Segir Pírata vilja að fólk geti „legið í sófanum hjá sálfræðingum daginn út og inn og látið hvítta tennurnar, allt í boði skattgreiðenda“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, heldur áfram að hæðast að áformum Pírata um að tann­lækningar og sálfræði­þjónusta verði niður­greidd fyrir alla landsmenn.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segir að Píratar vilji kollvarpa sjávar­útveginum á Íslandi og jafnframt stjórnar­skránni.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti í dag. Þá hæðist hann að hugmyndum um borgara­laun og ýjar að því að Píratar vilji að iðju­leysingjar geti „setið heima við tölvuna á borgara­launum, legið í sófanum hjá sálfræðingum daginn út og inn og látið hvítta tennurnar, allt í boði skatt­greiðenda“.

Sigurður Hólm Gunnarsson, iðju­þjálfi og forstöðu­maður á skammtíma­heimili fyrir unglinga í Reykjavík, vakti mikla athygli í síðustu viku þegar hann skrifaði pistil um andleg veikindi sín, geðheil­brigðis­kerfið á Íslandi og fordóma sem andlega veikt fólk þarf að þola.

Hann svarar Brynjari á Facebook-síðu sinni og skrifar: „Að þingmaður Sjálfstæðis­flokksins geri ítrekað lítið úr fólki sem þarf á aðstoð sálfræðinga og tannlækna að halda er forkastanlegt og flokki hans til skammar.“

Vísar hann þar til ummæla Brynjars frá því í síðustu viku, þegar þing­maðurinn hæddist að að áformum Pírata um að tann­lækningar og sálfræði­þjónusta verði niður­greidd fyrir alla landsmenn með sama hætti og gildir um aðra heilbrigðis­þjónustu. 

Brynjar er á meðal þeirra sem gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu á Alþingi í próf­kjöri sjálf­stæðis­manna í Reykja­vík sem fram fer þann 3. sept­em­ber næst­komandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár