og á það bent að sam­kvæmt samn­ingi Arctic Hydro við Fljót­dals­hérað sé talað um stækk­un­ar­mögu­leika virkj­un­ar­innar. Þar með yrði hún komin yfir stærð­ar­mörkin sem þarf til fag­legrar með­ferðar í ramma­á­ætlun.

Hraunasvæðið. Á kortinu má sjá staðsetningu þeirra virkjanahugmynda sem Orkustofnun hefur gefið út rannsóknarleyfi á sem og virkjanir sem þegar eru á svæðinu.
Hrauna­svæðið. Á kort­inu má sjá stað­setn­ingu þeirra virkj­ana­hug­mynda sem Orku­stofnun hefur gefið út rann­sókn­ar­leyfi á sem og virkj­anir sem þegar eru á svæð­inu.

Í des­em­ber 2016 kynnti Orku­stofnun fyrir atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu hug­mynd að smá­virkj­ana­verk­efni sem hefði það að mark­miði að stuðla að auk­inni raf­orku­fram­leiðslu á lands­byggð­inni. Stofn­unin kall­aði í kjöl­farið eftir hug­myndum og kynnti það fyrir áhuga­sömum. Við­brögðin létu ekki á sér standa. Á síð­ustu árum hefur stofn­unin gefið út mörg rann­sókn­ar­leyfi vegna hug­mynda að virkj­unum undir 10 MW.

Í haust, er Orku­stofnun kall­aði eftir virkj­ana­kostum til með­ferðar í 4. áfanga ramma­á­ætl­unar, kom fram í til­kynn­ingu að gera mætti ráð fyrir að verk­efn­is­stjórn fjall­aði um alla virkj­ana­kosti sem eru þegar í bið­flokki. „Ef aðilar vilja að verk­efn­is­stjórn fjalli um nýjar útfærslur á þeim virkj­un­ar­kostum sem eru í bið­flokki í dag, geta þeir sent þær hug­myndir til Orku­stofn­unar,“ stóð í til­kynn­ing­unni.

Sú stað­reynd að 3. áfangi ramma­á­ætl­unar er enn ófrá­geng­inn, fjórum og hálfu ári eftir að verk­efn­is­stjórn skil­aði loka­skýrslu, hefur mögu­lega einnig haft áhrif á það að virkj­ana­hug­myndir sem þar voru flokk­aðar í bið­flokk hafa sumar hverjar tekið á sig aðra mynd. Fyr­ir­huguð Haga­vatns­virkjun er dæmi um slíkt og Hrauna­virkj­an­irnar tvær nú sömu­leiðis.

Óvirkjuð orka í boði

Í gögnum sem Orku­stofnun sendi til verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar árið 2015 vegna Hrauna­virkj­an­anna sagði að „mikil rennsl­is­orka“ væri „í boði“ á Hraunum austan við Vatna­jökul og að „óvirkjuð orka“ á svæð­inu væri af stærð­argráðunni 1500-2000 GWh á ári og um 250-300 MW. Hug­mynd­irnar gerðu ráð fyrir tíu 5-60 metra háum stíflum, sam­tals rúm­lega 11 kíló­metrum að lengd. Nýta átti afrennsli vatns af hálend­is­hluta fimm vatna­sviða, m.a. Hamarsár og Geit­dalsár.

Horft inn eftir Hamarsdal. Hamarsá rennur um dalinn miðjan.
Horft inn eftir Ham­ars­dal. Hamarsá rennur um dal­inn miðjan.

Í skýrslu sem Mannvit vann fyrir Ham­ar­s­virkjun ehf. (sem er í eigu Arctic Hydro) og er nú komin til verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar, segir að til­hög­unin nú geri ráð fyrir að virkja ein­göngu vatna­svið Hamarsár. Í henni kemur þó fram að þrjár aðrar ár yrðu fyrir áhrifum og veitt að hluta inn í fyr­ir­huguð aðrennsl­is­göng.

Hamarsá á upp­tök sín í smá­vötnum og tjörnum á Hraunum og er Ham­ars­vatn, norður af Þránd­ar­jökli, stærst. Yrði Ham­ar­s­virkjun að veru­leika yrði vatni miðlað á tveimur stöðum, ann­ars vegar í Ham­ars­vatni og svo í inn­takslóni í Vest­ur­bót. Við Ham­ars­vatn yrði gerð þriggja kíló­metra löng stífla, mest 15 metra há. Vatninu yrði miðlað í inn­takslónið neðar í far­vegi árinnar. Þar yrði reist önnur stífla, tæp­lega kíló­metri á lengd. Hún yrði mest fimm­tíu metrar á hæð.

Skert og stýrt rennsli í fossum

Frá inn­takslóni yrði vatni veitt um aðrennsl­is­göng að Ytri-Þrándará. Gert er ráð fyrir að veita ánni Morsa og Ytri-Þrándará inn í aðrennsl­is­göngin og einnig er gert ráð fyrir því að veita efsta hluta af Leir­dalsá í Ytri-Þrándará með veitu­skurði. Stöðv­ar­hús er sam­kvæmt skýrsl­unni fyr­ir­hugað inni í Afrétt­ar­fjalli, um 2,3 kíló­metra frá Hamarsá.

Samkvæmt skýrsl­unni er talið að helstu umhverf­is­á­hrif fyr­ir­hug­aðrar fram­kvæmdar yrðu á fossa sem njóta sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. „Í Hamarsá eru margir fossar og verður stýrt rennsli á fossum frá Ham­ars­vatni að inn­takslóni og skert rennsli í fossum frá inn­takslóni að frá­rennsl­is­göngum. Einnig verður skert rennsli í fossum í Morsa, Ytri-Þrándará og Leir­dalsá.“

Fossarnir afturkræfir

Svo segir: „Hafa ber í huga að allir þeir fossar sem hafa skert eða stýrt rennsli eru að fullu aft­ur­kræfir ef kom­andi kyn­slóðir kjósa svo.“ Þá kemur fram að önnur fyr­ir­sjá­an­leg áhrif séu helst þau að óbyggð víð­erni myndu skerð­ast „en hafa ber í huga að til­tölu­lega stutt er í veitur Kára­hnjúka­virkj­unar og Gríms­ár­virkj­unar“.

Í skýrsl­unni stendur að ferða­menn á svæð­inu séu fáir vegna lélegra sam­gangna en með virkjun myndi „opn­ast mögu­lega á aðgang ferða­fólks og íbúa nær­svæðis til að nýta svæðið betur“.

Í jaðri Hraunasvæðis við botn Hamarsdals.
Í jaðri Hrauna­svæðis við botn Ham­ars­dals.

Hug­myndir að sjö öðrum virkj­unum á Hrauna­svæð­inu austan Vatna­jök­uls hafa verið til skoð­unar síð­ustu miss­eri. Orku­stofnun gaf út rann­sókn­ar­leyfi vegna þeirra á árunum 2016-2019.

Orkusalan með fimm rannsóknarleyfi

Fimm þess­ara leyfa hefur Orku­salan sótt um og fengið. Árið 2018 fékk hún leyfi til rann­sókna vegna fyr­ir­hug­aðrar 2-3 MW Gils­ár­virkj­unar sem myndi nýta fall­vatn Gilsár á Héraði. Sama ár fékk hún leyfi til rann­sókna á 2 MW virkjun Köldu­kvíslar á Austur-Héraði sem og vegna 8-10 MW Bessa­staða­ár­virkj­unar í Fljóts­dal.

Í fyrra fékk hún svo rann­sókn­ar­leyfi vegna 5 MW virkj­unar Kaldár og Ásdalsár í Jök­ulsár­hlíð. Fimmta virkj­un­ar­hug­myndin sem Orku­salan hefur fengið rann­sókn­ar­leyfi vegna er Ódáða­vötn niður í Suðurdal Skrið­dals. Þar á að kanna for­sendur fyrir 4 MW virkjun en á svæð­inu er þegar önnur virkjun fyr­ir­tæk­is­ins, Gríms­ár­virkjun.

Fyrir utan Ham­ar­s­virkjun og Geit­dals­ár­virkjun fékk fyr­ir­tækið Arctic Hydro rann­sókn­ar­leyfi vegna Kiðu­fells­virkj­unar árið 2016. Samkvæmt vef­síðu Orku­stofn­unar er það nú útrunnið. Sú virkjun yrði á vatna­sviði Fellsár og Kelduár í Fljóts­dals­hreppi og var afl hennar sam­kvæmt leyf­inu áætlað um 20 MW.

Margar ár sem nefndar eru í tengslum við þessar virkj­anir sem að framan eru taldar stóð til að virkja áður og eru enn hluti af virkj­ana­hug­myndum sem bíða þess að vera afgreiddar í til­lögu að ramma­á­ætlun.

Á göngu um Geitdal.
Á göngu um Geitdal.

Arctic Hydro fékk rann­sókn­ar­leyfi vegna Geit­dals­ár­virkj­unar árið 2016 og árið 2017 sam­þykkti Orku­stofnun að rann­sókn­ar­svæðið yrði stækkað. Í leyf­inu sagði að stækk­unin væri þess eðlis að „ber­sýni­lega“ væri „óþarfi að leita umsagnar umsagn­ar­að­ila að nýju“.

Í umsókn fyr­ir­tæk­is­ins um stækk­un­ina kom fram að athug­anir bentu til þess að hag­kvæmt gæti reynst að miðla vatni á svæði sem var utan þess sem fyrra leyfið tók til, nánar til­tekið í Leirudal. „Um gæti verið að ræða miðl­un­ar­lón sem í hæstu stöðu væri 2,8 km2 að flat­ar­máli,“ segir í umsókn­inni. Mesta hæð stíflu yrði átján metrar og lengd um 970 metrar sam­kvæmt frum­at­hug­unum.

Sameign þjóðarinnar

Fyrir tæpum tveimur árum gerðu Arctic Hydro og sveit­ar­fé­lagið Fljóts­dals­hérað með sér sam­komu­lag vegna áætl­ana um rann­sóknir fyr­ir­hug­aðrar virkj­unar í Geitdal. Þar er sveit­ar­fé­lagið skil­greint sem land­eig­andi.

Þetta segja Land­vernd og Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Aust­ur­lands ekki fylli­lega rétt í nýlegu bréfi sínu til þriggja ráð­herra. „Athugun okkar bendir til þess að stór hluti af því svæði sem samn­ing­ur­inn nær til sé eign­ar­land rík­is­ins. Því er um sam­eign þjóð­ar­innar að ræða, land í rík­i­s­eigu sem verður hugs­an­lega þjóð­lenda í fram­tíð­inni. Engu að síður virð­ist sem fram­an­greindur samn­ingur veiti rétt­hafa umtals­verða heim­ild og lof­orð á öllu því land­svæði sem um er að ræða.“

Fossar í Geitdal. Vatnsmagn í Geitdalsá sveiflast töluvert yfir árið.
Fossar í Geitdal. Vatns­magn í Geit­dalsá sveifl­ast tölu­vert yfir árið.

Í bréf­inu kemur enn fremur fram að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi stað­fest að við­ræður hafi staðið yfir á vegum rík­is­ins við sveit­ar­fé­lagið Fljóts­dals­hérað um hvernig skuli staðið að skipt­ingu á end­ur­gjaldi fyrir vatns­rétt­indin í tengslum við áform um Geit­dals­ár­virkjun. Að sögn ráðu­neyt­is­ins liggja drög að sam­komu­lagi fyrir sem gera ráð fyrir jafnri skipt­ingu end­ur­gjalds vegna nýt­ingar á auð­lind­inni, en ekki hefur verið gengið frá und­ir­ritun þess. Ráðu­neytið neitar hins vegar að afhenda sam­komu­lagið fyrr en það hefur verið gengið end­an­lega frá því.

Innan miðhálendislínu

„Vatna­svið áform­aðar Geit­dals­virkj­unar er innan mið­há­lend­is­línu á öræfum Aust­ur­lands sem nefnd eru Hraun,“ segir í bréfi sam­tak­anna. „Sá hluti Hraun­anna sem ekki er undir beinum áhrifum mann­virkja Kára­hnjúka­virkj­unar er eðli­legur hluti þess þjóð­garðs á mið­há­lend­inu sem rík­is­stjórnin áformar.“

Mælast sam­tökin í bréf­inu til þess að ríkið afhendi ekki nýt­ing­ar­rétt á umræddu vatna­sviði, svæði sem Óbyggða­nefnd er að hefj­ast handa við vinnu á afmörkun á þjóð­lendum.

Virkj­ana­hug­mynd­irnar átta sem síð­ustu ár hafa verið rann­sak­aðar með leyfi Orku­stofn­unar á Hrauna­svæð­inu eru sam­tals um 110 MW.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár