Netverslun á Íslandi tekur kipp

Verslun á netinu hefur tekið mikinn kipp á Íslandi, ef marka má könnun Hagstofunnar á netnotkun lands­manna árið 2014. Um 67 prósent netnotenda höfðu verslað á netinu á síðustu 12 mánuðum, saman­borið við 57,6 prósent árið áður.

Hagstofan birti á föstudag skýrslu um tölvu- og netnotkun á Íslandi og í öðrum Evrópu­löndum 2014. Sem fyrr er Ísland nettengdasta þjóð álfurnnar. Í fyrra töldust 98,2 prósent íbúa til „netnotenda“, það eru þeir einstaklingar sem hafa notað internetið á síðustu þremur mánuðum.


Netverslun eftir aldri netnotenda 2012 til 2014

|

Create infographics

Fjöldi þeirra sem versla varning og þjónustu í gegnum netið hefur farið vaxandi á undan­förnum árum. Árið 2010 var hlutfall þeirra sem versluðu á netinu undir 50 prósent allra netnotenda en var sem fyrr segir um 67 prósent á síðasta ári.


Netverslun hefur aukist meðal flestra aldurs­hópa, en þó minna eftir því sem fólk er eldra. Fólk á aldrinum 25 ára til 34 ára er duglegastur við að kaupa varning og þjónustu á netinu.


Vöru- og þjónustu­kaup einstaklinga á netinu 2010-2014

|

Create infographics

Af einstökum vörum og þjónustu þá er algengast að netnotendur versli aðgöngu­miða á viðburði. Alls höfðu 75% þeirra sem höfðu verslað á netinu á síðustu tólf mánuðum keypt miða á viðburði. Þá keyptu fleiri tónlist og kvik­myndir í gegnum internetið, og hafa veitur á borð við Netflix og Spotify þar vafalaust áhrif. Á myndinni hér að ofan má sjá hversu stórt hlutfall þeirra sem versla á netinu hafa keypt tiltekin varning eða þjónustu og breytingar milli ára.


Nokkuð jafnt hlutfall er á milli kaupa frá Banda­ríkjunum annars vegar og löndum Evrópu­sambandsins hins vegar. Athyglis­vert er að skoða þróunina á kaupum frá fyrir­tækjum utan Banda­ríkjanna og ESB, en verslun þaðan um það bil tvöfaldaðist milli áranna 2013 og 2014. Í skýrslu Hagstofunnar er ekki skýrt hverju sætir, en til dæmis gæti fríverslunar­samningur milli Íslands og Kína haft áhrif.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 29. jan­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferð til fjár.

ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár