Þúsundir hríðskotariffla á dönskum heimilum

Nú er komið í ljós að hríð­skota­rifflinum sem Omar El-Hussein notaði í tilræðinu á Austurbrú í Kaupmanna­höfn um síðustu helgi hafði verið stolið á heimili liðsmanns heima­varnar­liðsins fyrir nokkru. Félagar í heima­varnar­liðinu geyma rifflana á heimilum sínum en þeir eru eign hersins. Seinagangur og klúður í réttar­kerfinu varð til þess að Omar El-Hussein var látinn laus úr fangelsi áður en afplánun hans hefði átt að vera lokið.

Eftir ódæðin í Kaupmanna­höfn um síðustu helgi spurðu margir hvernig Omar El-Hussein hefði getað orðið sér úti um öflugan hríð­skotariffil, sem almenningur á ekki að geta komið höndum yfir. Grunurinn beindist strax að hernum enda hafði 44 slíkum rifflum verið stolið úr geymslum hans fyrir nokkrum árum. Rannsókn á morð­vopninu hefur leitt í ljós að því var stolið úr heimahúsi fyrir nokkru. Rifflar þessir (M-95) eru geysiöflugir, um það bil metri á lengd, vega með áföstum kíki rúm þrjú kíló og geta skotið allt að 900 skotum á mínútu.

Geymdir í skápum á ganginum


Í danska heima­varn­ar­lið­inu eru sam­tals um 50 þús­und manns, í flestum til­vikum fólk sem fengið hefur her­þjálfun. Heima­varn­ar­liðið var stofnað eftir lok síð­ari heims­styrj­aldar og hlut­verk þess í dag er einkum að ann­ast gæslu og stjórna umferð við ýmsar opin­berar athafnir og á hátíð­is­dögum. Starfið er ólaunað en ýmis kostn­aður, vinnu­tap og fleira er greiddur.

Allir 4328 félagarnir í heima­varnar­liðinu hafa yfir að ráða hríð­skota­rifflum, M-95, sem þeir geyma heima hjá sér. Með rifflinum hefur hver og einn fengið sérstakan læstan skáp sem skal vera festur í gólf eða vegg.

Þessir skápar eru þó ekki ramm­gerðari en svo að „vanur“ maður opnar hann á örfáum sekúndum. Enda er það svo að fjölmörgum rifflum hefur verið stolið frá heimavarnar­fólki og þess eru líka dæmi að ræningjar hafi neytt umráða­mann riffilsins til að opna skápinn. Þetta fyrir­komulag hefur iðulega verið gagnrýnt en hefur ekki verið breytt. Meðal þess sem hefur verið rætt um til að tryggja að vopnin lendi ekki í höndum annarra en heima­varnarmanna er að beita sömu aðferðum og grannarnir í Noregi og Svíþjóð.

Danski ódæðis­maðurinn Omar Abdel Hamid El-Hussein komst yfir hríð­skotariffil í eigu meðlims í heima­varnar­liðinu.

Svíar og Norðmenn hafa lása í byssunum


Svíar hafa í um tutt­ugu ár haft sér­staka lása á sínum her­rifflum og Norðmenn settu lása í sín vopn fyrir rúmum ára­tug. Slíkir lásar eru inni í byss­unni og til að hægt sé að nota vopnið þarf að opna lás­inn með lykli, sem ætíð er í vörslu ein­hvers ann­ars, til dæmis flokks­for­ingja í Heima­varn­ar­lið­inu. Hér í Danmörku hefur verið um það rætt að setja slíka lása í riffl­ana en ekki orðið af því. Lásar í alla riffla heima­varn­ar­liðs­ins kosta um það bil 8.5 millj­ónir (rúmar 170 millj­ónir íslenskar) sem eru miklir pen­ingar á sparn­að­ar­tímum.

Danski ódæðismaðurinn Omar Abdel Hamid El-Hussein komst yfir hríðskotariffil í eigu meðlims í heimavarnarliðinu.
Danski ódæð­is­mað­ur­inn Omar Abdel Hamid El-Hussein komst yfir hríð­skotariffil í eigu með­lims í heima­varn­ar­lið­inu.

Þingmenn sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við eru allir á einu máli um að koma verði í veg fyrir að „Pétur og Páll geti komist yfir og notað þessi hættulegu vopn,“ eins og einn þeirra orðaði það. Hvaða leið verður valin til að tryggja það er ókomið í ljós.

Var Omar El-Hussein látinn laus of snemma?


Þessa fyr­ir­sögn mátti lesa á danskri vef­síðu í vik­unni en þar var greint frá því að Omar El-Hussein hefði verið lát­inn laus í lok jan­úar eftir að hafa afplánað eitt ár af tveggja ára dómi sem hann hlaut í und­ir­rétti vegna hnífstungu­máls í nóv­em­ber 2013. Hann var hand­tek­inn í jan­úar í fyrra og settur í gæslu­varð­hald meðan dóms var beðið. Dómurinn féll 19. des­em­ber, tveggja ára fang­elsi, Omar El-Hussein áfrýj­aði strax til Eystri –lands­réttar. Rétt­ur­inn ætl­aði að taka málið fyrir í mars á þessu ári en lög­maður Omars El-Hussein sagð­ist ekki geta mætt í rétt­inn á þeim tíma og reyndar ekki fyrr en í ágúst næst­kom­andi. Þetta sam­þykkti Eystri-lands­réttur. Ef nið­ur­staðan þar hefði orðið sú sama og í und­ir­rétti yrði komið fram yfir þann tíma sem refs­ingin næði til vegna þess að að hér er það venja að þeir dæmdu sitji tvo þriðju refs­ing­ar­inna af sér. Af þessum ástæðum ákvað dóm­ari að Omari El-Hussein skyldi sleppt úr gæslu­varð­hald­inu, það var gert 30. jan­úar sl. (ekki á Þor­láks­messu í fyrra, eins og fyrst var greint frá). Ef málið hefði verið sett á dag­skrá rétt­ar­ins í mars (í næsta mán­uði) er lík­legt að Omari El-Hussein hefði verið gert að sitja inni þangað til dómur félli.

Þingmenn æfir


Þegar þetta spurð­ist út reidd­ust margir þing­menn heift­ar­lega. Tals­maður Venstre, stærsta flokks­ins á þing­inu, sagði að það næði ekki nokk­urri átt að ein­hverjir lög­fræð­ingar úti í bæ segð­ust ekki geta mætt þegar Eystri-lands­réttur ákveður að rétt­ar­höld fari fram. Það gangi ekki að lög­fræð­ingar geti þannig stjórnað dag­skrá dóm­stóla eftir eigin geð­þótta. Hann bætti svo við að auð­vitað hefði eng­inn getað séð fyrir að slíkt klúður hefði þessar ömur­legu afleið­ingar. Margir þing­menn hafa tekið í sama streng og vilja að það verði tryggt að dóm­stól­arnir ráði dag­skránni í sínum húsum, ekki menn úti í bæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár