Kvikmyndatökumaður ISIS er mögulega ekki Íslendingur

Það er mögulegt að Abu Hamza, sem flúði úr röðum ISIS-samtak­anna og veitti frétta­ritara The Economist í miðausturlöndum viðtal um innviði samtak­anna, hafi ekki farið rétt með þjóðerni kvikmynda­gerðar­mannsins sem hann sagði að hefði gengið til liðs við samtökin og væri að búa til myndbönd fyrir þau.

Í blogg­færslu eftir frétta­ritarann, Söruh Birke, sem birtist í fyrradag á heimasíðu New York Review of Books, var sagt að kvikmynda­gerðar­maðurinn væri íslenskur og að hann væri ástæðan fyrir því að myndbönd sem ISIS-samtökin nota til að laða að nýja fylgis­menn og áhorf­endur í Vestrænum ríkjum væru orðin fagmannlega unnin.

Greint var frá færslunni í íslenskum fjöl­miðlum, meðal annars Kjarnanum.

Í skriflegu svari við fyrir­spurn Kjarnans um full­yrðingar Abu Hamza segir Sarah Birke að það sé mögulegt að Hamza hafi gert mistök þegar hann sagði manninn vera af íslensku þjóðerni. Upplýsingarnar hafi verið hafðar eftir honum en ekki leitað annarrar stað­festingar.

ISIS-samtökin hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja myndbönd af liðs­mönnum sínum vera að afhöfða vestræna gísla á netið.

Utanríkisráðuneytið veit ekki um neinn


ISIS stendur fyrir íslamskt ríki Íraks í Sýrlandi og sam­tökin voru upp­haf­lega hluti af Al Kaída. Þau klufu sig síðar frá og þykja mun rót­tæk­ari en Al Kaída. ISIS-sam­tökin hafa náð undir sig stórum svæðum í Írak og Sýrlandi og berj­ast hat­ram­lega gegn þar­lendum stjórn­völdum. Fjöl­margir Evr­ópu­búar hafa gengið til liðs við sam­tökin und­an­farin miss­eri. Þau hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja mynd­bönd af liðs­mönnum sínum vera að afhöfða vest­ræna gísla á netið.

ISIS-samtökin hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja myndbönd af liðsmönnum sínum vera að afhöfða vestræna gísla á netið.
ISIS-sam­tökin hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja mynd­bönd af liðs­mönnum sínum vera að afhöfða vest­ræna gísla á netið.

Kjarninn greindi frá því í gær að utan­ríkis­ráðuneytinu væri ekki kunnugt um að Íslend­ingur starfi með eða hafi starfað með SIS-samtökunum með neinum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár