Fjármál Ljósleiðarans falin fyrir fjármálastjóra Orkuveitunnar vegna stöðu eiginkonunnar

Aðgengi fjármála­stjóra Orku­veitunnar var takmarkað þegar eiginkona hans var kjörin stjórnar­formaður Sýnar. Ljós­leiðarinnar, dóttur­fyrirtæki Orku­veitunnar, og Sýn starfa á sama markaði. Staða sem gengur ekki að mati Bjarna Bjarna­sonar, forstjóra Orku­veitunnar.

Ósammála
Ósammála Petrea segir að mann­inum sínum hafi verið gefnir afar­kostir en Bjarni segir stöð­una ein­fald­lega ekki ganga upp.

Benedikt K. Magnússon, fjármála­stjóri Orku­veitunnar, hefur ekki lengur aðgengi að fjárhags­upplýsingum tengdum Ljós­leiðaranum, fyrir­tækis í eigu Orku­veitunnar. Ástæðan er staða eiginkonu hans, Petreu Ingileifar Guðmunds­dóttur, sem stjórnar­formanns Sýnar. Fyrr í kvöld upplýsti Petrea að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér til áfram­haldandi setu í stjórn fyrir­tækisins á komandi hluthafa­fundi vegna þess að í „lok liðinnar viku setti forstjóri OR honum afarkosti vegna starfs síns, haldi ég áfram í stjórn.“

Í yfir­lýsingu Petreu kom fram að Benedikt hefði verið gert ljóst að hann gæti ekki sinnt starfinu sem skyldi vegna mögulegrar ásýndar hagsmuna­árekstra, sem myndi því leiða af sér brott­vikningu hans úr starfi. 

Benedikt var ráðinn til Orku­veitunnar í mars á þessu ári. Í yfir­lýsingu Petreu kom fram að hún hefði ekki haft neinn aðgang að upplýsingum um samstarfs­samning sem gerður hefur verið á milli fyrir­tækjanna tveggja eða öðrum málum sem varða Ljós­leiðarann og Sýn. „Vandað hefur …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár