Píratar vilja að upplýsingar úr fyrirtækjaskrá verði ókeypis

Vilja gera upplýsingar fyrirtækja­skrár aðgengilegri almenningi og lögðu fram frumvarp á Alþingi í dag.

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp sem miðar að því að gera upplýsingar fyrirtækja­skrár aðgengilegri almenningi. Lagt er til að gjaldtöku fyrir rafræna uppflettingu í skránni verði hætt.

„Lagt er til að ekki skuli taka gjald fyrir rafræna uppflettingu í fyrirtækja­skrá og að sömu upplýsingar skuli vera aðgengilegar þar og ef greitt væri fyrir eintak af gögnum úr skránni. Til dæmis er nú aðeins hægt að fá upplýsingar um stjórn og ársreikninga félaga með því að greiða fyrir þær og telja verður að þær séu því ekki aðgengilegar almenningi,“ segir í greinar­gerð frum­varpsins sem lagt var fram á Alþingi í dag.

Hér má sjá frum­varpið í heild en flutnings­menn eru þingmenn Pírata, þau Björn Leví Gunnarsson, Ásta Guðrún Helga­dóttir, Birgitta Jóns­dóttir, Einar Brynjólfsson, Gunnar I. Guðmundsson, Halldóra Mogensen, Jón Þór Ólafsson, Smári McCarthy, Viktor Orri Valgarðsson, Þórhildur Sunna Ævars­dóttir.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár