Brestir í kínversku bólunni

Kína er kapítalískt tilraunabúr. Um 40% af andvirði hluta­bréfa hafa gufað upp. Lífeyris­sjóðum leyft að braska með hlutabréf.

Sjanghæ
Sjanghæ Íbúar í Sjanghæ, stærstu borg Kína, eru 24 millj­ónir. Þeir voru 16 millj­ónir árið 2000. Mynd: David Wong

Menn standa nánast á öndinni, já, Peking-öndinni, yfir því verðfalli sem orðið hefur á mörkuðum víða um heim í kjölfar „hrunsins“ á Sjanghæ-hlutabréfa­markaðnum undan­farna daga. 24.ágúst 2015 er nú kallaður „svarti mánudagurinn“. Ótta­slegnir grein­endur og allskyns sérfræðingar reyna að grafast fyrir um orsakir þess sem er að gerast og einn þeirra sagði á CNBC að um gríðar­lega „leið­réttingu“ væri að ræða og nú væri mikil sálfræði í gangi. Þetta er gjarnan sagt þegar svona hlutir gerast. Af hverju ræða menn þá ekki við sálfræðinga? Sagt er að fjár­festar þjáist af „áhættu­fælni“ sem á mannamáli þýðir að þá skorti fífl­dirfsku. Þetta hrun í Sjanghæ er talið geta haft víðtæk áhrif og haldi minnkandi umsvif í Kína áfram er það mat sérfræðinga að það geti haft alvarleg áhrif, jafnt fyrir hrávöru­seljendur í Afríku og eða véla og tækjafram­leiðendur í Evrópu.

Leiðréttingin

Orðið leið­rétting (sem landinn ætti að kannast vel við) felur í sér að það sé verið að rétta eitthvað af sem er vitlaust eða rangt, einhverjar skekkjur. Dagblöð birta til dæmis leið­réttingar hafi þau farið með eitthvað vitlaust. Samkvæmt því sem þessi sérfræðingur sagði, þá hlýtur íslenska hrunið að hafa verið ein stærsta „leið­rétting“ Íslands­sögunnar. Loftbólur og blöðrur eru blásnar upp, hjarð­hegðun ríkir og síðan springur allt framan í menn. Það er leið­réttingin, eða eins og segir á ensku „what goes up, must come down“.

Tveggja tölu hagvöxtur liðin tíð

Nokkuð borð­leggjandi er að tími tveggja talna hagvaxtar í Kína er liðinn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár