Erdogan boðar stjórnarskrárbreytingar til að auka völd sín

Herskólum verður lokað og herinn verður settur beint undir varnarmála­ráðherra Tyrklands. Þetta tilkynnti forseti landsins, Recep Tayyip Erdogan, í gær.

Þá hefur 1.700 starfs­mönnum tyrkneska hersins verið vikið úr honum í þessari viku. Fikri Isik, varnarmála­ráðherra landsins, segir að hreinsunum innan hersins sé ekki enn lokið eftir misheppnaða valda­ránstilraun um miðjan júlí. Meðal þeirra sem hafa verið látnir fara frá hernum frá valda­ráns­tilrauninni eru 40% allra aðmírála og hers­höfðingja.

„Herinn okkar verður miklu sterkari með þessum nýju tilskipunum. Yfirmenn hersins munu heyra undir varnarmála­ráðherrann,“ sagði Erdogan, forseti landsins, í sjónvarps­viðtali. „Herskólum verður lokað, við munum koma á varnarmála­háskóla á vegum ríkisins.“ Þá vill Erdogan að fleiri stofnanir, eins og leyni­þjónustan, verði látin heyra beint undir hann. Sömu sögu er að segja af æðsta yfirmanni hersins. Til þess þyrfti að breyta stjórnar­skrá landsins. Aukinn meirihluti á þinginu verður að samþykkja stjórnar­skrár­breytingar, en ekki er talið líklegt að mikil andstaða verði við það eins og aðstæður eru nú í Tyrklandi.

Erdogan hefur einnig greint frá því að yfir tíu þúsund manns hafi verið hand­teknir eftir valda­ráns­tilraunina um miðjan júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár