Að verða betri manneskja

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Gilitrutt í leik­stjórn Benedikts Erlings­sonar í Þjóð­leikhúsinu.

Þjóðleikhúsið: Gilitrutt

Leikgerð, brúðugerð, leikmynda­hönnun og tónlist: Bernd Ogrodnik

Leik­stjórn: Benedikt Erlingsson

Búningar: Þórunn Elísabet Sveins­dóttir

Leikmuna­gerð: Móeiður Helga­dóttir

Leikarar: Jón bóndi, Freyja húsfreyja, Gilitrutt, Krummi, hestur Jóns bónda, ótal kindur, farfuglar og Bernd Ogrodnik

Það heyrir til undan­tekninga að skrifað sé um sýningar sem hafa verið á fjölunum í nær áratug. En hér er um að ræða sýningu sem er fyrir löngu orðin klassísk og hefur alla burði til að vera það áfram um ókomna tíð; auk þess á hún það svo fyllilega skilið að um hana sé fjallað, hún er feykigóð og svo er hún ástaróður höfundarins, Bernd Ogrodniks, til Íslands. Það verður einfald­lega ekki hjá komist að vekja athygli á henni svo áhorf­endur megi rata á hana, njóta hennar og meðtaka þann mikilvæga boðskap sem hún hefur geyma.

Nú væri við hæfi að láta lesendur giska á hvað þessi sýning heitir og það væri vissulega í anda sögunnar – en hér skal ekki tvínónað við hlutina og sýningin nefnd sínu rétta nafni þegar í stað: Gilitrutt! Og veit nú heimur allur (og húsfreyja í ofanálag) hvað hún heitir.

Þjóðsagan um Gilitrutt er ein af perlum íslenskra þjóðsagna, og hefur mjög líklega verið sögð til varnaðar börnum (og trúlega full­orðnum líka!) sem sýndu minnstu tilhneigingu til að slá slöku við eða gera sig sek um eina af verstu dauða­syndunum: letina – letina, sem aðeins kemur illu til leiðar og er ávísun á langa vist í hreinsunar­eldinum. Sú heimsmynd – um refsinguna sem beið þeirra sem gerðu sig seka um einhverja af hinum alræmdu dauða­syndum og ríkti á sínum tíma var mjög trúlega mikil­vægur hluti af andlegum innviðum þjóðarinnar, en er nokkuð örugglega liðin undir lok. Engu að síður er máltækið forna í fullu gildi: sitjandi kráka sveltur, en fljúgandi fær. En með nýjum tímum breytast einnig hinir andlegu innviðir.

Gilitrutt er í stuttu máli ævintýri um lata bóndakonu, Freyju, sem bónda sínum til mikillar raunar nennir ekki sinna búverkum. Hann krefur hana um að spinna ull og vefa í vaðmál en því nennir hún ekki. Þá birtist ófrýnileg kerling sem býðst til að spinna ullina og vefa í vaðmál innan tilskilins tíma gegn því að bónda­konan geti komist að nafni hennar. Bónda­konan er guðs lifandi fegin að sleppa við vinnuna og gengur að þessum skilmálum. Þegar á líður verður hún þó æ örvæntingar­fyllri yfir því að geta ekki komist að nafni kerlingar og trúir á endanum Jóni bónda fyrir raunum sínum. Hann skilur að kerlingin sé tröll­skessa sem muni taka konu hans frá honum takist henni ekki að komast að nafni kerlingar. Fyrir tilviljun kemst svo bóndinn að nafni kerlingar þegar hann gengur framhjá kletti og heyrir högg þegar vefur er sleginn og sér þá kerlingu þar sem hún syngur nafn sitt: Gilitrutt. Hann segir konu sinni frá því sem hann hefur séð og heyrt og þegar kerlingin kemur með vefinn getur bónda­konan giskað á nafnið og sloppið úr klóm tröll­skessunnar. Það er að sjálfsögðu óþarft að geta þess að bónda­konan lærir sína lexíu og verður uppfrá þessu bæði iðin og vinnusöm.

Sagna­minnið um Gilitrutt lifir með mörgum þjóðum og finna má þjóðsögur sem spinna í kringum það á ótal vegu; íslenska þjóðsagan er frekar einföld, amk. eins og hún kemur fyrir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar; og þótt spyrja megi ýmissa spurninga um hvers vegna atburðir gerast eins og raunin er í þjóð­sögunni, þá er boðskapurinn ákaflega skýr: leti er af hinu illa.

Spurningin er, hvort og hvernig hægt sé að gera þennan boðskap lifandi fyrir ungu nútíma­fólki, en sýningin er sniðin að yngstu áhorf­endunum.

Svarið er jafn einfalt og það er snjallt: Með því að sýna þrennu trúnað og traust – sögunni, listrænum meðulum leik­hússins og hinum ungu áhorf­endum; það er fyrir töfra Bernd Ogrodniks sem leik­húsmanns, að honum tekst að gera Gilitrutt svo gersam­lega að sinni eigin sögu að það er eins og við séum að horfa á splunkunýja sögu, hann trúir líka á hana og mátt hennar og beitir af einstöku næmi og þekkingu frásagnar­möguleikum leik­hússins og svo treystir hann af einlægni áhorf­endum sínum til að meðtaka söguna og taka þátt í henni – sem er grund­völlur innlifunar og samkenndar.

Bernd Ogrodnik heldur fyllsta trúnað við söguna í leikgerð sinni, en gerir á henni nokkrar mikil­vægar breytingar. Í meðförum Bernds verða atburðir sögunnar skýrari og skiljanlegri, enda krefst hin leikræna frásögn þess. Það er t.d. afar mikilvæg og að sama skapi snjöll breyting þegar hann bætir hrafninum í hóp persóna leiksins. Það er einkar viðeigandi breyting. Hrafninn hélt sig einatt við byggð og bæi þar sem matar var von og um hann spannst marg­vísleg þjóðtrú sem var fallin til að vekja bæði von og ótta. Kannski er einna þekktust þjóðsagan af hrafninum og Vilborgu Herjólfs­dóttur land­námsmanns í Vestmanna­eyjum, en sá hrafn lokkaði Vilborgu frá bænum og bjargaði henni frá því að lenda undir skriðu sem hefði ella orðið henni að bana.

Hér fær hrafninn það mikilvæga hlutverk að sýna muninn á þeim hjónum, Jóni bónda og Freyju, konu hans og hvaða afleiðingar sá munur hefur; Jón bóndi er örlátur og man eftir því að gefa hrafninum meðan Freyja húsfreyja er löt og gleymir krumma. En hrafninn veit sínu viti og leiðir Jón bónda að lausn gátunnar sem verður til þess að frelsa megi húsfreyju úr heljar­greipum Gilitruttar. Þetta er hugvit­samleg lausn, því þá er frelsun húsfreyju rökrétt, hún verður af völdum hins (hálf)guðlega valds, en hrafninn er vissulega hluti af þeirri guðlegu náttúru sem okkur ber að umgangast af virðingu ef okkur á vel að farnast í lífi, starfi og leik. Boðskapur sögunnar nálgast þannig það, sem hefur verið einkenni á lífs­hlaupi íslensku þjóðarinnar: samspilið milli manns og náttúru, hvernig maðurinn hefur verið nátt­úrunni háður um lífs­viðurværi sitt. Gilitrutt í meðförum Bernds Ogrodniks ýtir undir þann skilning – sem er bæði nútíma­legur og mannlegur í senn.

Bernd Ogrodnik gerir allar brúður sjálfur, hann hannar og smíðar leikmynd og semur og flytur alla tónlist í Gilitrutt, eins og reyndar flestum ef ekki öllum sýningum sínum. Hér eru brúðurnar smáar, sem kallar á sérstaka áherslu á fókus, sem Bernd ferst einstak­lega vel úr hendi, enda fylgja áhorf­endur hverri augngotu hans og bendingu.

Leik­myndin er haganlega gerð og af miklu hugviti og þá má einnig segja að tónlistin sé kapítuli útaf fyrir sig; flautu­tónar og hlýlegir tónar harmonikku ásamt langspili sem leikið er undir slætti Jóns bónda er meðal þess sem myndar hljóðmynd sýningarinnar og á ósvikinn þátt í að efla töfra sagna­listar Bernds Ogrodniks.

Brúðu­leikhús er sérstök tegund leik­listar sem lýtur sínum eigin lögmálum og býr yfir sínum einstöku töfrum og til eru mörg mismun­andi afbrigði brúðu­leikhúss. Hér er brúðu­stjórn­andinn, Bernd, sýnilegur áhorf­endum og á stundum verða samskipti hans og brúðanna hluti af frásögninni, sem er hlýlegt og auðveldar áhorf­endum að samsama sig sögunni; hann byggir líka upp sterk tengsl við áhorf­endur, heilsar þeim í upphafi með flautu­leik, leiðir þá inn í salinn á Leik­húsloftinu og er allt til loka í góðu sambandi við áhorf­endur, örvar þá til að vera með í réttunum þegar Jón bóndi fer að smala og útskýrir þar sem þess þarf og býður áhorf­endum að koma fram að sýningu lokinni og skoða inn í undraheim leik­hússins baksviðs.

Bernd Ogrodnik er einn af fremstu brúðu­leikhús­listamönnum okkar tíma sem hefur ferðast til fjölda landa með brúðu­sýningar sínar. Hann á sitt heimasvið í Þjóð­leikhúsi okkar Íslendinga og það er vissulega mikill heiður fyrir bæði okkur sem þjóð sem og leikhúsið sjálft. Það er full ástæða til að hvetja börn á öllum aldri að taka foreldra sína, afa og ömmur í seiðandi heim Leik­húsloftsins og upplifa hvernig Freyja húsfreyja tekur sinna­skiptum og verður betri manneskja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár