Enn bólar ekkert á ársreikningi félagsins sem hélt utan um Namibíustarfsemina

Átta mán­uðum eftir að Samherji Holding átti að skila inn árs­reikn­ingi til íslenskra yfir­valda þá hefur hann ekki borist. Félagið heldur utan um erlenda starf­semi sam­stæð­unnar, meðal ann­ars þann hluta sem er til rann­sóknar í Namibíu.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

Samherji Holding ehf., sá hluti sam­stæðu Samherja sem heldur utan um erlenda starf­semi, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árið 2019 þrátt fyrir að tæpir átta mán­uðir séu síðan að lög­bund­inn frestur til að skila slíkum inn til árs­reikn­inga­skrár rann út. Samkvæmt lögum eiga öll félög að skila inn árs­reikn­ingum fyrir 31. ágúst á hverju ári.

Hinn hluti sam­stæð­unnar, Samherji hf. sem heldur utan um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi og í Færeyjum, skil­aði sínum árs­reikn­ingi í byrjun októ­ber í fyrra. Sá hluti átti eigið fé upp á 63 millj­arða króna.

Samherji Holding átti eigið fé upp á rúma 58 millj­arða króna á núvirði í lok árs 2018, síð­asta árs­ins sem félagið hefur skilað árs­reikn­ingi fyrir.

Sam­an­lagt eigið fé Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, sem er í eigu tveggja fjöl­skyldna að nær öllu leyti, er því að minnsta kosti um 120 millj­arðar króna, og lík­ast til meira.

Sé árs­reikn­ingi ekki skilað á að sekta félög vegna van­skila á árs­reikn­ingi til árs­reikn­inga­skrár.

Verður skilað þegar hann er tilbúinn

Kjarninn spurð­ist fyrir um ástæður þess að tafir höfðu verið að skilum á árs­reikn­ingi Samherja Holding hjá félag­inu í byrjun árs. Sú fyr­ir­spurn var send á Margréti Ólafs­dóttur, aðstoð­ar­konu for­stjóra félags­ins, og Björgólf Jóhanns­son, sem þá var annar for­stjóra þess ásamt Þor­steini Má Bald­vins­syni. Björgólfur lét af störfum sem for­stjóri í febr­ú­ar­mán­uði og hefur Þor­steinn Már haldið einn um for­stjórataumanna síðan þá, líkt og hann gerði áður en Björgólfur kom til starfa síðla árs 2019.

Í svari Samherja, sem barst 7, jan­úar 2021, sagði að enn væri unnið að gerð árs­reikn­ings fyrir Samherja Holding, og að sú vinna hefði taf­ist af ýmsum ástæðum. „Það eru ákveðnar og skýrar reglur um það þegar árs­reikn­ingum er ekki skilað á til­ætl­uðum tíma. Frestur á skilum árs­reikn­inga hluta­fé­laga var fram­lengdur til byrjun októ­ber 2020 fyrir öll hluta­fé­lög. Árs­reikn­ingi 2019 fyrir Samherja Holding ehf. verður skilað þegar hann er til­bú­inn, sem verður innan ekki langs tíma.“

Samherji Holding skil­aði árs­reikn­ingi sínum fyrir árið 2018 inn til árs­reikn­inga­skrár fyrir lok ágúst­mán­aðar 2019. Það hefur aldrei gerst síðan að félagið var stofnað, árið 2012, að árs­reikn­ingi þess hafi ekki verið skilað innan rúm­lega ell­efu mán­aða frá því að upp­gjörsári lauk, þar til nú.

Samherji Holding er að uppi­stöðu í eigu Þor­steins Más, Helgu S. Guð­munds­dóttur fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, og Krist­jáns Vil­helms­sonar. Inni í þeim hluta starf­sem­innar eru­eign­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­ur­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­fest­inga­­fé­lagi á Ísland­i. Þar eru þó einnig íslenskir hags­munir, meðal ann­ars 27,36 pró­sent hlutur í Eimskip. Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más, hafi verið falið að leiða útgerð­ar­starf­semi Samherja í Evrópu, sem fer fram í gegnum Samherja Holding.

Inni í þeim hluta er líka fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­ur­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­festi á Kýp­ur. Þau félög héldu meðal ann­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­íu, þar sem sam­stæðan og stjórn­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir ódýran kvóta.

Saksóknari með gögnin frá KPMG

KPMG var end­ur­skoð­andi Samherja Holding árum saman, og raunar Sam­herj­a­sam­stæð­unnar allrar. Í fyrra­haust var greint frá því að Samherji hefði ákveðið að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki og fara með við­skipti sín til BDO ehf., lítt þekkts end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækis. Stundin fjall­aði um þessi vista­skipti í lok októ­ber og byrjun nóv­em­ber í fyrra.

Kjarninn greindi frá því í byrjun febr­úar 2021 að KPMG hafi verið gert að láta emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þarf fyr­ir­tækið að láta hér­aðs­sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ingar og gögn sem varða eina til­tekna skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Sam­herja á árunum 2013 og 2014.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp úrskurð sinn um þetta í byrjun des­em­ber. Dóm­ur­inn féllst á kröfur hér­aðs­sak­sókn­ara um að KPMG yrði skyldað til að láta gögnin af hendi og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum félags­ins yrði sömu­leiðis gert skylt að veita emb­ætt­inu þær upp­lýs­ingar sem þeir búa yfir.

Stjórn­endur Samherja voru ekki ánægðir með þessa nið­ur­stöðu og sögðu vinnu­brögð sak­sókn­ara og hér­aðs­dóm­ara í mál­inu vera „ótrú­leg“.

Fyr­ir­tækið sagði í yfir­lýs­ingu að með úrskurð­inum hafi ekki ein­ungis lög­bund­inni þagn­ar­skyldu verið aflétt af end­ur­skoð­endum KPMG, heldur einnig rof­inn trún­aður lög­manna, enda hafi gögn sem emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fékk með úrskurð­inum ver­ið „í vörslum bæði end­ur­skoð­enda og lög­manna hjá KPMG og dótt­ur­fé­lög­um.“

Í kjöl­farið kærði KPMG, dótt­ur­fé­lag þess og end­ur­skoð­andi Samherja sem starfar hjá KPMG úrskurð­inn til Lands­réttar sem féllst á aðfinnslur þeirra í febr­úar síð­ast­liðnum, ógilti úrskurð­inn og vís­aði mál­inu aftur heim í hérað.

Í mars kvað hér­aðs­dóm­ari upp nýjan úrskurð þar sem gagna­öfl­unin var sögð lög­mæt. Samherji reyndi á að fara fram á að gögn­unum yrði eytt en því máli var vísað frá fyrr í þessum mán­uði vegna aðild­ar­skorts, enda Samherji ekki eig­andi gagn­anna heldur KPMG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár