Utanríkisráðuneytinu ekki kunnugt um Íslending sem starfi fyrir ISIS

Utan­ríkis­ráðuneyti Íslands er ekki kunnugt um að Íslendingar starfi með eða hafi starfað með ISIS-samtökunum með neinum hætti. Þetta segir Urður Gunnars­dóttir, fjölmiðla­fulltrúi ráðuneytisins.

Kjarninn greindi frá því í morgun að Sýrlend­ingurinn Abu Hamza, sem flúið hefur úr röðum ISIS-samtak­anna, sem einnig eru þekkt sem Íslamska Ríkið, hefði sagt frétta­ritara The Economist í Miðausturlöndum að íslenskur kvikmynda­gerðarmaður hefði gengið til liðs við samtökin. Aðkoma hins íslenska kvikmynda­gerðarmanns útskýri fagmannlega unnin myndbönd sem notuð séu til að laða nýja meðlimi að ISIS-samtökunum og til að vekja athygli á þeim á Vestur­löndum. Á meðal þeirra myndbanda sem ISIS-samtökin hefur dreift eru mynbönd af afhöfðunum vestrænna manna sem samtökin hafa verið með í haldi.

Frétta­ritarinn, Sarah Birke, greindi frá þessu í blogg­færslu sem birtist í gær á heimasíðu New York Review of Books.

Á meðal þeirra myndbanda sem ISIS-samtökin hefur dreift eru mynbönd af afhöfðunum vestrænna manna sem samtökin hafa verið með í haldi.

Ísland hefur stutt við aðgerðir gegn ISIS


ISIS stendur fyrir íslamskt ríki Íraks í Sýrlandi og sam­tökin voru upp­haf­lega hluti af Al Kaída. Þau klufu sig síðar frá og þykja mun rót­tæk­ari en Al Kaída. ISIS-sam­tökin hafa náð undir sig stórum svæðum í Írak og Sýrlandi og berj­ast hat­ram­lega gegn þar­lendum stjórn­völdum. Fjöl­margir Evr­ópu­búar hafa gengið til liðs við sam­tökin und­an­farin miss­eri. Þau hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja mynd­bönd af liðs­mönnum sínum vera að afhöfða vest­ræna gísla á netið.

isis
isis

Íslensk stjórn­völd hafa stutt við alþjóðlegar aðgerðir gegn ISIS, sem felast meðal annars í hernaðar­legum stuðningi við írösk stjórn­völd, sporna við fjár­mögnun samtakana, að bregðast við áróðurs­starfsemi þeirra, hafa eftirlit með farandsvígamönnum og stuðla að mannúðar­aðstoð fyrir almenna borgara á þeim svæðum sem ISIS hefur herjað á.

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sótti fund utan­ríkis­ráðherra­fund þeirra sextíu ríkja sem taka þátt í aðgerðum gegn ISIS í Brussel í síðustu viku.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sótti fund utanríkisráðherrafund þeirra sextíu ríkja sem taka þátt í aðgerðum gegn ISIS í Brussel í síðustu viku.
Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sótti fund utan­rík­is­ráð­herra­fund þeirra sex­tíu ríkja sem taka þátt í aðgerðum gegn ISIS í Brussel í síð­ustu viku.

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sótti fund utan­ríkis­ráðherra­fund þeirra sextíu ríkja sem taka þátt í aðgerðum gegn ISIS í Brussel í síðustu viku. Í tilkynningu ráðuneytis hans, sem send var út eftir fundinn, sagði Gunnar Bragi: „Við styðjum aðgerðir gegn ISIS enda brýnt að bregðast grimmdar­verkum samtak­anna. Ísland leggur sín lóð á voga­skálarnar með því að styðja neyðar- og manna­úðaraðstoð fyrir óbreytta borgara í gegnum stofnanir Sameinuðu þjóðanna“.

ISIS skráði lén á Íslandi


Í októ­ber síð­ast­liðnum var greint frá því að ISIS hefði skráð lén með .is end­ingum. Um var að ræða Khilafah.is, frétta­síðu sam­tak­anna. ISNIC, sem fer með léna­skrán­ingu .is léna, lok­aði lénum sem ISIS not­að­ist við þann 12. októ­ber á grund­velli reglna fyr­ir­tæk­is­ins um léna­skrán­ingu, þar sem fram kemur að rétt­hafa léns beri að ábyrgj­ast að notkun léns sé í sam­ræmi við íslensk lög.

Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ISNIC hefur lokað léni vegna innihalds hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár