Ísland í 8. sæti yfir lönd sem nota klámveituna Pornhub mest

Ísland er í áttunda sæti yfir þau lönd sem eiga flesta notendur klámveitunar Pornhub, sem er sá stærsti sinnar tegundar í heiminum, þegar miðað er við fjölda heimsókna á hvern íbúa. Alls voru innlit á hvern íslenskan íbúa á vefinn 95 talsins á síðasta ári.

Mest notkun á veitunni er í Bandarikjunum þar sem innlit á hvern íbúa eru 123. Ísland er á svipuðum slóðum og hin Norður­löndin á lista Pornhub yfir notkun á vefnum. Noregur er í fimmta sæti á listanum, Svíþjóð í níunda sæti og Danmörk í því tíunda. Þetta kemur fram í samantekt Pornhub yfir árið sem er að líða.Vert er að taka fram að ekkert klám­fengið efni er á bakvið hlekkinn hér að undan. Hann vísar inn á síðu sem brýtur niður notkun á klám­veitunni í tölfræði.

Notkunin rímar að nokkru leyti við internet­notkun heilt yfir. Fleiri Íslendingar nota til dæmis internetið, miðað við höfðatölu, en þegnar nokkurs annars ríkis í heiminum. Á þeim lista eru Bandaríkja­menn, sem nota Pornhub meira en nokkur annar, í 21. sæti árið 2013.

Reyna að komast inn á almennan markað


Pornhub, sem er með höf­uð­stöðvar sínar í Kananda, er sú klám­veita sem er mest sótt allra í heim­inum. Á árinu 2014 var horft á sam­tals 78,9 millj­arða sinnum á mynd­bönd á veit­unni, sem er tölu­verð aukn­ing frá árinu 2013 þegar heild­ar­fjöldi mynd­banda sem horft var á var 63,2 millj­arðar. Það þýðir að heim­sóknir á vef­inn á síð­asta ári voru um 5.800 á hverri sek­úndu.

Pornhub hefur mikið reynt að fá auglýsendur og notendur til að líta á sig sem almennt fyrirtæki sem bjóði þjónustu í stað þess að vera flokkað sem skítugt klám­fyrirtæki. Það hefur líka notað þann gríðar­lega fjölda heimsókna sem síðan fær til að reyna að gera það að auglýsa meira aðlandi fyrir auglýsendur. Þessi viðleitni hefur ekki skilað miklu, enda veigra flestir auglýsendur sér við að auglýsa á stöðum sem bjóða upp á jafn umdeilt efni og Pornhub.

Haustið 2013 var kvik­myndin Don Jon reyndar auglýst á síðunni, en hún fjallar um mann sem er háður netklámi.

Skiltið tekið niður


Í októ­ber 2014 lét Pornhub síðan setja upp risa­vaxið aug­lýs­inga­skilti á Times Square í New York. Skiltið sýndi mynd af tveimur höndum að mynda hjarta utan um vöru­merki Pornhub með yfir­fyr­ir­sögn­inni „All you need is hand“, sem útleggst á íslensku sem „allt sem þú þarft er hönd“.

Auglýsinga­skiltið var afrakstur samkeppni sem Pornhub stóð fyrir í febrúar 2014 og miðaði að því að búa til auglýsingar fyrir fyrir­tækið sem væri ekki klám­fengnar en næðu samt að fanga kjarna­starfsemi þess. Sigurvegari keppninnar, tyrkneski auglýsinga­maðurinn Nuri Galver var valinn úr hópi yfir þrjú þúsund þátt­takenda. Yfir­lýstur tilgangur keppninnar var innreið Pornhub á almennan auglýsinga­markað og að gera vöru­merkið sitt þekkt utan þess hóps sem þegar sækir í þjónustu Pornhub.

Til að fylgja skiltinu stóra, sem 16,5×14,6 metrar að stærð, var ráðist í aðra hugmynd sem kom frá Galver. Hún snérist um að láta fólk af mismun­andi þjóðernum, með mismun­andi hendur, syngja bítla­lagið „All You Need Is Love“ með nýju viðlagi sem útleggst „All You Need Is Hand“. Hægt er að horfa á myndband af gjörn­ingnum hér að neðan.

http://youtu.be/XeHwQ-Jln60

Skiltið fékk ekki að standa og var tekið niður tveimur dögum eftir að það var sett upp. DoubleTree Hilton hótelið, sem auglýsinga­skiltið hékk framan á, setti sig á móti því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár