Fimm í haldi lögreglu vegna sprengingarinnar í New York

Fimm voru hand­teknir á fjórða tímanum í nótt, og eru nú í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa komið að skipu­lagn­ingu sprengju­árásarinnar í Chelsea-hverfinu.

Sprengja sprakk í Chelsea-hverfinu á Manhattan í New York rétt um níu leytið á laugardags­kvöld, að staðar­tíma, og særði hún 29. Enginn lést, og þykir það krafta­verki næst. Andrew Cuomo, ríkis­stjóri í New York, lýsti því yfir í gær að sprengingin væri hryðju­verk og málið yrði rannsakað á þeim forsendum. „Þeir sem bera ábyrgð á þessari hryðjuverka­árás verða dregnir fyrir dómstóla,“ sagði Cuomo á blaðamanna­fundi. Fimm eru nú í haldi lögreglu, vegna gruns um að hafa komið að skipulagningu sprengju­árásarinnar.

Sprengibúnaður finnst í grennd

Skammt frá sprengju­svæðinu fannst sprengi­búnaður sem ekki hafði farið af stað. Önnur sprengja hefði því getað sprungið, og sagðist Cuomo ekki geta hugsað það til enda, ef það hefði gerst. Í raun væri það mikil heppni að enginn hefði látið lífið.

Sprengjan sprakk í eða við ruslagám á 23. stræti, á Manhattan. Í grennd eru vinsælar götur þar sem er fjöldi veitinga­húsa og verslana. Mikil hræðsla greip um sig þegar sprengjan sprakk, en allt tiltækt lið lögreglu var umsvifa­laust sent á vettvang, og staðir rýmdir í grennd. Skömmu eftir sprenginguna var viðbúnaður aukinn enn frekar, eftir að sprengjan í grennd, við 27. stræti, fannst.

Ekki er vitað hverjir bera ábyrgð á árásunum, en allt bendir til þess að þeim hafi verið ætlað að valda eins miklu manntjóni og mögulega var hægt. Sprengjurnar voru útbúnar þannig, að sprengju­brot færu sem víðast, að því er fram kom í máli Cuomo.

Fimm í haldi

Í nótt var staðfest af lögreglunni í New York að fimm væru í haldi lögreglu, vegna gruns um að hafa komið að skipulagningu árásanna. Að öðru leyti verst lögregla frétta.

Bill de Blasio borgar­stjóri vildi ekki tala um það með ákveðnum hætti, að um hryðjuverka­árás hefði verið að ræða, heldur ætti það eftir að skýrast eftir því sem rannsókn málsins yrði fram­haldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár