Starfsfólki sárnar ummælin eftir að hafa sýnt Skúla hollustu

Alþýðu­samband Íslands gagnrýndi Skúla Mogensen harðlega á dögunum vegna ummæla hans um að íslenskir kjara­samningar hafi verið of íþyngjandi fyrir reksturinn. Fyrr­verandi starfs­menn WOW-air taka undir þá gagnrýni og segja sorglegt að Skúli kenni starfs­fólki um fall flug­félagsins og ætli þess vegna að ráða erlenda áhöfn takist honum að koma upp nýju flug­félagi.

Eins og sértrúarsöfnuður
Eins og sér­trú­ar­söfn­uður Fyrr­ver­andi flug­liði hjá WOW air líkti ástand­inu innan fyr­ir­tæk­is­ins, í kringum fall þess, við and­rúms­loft innan sér­trú­ar­safn­aða. Dæmi munu vera um að fyrr­ver­andi flug­freyjur félags­ins hafi látið ramma ein­kenn­is­bún­inga sína inn og hengt þá upp á veggi. Mynd: MANAV

Í samtali við Stundina segir fyrr­verandi flugliði að andrúms­loftið innan fyrir­tækisins í kringum og eftir gjaldþrot þess hafi helst minnt á sértrúar­söfnuð, þar sem starfs­fólk hafði sýnt fyrir­tækinu mikla hollustu og dæmi séu um að fyrr­verandi flug­freyjur hafi rammað inn búningana sína. Í ljósi þess að mikil liðsheild hafi skapast innan fyrir­tækisins og starfs­fólkið hafi sýnt mikla hollustu sé sárt að sitja undir orðum Skúla. Flugfreyju­félag Íslands tekur undir með fyrr­verandi starfs­mönnum og segir kveðjurnar kaldar frá Skúla.

Takk, Skúli

Flug­liðinn sem um ræðir kemur ekki fram undir nafni af ótta við afleiðingarnar í því andrúms­lofti sem hefur myndast á meðal fyrr­verandi starfs­manna flug­félagsins. „Fyrir og eftir gjald­þrotið myndaðist einhver gríðar­lega óheilbrigð meðvirkni innan félagsins. Ég veit til dæmis um flug­freyjur sem römmuðu búningana sína inn eftir gjaldþrot og hengdu svo upp á vegg heima hjá sér.“

Samtölin sem hann á við fyrr­verandi samstarfs­fólk sitt hjá WOW …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár