Þjóðleikhúsið tapar veðmáli!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Shakespeare verður ástfanginn sem er til sýningar í Þjóð­leikhúsinu um þessar mundir.

Þjóðleikhúsið: Shakespeare verður ástfanginn

Leikverk byggt á kvikmynda­handriti eftir Marc Norman og Tom Stoppard

Aðlögun að leiksviði: Lee Hall

Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson

Leik­stjórn: Selma Björns­dóttir

Tónlist: Jón Jónsson og Friðrik Dór

Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson

Búningar: María Th. Ólafs­dóttir

Lýsing: Ólafur Ágúst Stef­ánsson

Tónlistar­stjórn og útsetningar: Karl Olgeirsson

Hljóð­hönnun: Kristinn Gauti Einarsson og Kristján Sigmundur Einarsson

Sviðs­hreyfingar: Þórey Birgis­dóttir

Leikarar: Aron Már Ólafsson, Lára Jóhanna Jóns­dóttir, Stefán Hallur Stef­ánsson, Edda Björgvins­dóttir, Örn Árnason, Jóhanna Vigdís Arnar­dóttir, Jóhann G. Jóhansson, Guðjón Davíð Karlsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Atli Rafn Sigurðarson, Björn Ingi Hilmarsson, Sigurður Sigurjónsson, Hákon Jóhannesson, Bjarni Snæbjörnsson, Hilmir Jensson, Davíð Þór Katrínarson, Ágúst Örn B. Wigum, Ragn­heiður Steindórs­dóttir, Þórey Birgis­dóttir, Eygló Hilmars­dóttir og Skotta.

Shakespeare verður ástfanginn – Shakespeare in love – byggir á leikgerð Lee Hall, sem byggir á handriti eftir Marc Norman og Tom Stoppard sem kvik­myndað var og frumsýnt undir lok síðustu aldar og vakti feyki­vinsældir, enda einvalalið leikara sem þar fór með vel saminn texta sem sótti innblástur í texta og tíma Shakespeares og samtíma­höfunda hans, einkum Christopher Marlowes, sem einnig var frægt leikskáld þá, en hlaut aldrei viðlíka vinsældir og Vilhjálmur sjálfur – sem varð og er eitt ástsælasta leikskáld veraldar! Eða í það minnsta hins vestræna heims.

Shakespeare verður ástfanginn er rómantískur gaman­leikur og því hefur svosem verið haldið fram að hann hafi fyrst og fremst verið skapaður handa þeirri kynslóð kvenna (35+?) sem heldur menningunni uppi og sækir gjarnan í rómantík og gleði, kannski til að gleyma sinni leiðinlegu milli­stéttar­tilveru og ástlausu hjóna­böndum. Ekkert skal þó fullyrt um það hér, en þó er óhætt að staðfesta að Shakespeare verður ástfanginn er vissulega rómantískur gaman­leikur og ekki heyrðist eða sást betur á frum­sýningu Þjóð­leikhússins en að hann væri bara ágætlega saminn og auk þess vel og lipurlega þýddur af Kristjáni Þórði Hrafns­syni.

Um sýningu Þjóð­leikhússins verður það einkum sagt að leikhús­tæknin bæði ber af og ber sýninguna sem slíka ofurliði. Svo litið sé fyrst á sögu­þráðinn, þá hefst Shakespeare verður ástfanginn á því að hinn ungi og óþekkti Shakespeare þarf sakir skulda að skila af sér handriti að leik­sýningu – hann þjáist hins vegar af ritstíflu og kemst ekkert áleiðis fyrr en tvennt gerist í lífi hans: starfs­bróðir hans, Christopher Marlowe, kemur honum til hjálpar og ýtir sköpunar­gáfu hans úr vör og svo verður hann yfir sig ástfanginn af hinni fögru aðalsmær Víólu og sú ást leysir krafta hans úr læðingi og gerir honum kleift að halda skrifunum áfram. Víóla er vissulega yfir sig hrifin af Shakespeare en það er öðru fremur ást hennar á leik­listinni og draumurinn um að gerast leikari sem knýr hana – en eins og þekkt er var leikhúsið konum lokaður heimur á tímum Shakespeares. Það kemur í ljós að Shakespeare karlinn skuldar fleiri leikhús­jöfrum peninga uppá loforð um handrit og nú verður hann alldeilis að leika mörgum skjöldum til að halda æru og lífi. Það sjónar­spil kostar á endanum bæði ástina hans, hana Víólu, og líf hollvinar hans, Christopher Marlowes, og þótt Shakespeare haldi lífi í lok leiksins hefur hann endanlega tapað æru sinni og sakleysi, enda kennir hann sér um sviplegan dauða Marlowes. Endirinn er sumsé frekar angurvær, en þökk sé Elísabetu I, Englands­drottningu, fellur allt í ljúfa löð áður en yfir lýkur og Vilhjálmur og Víóla fá hvort annað um það leyti sem tjaldið fellur.

Þetta er sumsé ljúfur rómantískur gaman­leikur með angurværu ívafi. Slíkir leikir geta verið einkar þekkilegir og eiga reyndar oftar heima á fjölum einka­leikhúsa erlendis en virðulegra þjóð­leikhúsa, en það fer lítið fyrir einka­leikhús­menningu hér á landi og því hefur sá misskilningur einatt vaðið uppi að það væri hlutverk Þjóð­leikhúss Íslendinga að standa skil á þess konar leiklist, sem margir kalla „léttmeti“. Það má ræða, enda þykir kannski hverjum sitt um það; hins vegar má vísa til reglu­gerðar um hlutverk Þjóð­leikhúss þar sem segir um hlutverk þess:

“… að sviðsetja árlega fjöl­breytt úrval innlendra og erlendra sjón­leikja, glæða áhuga lands¬manna á leiklist, auðga leikhús­menningu í landinu og stuðla að þróun sviðs­lista með því að efla íslenska leikritun og hlúa að nýsköpun á vettvangi leik­listarinnar. Þjóð¬leik¬húsið skal leggja sérstaka rækt við íslenska tungu og kappkosta að vera til fyrir­myndar um listrænan flutning leikverka.”

Það er skoðun undir­ritaðs að það er ekkert að því að Þjóð­leikhús Íslendinga taki „léttvæga“ leiklist upp á sína arma. Það má vel hugsa sér að það „glæði áhuga lands­manna á leiklist“ og lífið er nú einu sinni fjöl­breytilegt og má eflaust fela í sér að það sé hluti af skyldum þjóð­leikhúss að sýna einn og annan rómantískan gamanleik með angurværu ívafi. Það er því einkar leitt að þess sér engin merki, hvorki í leik­stjórn eða leik, að Shakespeare verður ástfanginn sé þess konar leikur. Hér vantar nefnilega átakanlega þrennt: rómantík, gaman og angurværð.

Það skal tekið fram, að sýning Þjóð­leikhússins á Shakespeare verður ástfanginn er að mörgu leyti vel gerð og vönduð. Leikmynd Finns Arnar Arnar­sonar er listavel gerð, nýtir til fulls sviðs­rýmið og er auk þess hluti af frásögninni og á ekki lítinn þátt í að fleyta henni áfram. Það er gaman að sjá slíkt og þá ekki síður gaman að sjá hugmynda­ríka og stíl­hreina lýsingu Ólafs Ágústs Stef­ánssonar; reyndar hefði sá sem þetta ritar gjarnan viljað sjá ívið betur andlit persóna verksins á forsviði, en það má flokka undir aðfinnslu þess sem farin er að daprast sjón, auk þess sem virtist eitthvað misráðið að lýsa með appelsínu­gulum blæ þegar persónurnar í atriðinu tala um að þær njóti birtu af mána. En þetta má kannski flokka undir smáatriði og smámunasemi af hálfu undir­ritaðs. En undir býr stærra vandamál.

Tónlist Jóns Jónssonar og Friðriks Dórs er smekkleg svo langt sem hún nær, en hún ögrar hvergi rómantíkinni í gaman­leiknum, skapar hvergi spennu og er á köflum óþægilega truflandi þar sem hún er látin óma undir samræðum persónanna á sviðinu, rétt eins og þegar verið er að skapa stemningu í kvikmynd.

Búningar Maríu Th. Ólafs­dóttur eru fallegir og lyfta fram eins vel og hægt er tímabili sögunnar en ekki verður sagt að þeir hjálpi til við að skilja þá sögu sem verið er að segja; það verður ekki séð að neinn búningur geri meira en að setja karakter sinn í ákveðið tímabil og þar með búið.

Hér má þegar finna ákveðið misræmi í listrænni stefnu leik­sýningarinnar: Leik­myndin er beinlínis hluti af framvindu sögunnar með hreyfingum sínum og þeim blæ sem skapast þegar hún er lýst á mismun­andi hátt. Búningarnir, þótt fagrir séu, staðsetja tímabilið, en gefa ekkert í skyn um innbyrðis samhengi persóna, markar þeim aðeins ógreinilega stað í söguþræði og félags­legu samhengi – sem var þó nokkuð mikilvægt á þessum tíma.

Þegar kemur að leiknum er viðlíka stefnu­leysi, svo ekki sé talað um reiði­leysi, á ferðinni. Þó skal getið um frammistöðu nokkurra leikara, sem tekst að skara fram úr og sýna hvað um ræðir: Þröstur Leó Gunnarsson leikur Fennyman, einn af fjár­mála­mönnunum og þróast yfir í að verða gripinn löngun til að taka þátt í uppfærslu leik­ritsins, sem loks hefur verið skrifað. Þröstur Leó glæðir þennan karl lífi, sál, rödd og önd þannig að í hvert sinn sem hann birtist þokar hann áleiðis stemningu og karakterinn fær þrívídd, hæð, dýpt og breidd. Auk þess heyrist hvert orð sem af hans munni hrýtur, skýrt, greini­lega og mælt fram af innlifun með öllum þeim blæbrigðum sem þarf.

Þá er Lára Jóhanna Jóns­dóttur ekki síðri þegar kemur að sköpun karakters, hún leikur hina fögru Víólu og fer léttilega með þótt hún ætti í nokkrum vandræðum með talandann og burð raddar í upphafi, setti hljóminn helstil ofarlega í brjóst­kassann sem dró úr mætti hljóm­botns. Hins vegar átti hún í engum vandræðum með rödd eða radd­beitingu þegar hún brá sér í gervi alter egós Víólu og varð leikarinn Thomas Kent; þar sýndi Lára Jóhanna að hún hefur giska gott vald á þeim tæknilegu meðulum leikarans sem þarf til að glæða karakter lífi – og ekki svo lítilli kómík!

Aðrar persónur verksins urðu frekar mátt­litlar þegar kemur að karakter­sköpun. Meira að segja gamal­reyndir leikhús­refir eins og Örn Árnason og Sigurður Sigurjónsson fengu lítil tækifæri til að sýna hvers þeir eru megnugir og það má telja nokkurt afrek – eða ekki! – þegar tekst í einni sýningu að láta þá skila miðlungs­verki!

Hvað sem segja má um einstaka ljósa punkta, líður sýningin fyrir það að enginn virðist vita hvaða sögu er verið að segja, né heldur hvort verið sé að setja á svið leikverk eða herma eftir kvikmynd. Hinir mismun­andi þræðir sögunnar fá allir sama vægi, sem veldur því að áherslur hvers atriðis fara forgörðum vegna þess að þær verða jafnar og missa þar með gildi sitt sem áherslur, sem vörður sem fleyta sögunni áfram og gera okkur áhorf­endum kleift að greina hismið frá kjarnanum. Hér er hreinlega enginn fókus, allt jafn óskýrt.

Þessu má lýsa með tilvitnun í sýninguna sjálfa: Fennyman Þrastar Leó hrópar upp yfir sig þegar hann fær að vita að hann eigi að leika hlutverk lyfsalans: „Ég skal LEIKA lyfsa ... Nei, ég skal VERA lyfsalinn!“ – og gerir þar með grein fyrir því hvað felst í því að vera ekta á sviði. Betur að upphrópun Fennymans hefði fengið að vera einkunnarorð sýningarinnar allrar!

Allt þetta klúður – því klúður hlýtur þetta að kallast! – verður því miður að skrifast á verk­stjórann og hinn listræna stjórn­anda, leik­stjórann Selmu Björns­dóttur. Hún er að mörgu leyti lipur verk­stjóri og tekst nokkuð örugglega að halda góðum anda og stemningu með sínu liði. Það hefur hún sýnt gegnum tíðina. Það eru líka allir í stuði í sýningunni, það vantar ekki – en hér vantar átakanlega það sem kallað er persónu­leikstjórn og auga fyrir því sem skapar samúð áhorfenda með persónum leiksins: ekta tilfinningu, fram borinni í einlægni og af auðmýkt. Þannig má í fáum og fátæk­legum orðum lýsa list leikarans þegar hún rís hæst og áhorf­endur láta hrífast með, ganga sögunni á vald og láta sig örlög persónanna sig einhverju varða.

Í Shakespeare verður ástfanginn ber því miður ekkert á því. Ég hef áður gagnrýnt Selmu fyrir að dekra við það sem kalla má retórískan leikstíl, þar sem lögð er minni áhersla á tilfinningalíf persónanna. Þetta var mein í sýningunni um Ronju ræningja­dóttur, þar sem andi Astridar Lindgrens fór forgörðum vegna upphafins ræðustíls­talanda; hér hverfur rómantíkin eins og dögg fyrir sólu og gamansemin fer fyrir lítið – svo ekki sé minnst á angur­værðina elskulegu! – þegar leikarar byrja að belgja sig upp og æpa textann með tilheyrandi handapati og látum sem eiga ekkert skylt við karakter­sköpun. Það er sömuleiðis nokkurt afrek – eða ekki! – þegar beinlínis er verið að flytja gamanleik!

Verst bitnar þetta þó á leik­aranum í titil­hlutverkinu, Aroni Má Ólafssyni. Hann er ungur leikari og hefur hér fengið tækifæri sem fáum hlotnast. Aron Már er kröftugur leikari með góða nærveru á leiksviði og á vel að geta valdið því hlutverki sem honum er trúað fyrir og sem hann skilar eins vel og hann hefur burði til, en hér hefur hann verið illilega svikinn um þá persónu­leikstjórn sem hefði getað forðað honum frá verstu villunum þegar kemur að radd­beitingu og raddhljóm sem og sannfæringu í radd­beitingu og meðferð texta. Það verður ekki nógu oft á það bent, að það er á ábyrgð list­rænnar stjórnar sýningar og stjórnar leik­hússins sjálfs, að skilja ekki unga leikara sem eru enn í mótun úti á túni hvað þetta varðar.

Í Shakespeare verður ástfanginn er veðjað 50 pundum – óheyrilegri upphæð á tímum Shakespeares! – um það hvort leik­listin geti breytt viðhorfi manns til ástarinnar. Sýning Þjóð­leikhússins gerir það ekki, því miður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár