Alþingi hefur ekki yfirlit yfir ábendingar úr rannsóknarskýrslum

Forseti Alþingis segir það ekki hlut­verk emb­ætt­is­ins eða skrif­stofu þings­ins að taka saman ábend­ingar úr rann­sókn­ar­skýrslum Alþingis sem snúi að þing­inu sjálfu.

Ekki hlutverk Steingríms
Ekki hlut­verk Stein­gríms Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, segir það ekki hlut­verk for­seta að taka saman ábend­ingar úr rann­sókn­ar­skýrslum Alþingis sem beint sé að þing­inu sjálfu. Mynd: Pressphotos

Forseti Alþingis eða skrif­stofa þings­ins búa ekki yfir yfir­liti yfir þær ábend­ingar í rann­sókn­ar­skýrslum Alþingis sem sér­stak­lega er beint að Alþingi sjálfu. Þær hafa ekki verið teknar saman og lítur for­seti þings­ins ekki svo á að það sé hans hlut­verk, eða stjórn­sýslu Alþingis, að gera slíkt né heldur að tryggja að brugð­ist sé við ábend­ingum sem beint er til þings­ins. Það sé lög­gjaf­ar­valds­ins, þing­manna sjálfra, að gera það í sam­ræmi við meg­in­regl­una um sjálf­stæði Alþingis.

Þetta kemur fram í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Björn spurði meðal ann­ars um hvort for­seti hefði tekið saman yfir­lit yfir ábend­ing­arnar, hvernig tryggt hefði verið að þeim hefði verið fylgt eftir og hver bæri ábyrgð á að svo hefði verið gert.

Ekki hlutverk forseta

Í svar­inu kemur fram að slíkt yfir­lit hafi ekki verið tekið saman af hálfu for­seta Alþingis eða skrif­stofu þings­ins. Umræddar skýrslur varði ekki stjórn­sýslu á vegum Alþingis eða stjórn­sýslu sem þing­inu hafi verið sér­stak­lega falin sam­kvæmt lögum og því sé það ekki hlut­verk for­seta Alþingis að hlut­ast til um við­brögð við umræddum ábend­ingum, þó þær snúi að þing­inu sjálfu. Alþingi sjálft, lög­gjaf­ar­sam­koman, hafi fjallað um störf rann­sókn­ar­nefnd­anna sem um ræðir og beint til­mælum til stjórn­valda þegar við hefur átt. Þannig hafi nefnd níu þing­manna fjallað um ábend­ingar og til­lögur í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar á falli falli íslensku bank­anna. Sú nefnd hafi skilað þings­á­lykt­un­ar­til­lögu árið 2010 um afgreiðslu skýrsl­unnar frá Alþingi og var sú til­laga sam­þykkt.

Í svari for­seta segir enn fremur: „Í sam­ræmi við 8. mgr. 45. gr. laga um þing­sköp Alþingis hefur for­sæt­is­ráð­herra gert grein fyrir því í skýrslum sínum um með­ferð og fram­kvæmd álykt­ana Alþingis hvernig brugð­ist hefur verið við ábend­ingum og til­lögum rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.“

Björn Leví spurði einnig hver hefði verið til­nefndur ábyrgð­ar­að­ili umræddra mála. Í svari Stein­gríms kemur fram að það falli ekki undir stjórn­sýslu þings­ins að til­nefna slíkan aðila heldur leiði það af meg­in­regl­unni um sjálf­stæði Alþingis að þingið sjálft ákveði með hvaða hætti það vilji fram­fylgja álykt­unum sínum eða þeim rann­sóknum sem farið hafi fram á þess vegum. Það sé ekki hlut­verk for­seta.

 




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár