Rússland og Kína skilji efnahagslegt og hernaðarlegt mikilvægi Íslands

Carrin F. Patman, sem lík­lega verður sendi­herra Banda­ríkj­anna hér á landi innan skamms tíma, sagði þing­nefnd á fimmtu­dag að hún teldi að Rússland og Kína skildu hern­að­ar­legt mik­il­vægi Íslands og vill leggja áherslu á varn­ar­mál í sínum störfum.

Carrin F. Patman verður sennilega næsti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Carrin F. Patman verður senni­lega næsti sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi. Mynd: Skjáskot úr útsendingu Bandaríkjaþings

Carrin F. Patman, sem í febr­úar var til­nefnd af Joe Biden Banda­ríkja­for­seta til þess að gegna emb­ætti sendi­herra á Íslandi, kom fyrir utan­rík­is­mála­nefnd öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings á fimmtu­dag og sagð­ist ætla að beita sér fyrir auknum tengslum Banda­ríkj­anna og Íslands á sviði varn­ar­mála, yrði hún stað­fest í emb­ættið.

Á fundi nefnd­ar­innar kom auk ann­ars fram í máli Patman, sem er lög­fræð­ingur frá Texas, að hún teldi að Banda­ríkja­menn hefðu verið of snöggir á sér við að loka her­stöð sinni á Kefla­vík­ur­flug­velli, þar sem nú hefði komið á dag­inn að Kalda stríð­inu væri í reynd mögu­lega ekki alveg lokið.

Hefur gefið duglega í kosningasjóði demókrata

Patman er, rétt eins Jeffrey R. Gunter, sendi­herr­ann sem Donald Trump til­nefndi í sendi­ráð Banda­ríkj­anna í Reykja­vík, ekki með neina fyrri reynslu af störfum í utan­rík­is­þjón­ustu Banda­ríkj­anna.

Hún er hins vegar tengd inn í Demókra­ta­flokk­inn, en bæði pabbi hennar og afi hennar sátu í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings fyrir flokk­inn. Hinn afi hennar sat á rík­is­þingi Texas-ríkis.

Patman sjálf hefur gefið all­nokkuð fé í kosn­inga­sjóði demókrata á und­an­förnum árum, þar af yfir 200 þús­und banda­ríkja­dali í ýmsa sjóði sem studdu við kosn­inga­bar­áttu Joe Bidens, sam­kvæmt frétt mið­ils­ins Houston Chronicle, sem fjall­aði um til­nefn­ingu hennar í sendi­herra­stöð­una fyrr á árinu.

Í þeirri frétt er haft eftir Patman að síð­asta starf hennar sem stjórn­ar­for­maður Houston Metro, opin­bers félags utan um almenn­ings­sam­göngur í Houston, væri búið að búa hana undir diplómat­ískt starf. Reyndar var þess getið að hún væri að grín­ast.

Vill dýpka öryggissamstarfið við Ísland

Í ræðu sinni frammi fyrir þing­nefnd­inni, sem lesa má í skrif­legri útgáfu hér, lagði Patman nokkra áherslu á varn­ar­mál. Hún sagði hnatt­ræna stað­setn­ingu Íslands mik­il­væga bæði fyrir Banda­ríkin og fyrir heim­inn.

„Rússland og Kína skilja stra­tegískt mik­il­vægi Íslands, bæði efna­hags­lega og hern­að­ar­lega, og ef ég verð skipuð í emb­ætti, mun ég leit­ast við að dýpka örygg­is­sam­starf okkar við Ísland og styðja Ísland í að takast á við þessar áskor­anir,“ sagði Patman í ræð­unni.

Er Patman og fleiri til­nefndir verð­andi sendi­herrar sem komu fyrir nefnd­ina á fimmtu­dag höfðu lokið máli sínu fengu nefnd­ar­menn að spyrja þá spurn­inga um hugð­ar­efni sín.

Íslenskir ráðamenn sagðir á varðbergi gagnvart umsvifum Bandaríkjanna

Bill Hagerty þing­maður repúblik­ana frá Tennessee sagði að þrátt fyrir að íslenska rík­is­stjórnin hefði verið í sam­starfi við Banda­ríkja­menn um upp­bygg­ingu frek­ari aðstöðu á Kefla­vík­ur­flug­velli væru „sumir ráða­menn og þing­menn á Íslandi“ á varð­bergi (e. cautious) gagn­vart auk­inni fyr­ir­ferð Banda­ríkja­manna á Íslandi, í hern­að­ar­legu til­liti.

„Ef þú verður stað­fest sem sendi­herra, hvernig myndir þú styrkja varn­ar­sam­bandið á milli Íslands og Banda­ríkj­anna?“ spurði Hagerty.

Patman svar­aði því til að hún myndi leit­ast við að eiga gott sam­starf við æðstu lög rík­is­stjórnar Íslands, halda því sam­starfi áfram og gefa Íslend­ingum til kynna „hversu mik­ils metin þau eru og hafa verið í yfir 70 ár sem stra­tegískir banda­menn“.

Ben Cardin þing­maður demókrata beindi einnig spurn­ingu til Patman. Hann minnti á að Ísland hefði engan her, ein­ungis Land­helg­is­gæslu, gaf í skyn að Rússar væru til alls lík­legir á norð­ur­slóðum og vildi því fá að vita hvernig sendi­herr­ann verð­andi myndi beita sér fyrir því að varnir í heims­hlut­anum yrðu styrktar.

Patman vís­aði í svari sínu til nýlegrar ræðu sem hún hafði heyrt Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra halda á við­burði í Washington og sagð­ist hafa tekið það út úr ræð­unni að við­horf Íslands til Rúss­lands hefðu gjör­breyst í ljósi inn­rásar Rússa í Úkraínu. Íslend­ingar væru nú á tánum eða raunar „algjör­lega á hæsta við­bún­að­ar­stigi gagn­vart ógn­inni sem stafar frá Rússum“ og sagð­ist Patman telja að Ísland væri til í að grípa til „allra nauð­syn­legra aðgerða“ til þess að koma í veg fyrir slíka ógn.

Þá sagði hún að íslensk stjórn­völd hefðu einnig gert sér grein fyrir því að mögu­lega þyrfti aukna við­veru varn­ar­liðs á Íslandi til þess að tryggja örygg­is­hags­muni NATO. Að lokum sagð­ist Patman vilja koma því á fram­færi að þrátt fyrir að Ísland væri ekki með her­lið gæfi landið NATO mikið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár