Steingrímur J., Óli Björn og Eygló skipuð í stýrihóp til að endurskoða örorkukerfið

Fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra og aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar mynda stýri­hóp sem á að end­ur­skoða örorku­líf­eyr­is­kerfið. Hópurinn á að skila af sér eftir tvö ár. Ingu Sæland er óglatt.

Steingrímur J. Sigfússon hætti á þingi í fyrrahaust. Síðan þá hefur hann verið skipaður til að leiða tvo hópa á vegum ríkisstjórnarinnar.
Stein­grímur J. Sig­fús­son hætti á þingi í fyrra­haust. Síðan þá hefur hann verið skip­aður til að leiða tvo hópa á vegum rík­is­stjórn­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Síðdegis á föstu­dag, þann 24. júní, var til­kynnt um að rík­is­stjórn Íslands hefði skipað nýjan stýri­hóp fjög­urra ráðu­neyta; for­sæt­is­ráðu­neytis, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis og heil­brigð­is­ráðu­neytis, undir stjórn félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytis. Hlutverk hóps­ins á að vera að hafa yfir­sýn yfir vinnu félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins er snýr að end­ur­skoðun á örorku­líf­eyr­is­kerf­inu í sam­ræmi við áherslur í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar.

Ekki var send til­kynn­ing á fjöl­miðla vegna þess­arar skip­unar líkt og venja er þegar skip­aðir eru hópar til að fara yfir stór sam­fé­lags­leg verk­efni. Auk þess hefur það tíðkast lengi hjá stjórn­völdum að til­kynna um ákvarð­anir sem gætu verið óvin­sælar í ýmsum hópum á þessum tíma, seint á föstu­degi þegar sam­fé­lagið er að hefja helg­ar­frí.

Umræddur stýri­hópur á að starfa lengi, í tæp tvö ár. Hann á að halda utan um yfir­lit yfir aðgerðir og fram­gang tíma­settrar verk­efna­á­ætl­unar ráðu­neyt­anna og skila grein­ar­gerð um störf hóps­ins í lok skip­un­ar­tíma síns, sem er 1. júní 2024.

Umdeilt fólk situr í hópnum. Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna sem hefur gegnt mörgum ráð­herra­emb­ættum og var for­seti Alþingis á síð­asta kjör­tíma­bili, hefur verið skip­aður for­maður stýri­hóps­ins. Hann hætti á þingi í fyrra eftir 38 ára þing­setu en Stein­grímur verður 67 ára í ágúst næst­kom­andi, og nær þá hefð­bundnum eft­ir­launa­aldri.

„Mér er óglatt svo ekki sė meira sagt“

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Stein­grímur er skip­aður í hóp á vegum rík­is­stjórn­ar­innar. Hann leiddi einnig svo­kall­aðan sprett­hóp sem flokks­systir hans, Svan­dís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra skip­aði fyrr í þessum mán­uði. Hópurinn skil­aði Svandísi til­lögum og val­kosta­grein­ingu vegna alvar­legrar stöðu í mat­væla­fram­leiðslu á Íslandi sökum þess að verð á aðföngum til bænda hefur hækkað gríð­ar­lega eftir inn­rás Rússa í Úkra­ín­u.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, deildi frétt um skipan Stein­gríms fyrr í dag og skrif­aði í upp­færslu á Facebook: „Er þetta eitt­hvert grín ? Það er ekki eins og þessi ein­stak­lingur hafi ekki haft þús­und­föld tæki­færi og völd til að leið­rétta sví­virði­lega með­ferð stjórn­valda á öryrkjum og fram­færslu þeirra. Mér er óglatt svo ekki sė meira sagt.“

Auk Stein­gríms sitja í hópnum Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sat meðal ann­ars í nefnd um end­ur­skoðun almanna­trygg­inga­kerf­is­ins sem skil­aði af sér skýrslu árið 2016 eftir þriggja ára vinnu, er einnig í hópnum ásamt Eygló Harð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins og félags­mála­ráð­herra um nokk­urra ára skeið þar sem hún fór meðal ann­ars með mál­efni almanna­trygg­inga­kerf­is­ins. Fjórði með­lim­ur­inn er svo Henný Hinz, aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar á sviði vinnu­mark­aðs-, efna­hags- og lofts­lags­mála.

Rík áhersla á val

Fyrir stýri­hóp­inn mun starfa sér­fræð­ingateymi sem vinnur að und­ir­bún­ingi, útfærslum og inn­leið­ingu breyt­inga á greiðslu- og þjón­ustu­kerfi almanna­trygg­inga fyrir ein­stak­linga með mis­mikla starfs­getu eða heilsu­brest sem hefur áhrif á starfs­getu við­kom­andi með áherslu á starfsend­ur­hæf­ingu og aukna mögu­leika til þátt­töku á vinnu­mark­aði.

Klara Briem, verk­efn­is­stjóri í félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti, mun leiða vinnu sér­fræð­ingateym­is­ins og vera tengiliður við stýri­hóp ráðu­neyt­anna. Áhersla á að vera á víð­tækt sam­ráð við helstu hags­muna­að­ila, stofn­anir, önnur ráðu­neyti og aðra hlut­að­eig­andi eftir því sem við á.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar segir að mál­efni örorku­líf­eyr­is­þega verði tekin til end­ur­skoð­unar á kjör­tíma­bil­inu með það að mark­miði að bæta lífs­kjör og lífs­gæði fólks með skerta starfs­orku. „Sér­stak­lega verður horft til þess að bæta afkomu og mögu­leika til virkni, mennt­unar og atvinnu­þátt­töku á eigin for­sendum. Lögð verður rík áhersla á val ein­stak­linga til að taka þátt í nýju kerfi. Sáttmáli Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks verður lög­festur og sett á fót ný Mann­rétt­inda­stofnun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár