Hagnaður Saudi Aramco jókst um 35 prósent

Hagnaður sádiarabíska olíu­risans Saudi Aramco jókst verulega á þriðja ársfjórðungi þrátt fyrir ítrekaðar árásir á olíu­mannvirki landsins. Stríðið í Mið-Austur­löndum hefur haldið olíuverði háu og aukið hagnað orku­fyrirtækja, en jafnframt valdið miklum efnahags­legum erfið­leikum í Sádi-Arabíu.

Olíumannvirki
Olíu­mann­virki Þrátt fyrir að Hútar og Íran hafi truflað sigl­ingar um mik­il­vægar útflutn­ings­leiðir jókst hagn­aður Aramco veru­lega á þriðja árs­fjórð­ungi. Olíu­vinnsla og útflutn­ingur eru mik­il­væg­asta efna­hags­stoð Sádi-Arabíu. Mynd: EPA

Sádiarabíski olíu­risinn Saudi Aramco tilkynnti í dag að hagnaður fyrir­tækisins á þriðja ársfjórðungi hefði aukist um 34,6 prósent frá sama tímabili í fyrra. Stríðið í Mið-Austur­löndum hefur haldið hráolíu­verði háu á sama tíma og ítrekaðar árásir hafa verið gerðar á orku­mannvirki Sádi-Arabíu.

Hútar í Jemen, sem njóta stuðnings Írans, hafa ítrekað gert árásir á sádiarabísk olíu­flutninga­skip, olíu­leiðslur, birgða­stöðvar og olíu­hreinsunar­stöðvar frá því að átök hófust að nýju í júlí. Árásirnar hafa færst í aukana undan­farnar vikur.

Sádi-Arabía hefur jafnframt þurft að glíma við truflanir á skipa­umferð um Bab al-Mandeb-sund og Hormús­sund af völdum Húta og Írans, sem hafa torveldað útflutning.

Þrátt fyrir þetta jókst hagnaður Aramco, sem er ein af megin­stoðum efnahags­lífs Sádi-Arabíu og meðal verð­mætustu fyrir­tækja heims, verulega á þriðja ársfjórðungi. Skýrist það að stórum hluta af því hversu háu olíuverði hefur verið viðhaldið.

Hagnaður fyrir­tækisins eftir skatta nam 135,9 milljörðum sádiarabískra ríala, jafnvirði …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár