Samherja varð lítið ágengt með kvörtunum sínum

Bæði nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu og nefnd um dóm­ara­störf hafa lokið athug­unum sínum á kvört­unum Samherja vegna dóm­ara við hér­aðs­dóm og sak­sókn­ara. Ekkert var aðhafst.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Samherji

Kvört­unum sem Samherji beindi ann­ars vegar til nefndar um eft­ir­lit með störfum lög­reglu og hins vegar til nefndar um dóm­ara­störf hefur verið vísað frá á báðum stöðum. Kvart­anir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins lutu að störfum dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur og sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

RÚV sagði fyrst frá þessu og hefur það frá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu að ekki hafi þótt til­efni til að aðhaf­ast umfram það að vekja athygli hér­aðs­sak­sókn­ara á mál­inu. Nefndin sagði RÚV að hún hefði ekki eft­ir­lit með störfum ákæru­valds­ins nema hvað varð­aði störf lög­reglu.

Nefnd um dóm­ara­störf komst síðan að nið­ur­stöðu í mál­inu í gær og birti ákvörðun sína í dag. Nefndin vís­aði kvörtun Samherja frá sökum þess að um dóms­úr­lausn, sem mögu­legt er að bera undir æðri dóm, er að ræða. Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar segir að Lands­réttur hafi í tvígang fjallað um máls­með­ferð hér­aðs­dóm­ar­ans, fyrst í athuga­semd og síðan í for­sendum, þar sem að úrskurð­ur­inn var ómerktur og mál­inu vísað heim í hérað til lög­legrar með­ferðar.

Saksóknari sótti heimild til að sækja gögn hjá KPMG

Málið snýst um úrskurð sem kveð­inn var upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í byrjun des­em­ber­mán­aðar. Þá fór emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fram á það, eins og Kjarninn sagði frá 6. febr­úar, að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu KPMG yrði gert að láta emb­ætt­inu í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011-2020 og sömu­leiðis gögn um eina skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Samherja á árunum.

Þegar emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara lagði kröf­una fram bað emb­ættið um að úrskurður yrði kveð­inn upp án þess að full­trúar KPMG yrðu kvaddir fyrir dóm. Á það féllst dóm­ari, en lesa má í úrskurði hér­aðs­dóms að það hafi verið mat emb­ætt­is­ins að vit­neskja um rann­sókn­ar­að­gerð­ina fyr­ir­fram innan end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins gæti spillt fyrir rann­sókn máls­ins. Gögnin voru síðan sótt til KPMG.

Samherji reyndi að skjóta úrskurð­inum til Lands­réttar, en kærunni var vísað frá vegna aðild­ar­skorts. Lands­réttur sagði hins vegar að með­ferð máls­ins fyrir hér­aðs­dómi hefði verið aðfinnslu­verð.

Það sem talið var aðfinnslu­vert og Sam­herji var að kvarta yfir var að dóm­ar­inn í hér­aðs­dómi, Ingi­björg Þor­steins­dótt­ir, hefði ekki skoðað sér­stak­lega þau rann­sókn­ar­gögn sem lágu til grund­vallar kröfu um gögn og upp­lýs­ingar frá KPMG og að rang­lega hafi verið greint frá því í úrskurði og þing­bók að slík gögn hefðu legið frammi við upp­kvaðn­ingu úrskurð­ar­ins.

Kröfugerð frá héraðssaksóknara ítarleg, að sögn dómara

Í athuga­semdum til nefndar um dóm­ara­störf sagði dóm­ar­inn að mis­ritun hefði átt sér stað, bæði um dag­setn­ingu úrskurðar og um það hvort gögn hefðu legið frammi í dóm­inum. Mistökin væru á hennar ábyrgð. Dómarinn hefði ekki gætt þess að lesa nægi­lega vand­lega yfir for­skráð atriði í þing­bók.

Dómari sagði nefnd­inni einnig að kröfu­gerð hér­aðs­sak­sókn­ara hefði verið ítar­leg og þar hefði verið vitnað orð­rétt til ýmissa gagna. Hafi það verið mat hennar í ljósi þessa og með hlið­sjón af rök­stuðn­ingi sak­sókn­ara að laga­skil­yrðum væri full­nægt og taka mætti kröf­una til greina.

Því var Lands­réttur hins vegar ósam­mála, er mál­inu var skotið þangað í annað sinn. Úrskurð­ur­inn frá því í des­em­ber var ógiltur og mál­inu vísað aftur heim í hérað.

Fram kemur í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar að úr ann­mörk­unum sem voru á með­ferð máls­ins hafi hins vegar verið bætt við end­ur­flutn­ing í hér­aðs­dómi í mars­mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár