Bjarni Benediktsson: Sala á bönkum verður að vera opin, gagnsæ og allir að sitja við sama borð

Það hefði verið óráð að stilla bara upp stöðugleika­skatti sem leið fyrir kröfuhafa föllnu bankanna til að geta lokið slitum á búum þeirra. Með því að bjóða upp á stöðugleika­skilyrðin sem valkost hafi verið að sýna fram á að ekki væri einungis um tekju­öflunar­aðgerð að ræða heldur væri undir­liggjandi tilgangur ríkisins að losa um fjármagns­höft. Það mun skipta gríðar­lega miklu máli að stíga varlega til jarðar við sölu á eignar­hlutum í Lands­bankanum, ganga úr skugga um að þar muni allir sitja við sama borð og tryggja dreifða eignar­aðild. Þetta er meðal þess sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, sagði í viðtali við Kastljós í kvöld.

Óráð að leggja bara á stöðugleikaskatt


Bjarni ræddi þar nýjar vend­ingar við losun hafta, en í nótt var til­kynnt um að ríkið muni eign­ast Íslands­banka að öllu leyti sem hluta af stöð­ug­leika­fram­lagi slita­bús Glitnis. Hann svar­aði einnig gagn­rýni um að íslenska ríkið væri að gefa slita­bú­unum afslátt með því að leggja ekki á þá stöð­ug­leika­skatt upp á 39 pró­sent sem myndi skila fleirum krónum til rík­is­ins, eða allt að 850 millj­örðum króna. Stöð­ug­leika­fram­lögin munu skila lægri upp­hæð til rík­is­sjóðs.

Bjarni sagðist ekki líta á losun hafta sem tekju­öflunar­leið heldur lausn á undir­liggjandi vanda sem útheimti höftin. Hann efast um að það hafi getað komið til álita að vera eingöngu með skatta­leiðina á borðinu. Það hefði verið óráð að gera það, að mati Bjarna. Með því að bjóða upp á stöðugleika­skilyrði sem valkost sýndi ríkið fram á að það væri ekki bara að sækja sér tekjur heldur leysa vanda. En þá þyrfti það líka að taka því þegar kröfu­hafar slita­búanna reynast tilbúnir til að mæta skilyrðunum, sem Bjarni telur að þeir séu nú að gera.

Hann segir að hagsmuna þjóðarinnar hafi verið gætt í málinu. "Ég held að við séum hér með aðgerðir sem eru algert einsdæmi," sagði Bjarni. Aldrei áður hafi verið farið fram á afskriftir á eignum sem nema heilum fjárlögum ríkis. Umskiptin sem verða við losun hafta geti breytt aðstæðum Íslendinga mjög mikið til góðs. Aðspurður um hvenær Íslendingar geti búist við að höftum verði lyft segir Bjarni að það geti gerst eftir að útboð á aflands­krónum fer fram. Það útboð mun fara fram í kjölfar þess að slitum á búum Glitnis, Kaupþings og Lands­bankans lýkur.

Allir þurfa að sitja við sama borð


Íslenska ríkið hefur einu sinni einka­vætt banka­kerfi. Einka­væð­ing­ar­ferlið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir spill­ingu, ógagn­sæi og ófag­mennsku alla tíð síðan. Bank­arnir sem ríkið seldi voru allir orðnir gjald­þrota örfáum árum eftir að þeir voru einka­væddir.

Sú einka­væðing hefur skilið eftir mikla tortryggni hjá íslenskum almenningi þegar kemur að sölu ríkis­eigna og eignar­haldi á fjármála­fyrirtækjum. Nýleg mál sem upp hafa komið í íslensku viðskipta­lífi, til dæmis sala á hlut í Simanum til valins hóps á mun lægra verði en öðrum bauðst í aðdrag­anda útboðs, hefur aukið mjög á þá tortryggni.

Í nótt var tilkynnt um að íslenska ríkið muni eignast Íslands­banka að fullu sem hluta af stöðugleika­greiðslu slitabús Glitnis, gangi hún eftir. Auk þess á ríkið Lands­bankann að mestu. Bjarni bendir á að saman séu þessir tveir bankar um fjórðungur af þjóðar­framleiðslu og ljóst sé að ríkið geti ekki átt þá til lengdar. Þegar hefur verið tilkynnt að ríkið ætli sér að selja 30 prósent hlut í Lands­bankanum á næsta ári. Bjarni sagði í Kastljósi að það þurfi að stíga hvert skrefi í banka­sölunni af varfærni. Ferlið þurfi að vera opið og gagnsætt. Það skipti gríðar­lega miklu máli að þar sitji allir við sama borð og að eignar­aðild verði dreifð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár