Íslendingar versla sífellt fleiri jólagjafir í erlendum vefverslunum

Íslendingar fengu 55 prósent fleiri sendingar frá erlendum verslunum frá í nóvember 2016 en í saman mánuði í fyrra. Á sama tímabili fjölgaði innlendum pakka­sendingum um 35 prósent. Af þessu má ráða að íslenskir neytendur séu í meira mæli að kaupa jóla­gjafirnar sínar í gegnum vefverslanir á netinu, sérstak­lega erlendar, í stað þess að versla þær í íslenskum verslunum. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Í blaðinu er bend á að innlend fata­verslun hafi dregist saman í október­mánuði miðað við árið áður, þrátt fyrir að verð á fötum hafi lækkað um 5,9 prósent. Til viðbótar hefur átt sér stað umtals­verð kaupmáttar­aukning og tollar á fatnaði og skóm verið felldir niður.

Netverslun Íslendinga er sífellt að aukast, jafnt innanlands sem erlendis frá. Samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Samtök verslunar og þjónustu og Póstinn í febrúar keyptu 73 prósent Íslendina vörur í gegnum netið tólf mánuðina á undan. Kjarninn greindi frá því í byrjun árs 2015 að 67 prósent lands­manna höfðu verslað á netinu á árinu 2014 saman­borið við 57,6 prósent árið áður.

Þrátt fyrir afnám tolla og vöru­gjalda og mikla kaupmáttar­aukningu á Íslandi þá virðast Íslendingar samt sem áður velja að versla mikið erlendis. Sú verslun fer ekki bara fram í gegnum netið. Margar af stærstu fata­verslunum heims senda til að mynda ekki vörur beint til Íslands. H&M, sem mun opna verslanir á Íslandi á næsta ári, er t.d. þegar með um fjórðungs­markaðs­hlutdeild í fata­kaupum Íslendinga, samkvæmt tölum frá Meniga, þrátt fyrir að engin slík verslun sé rekin hérlendis sem stendur.

Í Frétta­blaðinu í dag er rætt við Andrés Magnússon, framkvæmda­stjóra Samtaka verslunar og þjónustu, sem segir að það sé ekkert nýtt að íslensk verslun eigi í harðri samkeppni við erlenda. Bæði sé netverslun að aukast og svo sé það freisting að kaupa varning erlendis frá þegar krónan hefur styrkst jafn mikið og raun ber vitni gagnvart helstu erlendu gjald­miðlum.

Styrk­ing krón­unnar gagn­vart evru er um 16 pró­sent á síð­asta ári og gagn­vart Banda­ríkja­dal hefur hún verið rúm­lega 14 pró­sent. Mest hefur styrk­ingin verið gagn­vart pund­inu eða tæp­lega 30 pró­sent en eftir Brexit kosn­ing­una í júní hefur pundið veikst veru­lega gagn­vart helstu við­skipta­myntum heims­ins. Pundið kost­aði 206 krónur fyrir rúm­lega ári en kostar nú rúmlega 140 krón­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár