Pútín hótar því sem aldrei hefur sést

Vladímír Pútín vísaði til baráttu gegn nasisma og Banda­ríkjanna sem „heims­veldis lyga“, eftir að hann fyrir­skipaði allsherjar­innrás í Úkraínu. Hann varar við því að honum verði veitt mótspyrna.

Sprengingar nærri Kharkiv
Spreng­ingar nærri Kharkiv Rússar réð­ust meðal ann­ars á her­flug­völl í Chuguyev nærri Kharkiv í aust­ur­hlut­anum. Mynd: AFP

Eftir að hafa þráfald­lega þrætt fyrir áform um innrás í Úkraínu, þrátt fyrir mikinn liðs­söfnuð við landa­mærin, fyrir­skipaði Vladimir Pútín Rúss­lands­forseti herdeildum að ráðast á landið úr mörgum áttum í nótt. Pútín lýsti árásunum sem sértækum aðgerðum og fyrir­skipaði Úkraínu­mönnum að veita enga mótspyrnu, heldur leggja niður vopn. „Nató styður úkraínska nýnasista ... Aðgerðir okkar eru sjálfs­vörn gegn ógnum,“ sagði Pútín í nótt.

Sprengingar heyrðust í nótt Kharkiv, Kramatorsk og Dnipro í austri, í Odessu og Kherson í suðri, og höfuð­borginni Kyiv í norðri. Úkraínsk yfirvöld segja meira en 40 hermenn hafa látist og upp undir 10 óbreytta borgara.

„Hver sem reynir að trufla okkur, eða að ógna landi okkar og þjóð, verður að vita að andsvar Rússlands verður tafar­laust og leiðir yfir ykkur afleiðingar sem þið hafið aldrei upplifað í sögu ykkar. Við erum tilbúin í hvað sem er,“ sagði Pútín í ávarpi sínu í nótt.

Fórn­ar­lamb loft­árásaMaður hylur annan, sem lést í loft­árás í nótt, með teppi nærri Chuguiv í aust­ur­hluta Úkraínu.
Slasaður eftir loft­árásSlasaður maður bíður hjálpar nærri Chuguiv í aust­ur­hluta Úkraínu.

Pútín sagði hernaðar­aðgerðirnar vera „spurningu um líf og dauða“ vegna útþenslu Nató. „Þetta er rauða línan sem ég hef oft talað um. Þeir eru komnir yfir hana,“ sagði Pútín. Hann vitnaði til aðgerða Nató í Júgóslavíu 1999 og innrásar Banda­ríkjanna í Írak 2003, máli sínu til stuðnings, og sagði að Banda­ríkin væri „heims­veldi lyga“. 

Þá réttlætti Pútín innrásina með því að hann væri að hreinsa Úkraínu af nasisma. Áður hefur hann skilgreint Úkraínu sem sköpunar­verk Rússa og efast um tilvistar­rétt ríkisins. Undan­farið hefur hann síðan endur­tekið ásakanir um þjóðar­morð Úkraínu­manna í Donbass.

Úkraínsk yfirvöld fullyrtu að þau hefði skotið niður fimm herflugvélar og eina þyrlu.

Í gærkvöldi beindi Volodymir Zelenski, forseti Úkraínu, orðum sínum til rússnesku þjóðarinnar og sagði að hún ein gæti stöðvað óréttmæta árás.

Í morgun flutti hann ávarp til úkraínsku þjóðarinnar. Þar sagði hann Rússa hafa ráðist á Úkraínu með slægum hætti og hegðað sér líkt og Adolf Hitler gerði í upphafi Seinni heims­styrjaldar. Hann sagði Rússa vera á „vegferð illsku“.

Kyiv í morgunHópur fólks bíður við hrað­banka til að taka út reiðufé.
Biðröð við bens­ín­stöðUmferð­ar­öng­þveiti mynd­að­ist á leið úr Kyiv í morgun.
Á lest­ar­stöð­inniKonur á Kyiv-Pasazhyrskyi lest­ar­stöð­inni í morgun. Loft­varn­ar­sírenur hljóð­uðu í mið­borg­inni í dag eftir að Rússar hófu stór­skota­liðsárás og eld­flauga­árásir að fyr­ir­skipan Pútíns.

Forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, Ursula von der Leyen, boðaði harðar refsiaðgerðir. „Við munum frysta eignir Rússa í Evrópu­sambandinu og stöðva aðgengi rússneskra banka að evrópskum fjármála­mörkuðum,“ sagði hún. „Við fordæmum þessa villimanns­legu árás og þau illkvittnu rök sem notuð eru til að réttlæta hana.“

Þá sagði hún: „Við munum ekki leyfa Pútín forseta að innleiða vald­beitingu og ósvífni í stað alþjóða­laga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár