Hannes vill banna blæjur

Einn þekktasti talsmaður frjáls­hyggju á Íslandi er hlynntur blæju­banni og telur það þjóna almannahags­munum.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands og einn þekktasti talsmaður íhalds­samrar frjáls­hyggju á Íslandi, vill að konum sé bannað að bera blæjur.

Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni. „Auðvitað á ekki að banna konum að bera blæjur, af því að þær séu trúartákn. Það á að banna þeim það, af því að menn eiga ekki að fá að dulbúa sig á almanna­færi, því að þá geta þeir komist undan ábyrgð á verkum sínum,“ skrifar prófessorinn. 


Tilefni ummælanna er frétt Mbl.is um að Evrópu­dómstóllinn telji að brotið hafi verið gegn reglugerð ESB um bann við mismunun á grund­velli trúar­bragða þegar franskur hönn­un­ar­verk­fræðing­ur var rek­inn úr starfi fyr­ir að bera blæju að ís­lömsk­um sið.

Áður hefur Mann­réttinda­dómstóll Evrópu, sem heyrir undir Evrópu­ráðið, komist að þeirri niður­stöðu að búrkubann í Frakk­landi feli ekki í sér brot gegn mann­réttinda­sáttmálanum. MDE taldi bannið réttlætanlegt á grund­velli öryggis­sjónarmiða; stefnt gæti öryggi almennings í hættu að þekkja ekki almennilega einstaklinga sem hylja andlit sitt á almanna­færi.

Hannes Hólmsteinn tekur fram að honum finnist eðlilegt að vinnu­veitendur geti sett ákveðnar reglur um klæðaburð starfs­fólks, jafnvel reglur sem útiloki blæjur. „Raunar setja líka veitinga­staðir fastar reglur um klæðaburð. Og kirkjur: í suðrænum löndum mega menn ekki fara inn í kirkju í stuttbuxum og sandölum. Ég sé ekkert að slíkum reglum,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár