Balkanlöndin loka á flóttamenn

Grikkland er orðið að endastöð fyrir flótta­menn á leið til Evrópu. 15 þúsund manns eru nú í flóttamanna­búðum ætluðum 1.500 manns.

Flóttafólk í Ungverjalandi
Flótta­fólk í Ung­verja­landi Flótta­menn bíða á lest­ar­stöð­inni Keleti í Búdapest. Mynd: Mstyslav Chernov / Wikimedia commons

Í gær, þriðjudaginn áttunda mars, var Balkan­leiðinni fyrir flótta­menn lokað. Þetta var tilkynnt af lögreglu­yfirvöldum Slóveníu, Króatíu og Serbíu í gærkvöld. Á níunda hundrað þúsund manns ferðuðust eftir henni í fyrra eftir að hafa komið á smábátum frá Tyrklandi og á annað hundrað þúsund það sem af er þessu ári, en yfirvöld í Mið-Evrópu hafa hert skilyrði fyrir inngöngu flótta­manna skref fyrir skref í vetur, allt frá því að bann var lagt við komu annarra en Sýrlendinga, Íraka og Afgana án tilskilinna skilríkja. Tíu þúsund manns gengu leiðina daglega þegar mest lét í haust, flest á leið til Þýska­lands, en rétt fyrir lokun hafði sú tala lækkað í nokkur hundruð, ekki síst vegna lengdra viðtala við sérhvern flótta­mann sem vildi ganga í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár