Fékk „sjokk“ í Hegningarhúsinu og finnur til með kvenfanganum

Dóttir Rósu Jóns­dóttur verður færð á föstudag úr Hegningar­húsinu til Akureyrar. Kristín Soffía Jóns­dóttir, borgar­fulltrúi Samfylk­ing­ar­innar, segist hafa fengið sjokk þegar hún heimsótti fangelsið á síðasta kjör­tímabili.

Borgarfulltrúi
Borg­ar­full­trúi Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist hafa fengið í hjartað við að hugsa til fang­ans. Mynd: Samsett

Dóttir Rósu Jóns­dóttur, sem færð var í einangrunar­klefa í Hegningar­húsinu eftir lokun Kvenna­fangelsisins, verður flutt í Fangelsið á Akureyri á föstu­daginn.

Stundin ræddi við Rósu í gær þar sem hún lýsti slæmum aðbúnaði dóttur sinnar í Hegningar­húsinu en hún var færð þangað eftir lokun Kópa­vogs­fangelsis, öðru nafni Kvenna­fangelsið, vegna niður­skurðar.

„Hún vill vera innan um fólk. Enda er hún ekki morðingi eða barna­níðingur“

Rósa segir í dag að dóttir sín sé gífurlega ánægð með að komast úr einangrun á næstu dögum. Rósa segist hafa hætt við mótmæli sín, en hún ætlaði að hlekkja sig við Hegningar­húsið, að beiðni lögmanns síns. „Ég fékk svör í morgun. Ég heyrði í henni í morgun og hún er mjög ánægð með þetta, bara það að vera ekki alein lokuð af. Hún vill vera innan um fólk. Enda er hún ekki morðingi eða barna­níðingur. Hún villtist af leið og er að taka sig á. Það má ekki brjóta það niður sem er búið að byggja upp,“ segir Rósa.

Dóttir hennar var síðasti fanginn sem var fluttur úr Kópa­vogs­fangelsi.

Finnst gott að vita af föngum í húsinu

Rósa segir að dóttir sín sé gífurlega fegin að vita að hún þurfi einungis að tóra í Hegningar­húsinu í einn dag til viðbótar. „Það er allt betra en þetta. Hún segist njóta þess í dag að heyra í kall­kerfinu, eins og: „Guðmundur, það er síminn til þín“. Þá er það einhver annar fangi sem var fluttur þarna. Hún segist vera fegin að vita að það er einhver þarna, þó að það séu strákar,“ segir Rósa.

Fangaverðirnir yndislegir

Rósa vill sérstak­lega hrósa fanga­vörðum og öðru starfs­fólki, bæði í Kópa­vogs­fangelsi og í Hegningar­húsinu. „Þó að Kvenna­fangelsið hafi verið í niður­níðslu, þá státaði það af frábæru starfs­fólki,“ segir Rósa. Hún bætir enn fremur við að það sé helst fanga­vörðum í Hegningar­húsinu að þakka að vist dóttur hennar þar hafi verið bærileg. „Það sem bjargar þessu er frábært starfs­fólk. Þessir karlar eru allir upp til hópa alveg yndis­legir. Það sem ég er að gagnrýna eru yfirvöld, að loka heilu fangelsi og hafa ekki úrræði á hreinu eru forkastanleg vinnu­brögð,“ segir Rósa og vill koma á framfæri þökkum til fanga­varða.

Borgarfulltrúi fær fyrir hjartað

Mál dóttur Rósu hefur vakið nokkra athygli og segir Kristín Soffía Jóns­dóttir, borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar, að hún hafi fengið í hjartað við að hugsa til fangans.

„Ung stúlka á ekkert erindi í karlkyns gæslu­varðhalds­fangelsi.“ 

„Sem formaður Heilbrigðis­nefndar á síðasta kjör­tímabili heimsótti ég Hegningar­húsið. Ég fékk algjört sjokk. Þetta húsnæði er langt frá því að uppfylla eðlilegar kröfur. Eftir heim­sóknina þá ákváðum við í samstarfi við fangelsis­mála­yfirvöld að fækka fanga­rýmum og búa til sameiginleg rými. Þrátt fyrir þær breytingar þá er þetta ekki boðlegt. Ég fæ illt í hjartað við að hugsa til þessarar stúlku. Sem betur fer er nýtt fangelsi á Hólms­heiði að rísa en þangað til þá verðum við að finna aðrar lausnir. Ég vona að dóttir Rósu verði fundin önnur úrræði. Ung stúlka á ekkert erindi í karlkyns gæslu­varðhalds­fangelsi,“ skrifar Kristín Soffía á Facebook-síðu sinni.

Aðrir fangar sýna samhug

Afstaða, félaga fanga og annarra áhuga­manna um bætt fangelsismál og betrun fanga, setur málið í samhengi við fjárskort í fangelsis­málum á Facebook-síðu félagsins. „Afstaða hefur tekið þetta mál upp við Fangelsis­mála­stofnun og lýst yfir áhyggjum af stöðu mála. Fangelsis­mála­stofnun hefur fullyrt að einstaklingurinn verði fluttur í annað fangelsi eins fljótt og hægt er og hefur Afstaða heimildir fyrir því að það verði fyrir helgi. Hörmulegt ástand sem unnið er að því að leysa. Þess má geta að ástæða þess að þessi staða er kominn upp er sú að Fangelsis­mála­stofnun hefur verið fjársvelt í um áratug núna og enn skar Alþingi niður í fjárlögum til fangelsis­mála um 2% þetta árið án þess að nokkur stjórn­málaflokkur hafi gert athugasemd við það. Fangelsin eru á mörkum þess að geta starfað eðlilega við þetta ástand. Lokun fangelsisins í Kópavogi er bein afleiðing þess og hefði það fangelsi annars verið opið áfram þar til fangelsið á Hólms­heiðinni opnar,“ segir á Facebook-síðu samtak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár