Kína orðið stærsta viðskiptaland Bandaríkjanna - Umfangið 28 föld landsframleiðsla Íslands

Tímamót í viðskipta­heiminum, þegar Kína fór fram úr Kanada sem stærsta viðskipta­land Banda­ríkjanna með tilliti til vöru­viðskipta.

Kína er formlega orðið stærsta viðskipta­land Banda­ríkjanna. Kanada hefur lengi verið stærsta viðskipta­land Banda­ríkjanna, enda efnahagur nágranna­ríkisins í Norður-Ameríku um margt samofinn inn- og útflutningi til Banda­ríkjanna. Nú hefur staðan breyst og Kína fór upp fyrir Kanada á þessu ári.

Ástæðan fyrir þessum breytingum er ekki síst lágt olíuverð, en Kanada sér Banda­ríkjunum fyrir miklu magni af olíu. Meðalverð á heims­mörkuðum á hráolíu hefur lækkað úr 110 Bandaríkja­dölum á tunnuna niður í um 44 Bandaríkja­dali nú, sé mið tekið af upplýsingum Wall Street Journal um gang mála á olíu­mörkuðum.

Heildar­umfang viðskipta milli Kanada og Banda­ríkjanna, það er inn- og útflutningur, hefur verið á milli 500 til 600 milljarðar Bandaríkja­dala árlega að meðaltali á síðustu tíu árum, en er nú komið niður í rúmlega 400 milljarða. Á sama tíma hafa viðskipti Banda­ríkjanna við Kína verið að aukast jafnt og þétt. Þau voru í kringum 480 milljarðar Bandaríkja­dala árið 2013, en eru nú í kringum 430 milljarðar, samkvæmt upplýsingum sem Quartz tók saman.

Til saman­burðar má nefna þá nemur árleg lands­framleiðsla Íslands um tvö þúsund milljörðum króna. Umfang vöru­viðskipta Banda­ríkjanna og Kína er um 55 þúsund milljarðar, eða sem nemur um 28 faldri árlegri lands­framleiðslu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár