Segir „kerfisbreytingalausa“ ríkisstjórn ætla að fresta „nauðsynlegri eflingu velferðar og menntakerfis“

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, segir ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar boða íhalds­sama stefnu í skatta- og ríkis­fjármálum.

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, segir nýja ríkis­stjórn boða íhalds­sama stefnu í skatta- og ríkis­fjármálum. Þrátt fyrir allt tal um kerfis­breytingar í sjávar­útvegs-, land­búnaðar- og Evrópu­málum hafi verið mynduð ríkis­stjórn sem ætli fyrst og fremst að vinna eftir stefnu Sjálfstæðis­flokksins en setja hvers kyns kerfis­breytingar á ís.

Þetta kom fram í ræðu Katrínar í eldhúsdags­umræðum á Alþingi í gærkvöldi. 

„Það segir sína sögu að hæstvirtur forsætis­ráðherra ákvað að vitna í Tómas Guðmundsson og kvæði hans frá fjórða áratug síðustu aldar því að stjórnar­sáttmálinn er um margt í besta 1920-stíl, kannski táknrænt að hann er undir­ritaður af þremur karl­mönnum þrátt fyrir batnandi kynja­hlutföll á þingi,“ sagði Katrín og bætti við: 

„Kynning fjármála­ráðherra, sem við heyrðum af í fjöl­miðlum, á ríkis­fjármála­stefnu nýrrar stjórnar er sömuleiðis íhaldssöm. Sú ríkis­stjórn sem nú hefur tekið við boðar nefnilega íhalds­sama stefnu. Það má kalla hana jafnvægi, það má líka kalla hana kyrrstöðu því að ætlunin er að fresta nauðsynlegri eflingu velferðar og mennta­kerfis, það á ekki að byggja meira upp en rúmast innan hagsveiflunnar. Það má ekki afla aukatekna til að byggja upp aðþrengt velferðar­kerfi, heilbrigðis­kerfi og mennta­kerfi. Undir þetta er kvittað í ræðu hæstvirts forsætis­ráðherra þegar hann segir: Fjár­magnið er af of skornum skammti.““

„Staðreyndir fremur en hughrif“

Í ræðu sinni hafði Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra sagt að niður­skurður í heilbrigðis­kerfinu hefði kallað fram þau „hughrif“ hjá stórum hluta þjóðarinnar að samfélags­sáttmálinn um tryggt aðgengi að heilbrigðis­þjónustu væri brostinn. Katrín Jakobs­dóttir hæddist að orða­laginu og sagði: 

„Hughrifin birtast líklega í 86.000 undir­skriftum frá Íslendingum sem kröfðu stjórn­málamenn um aukin framlög til heilbrigðis­mála. Hughrifin birtast í því að greiðslu­þátttaka sjúklinga hér á landi er umtals­vert meiri en annars staðar á Norður­löndum á sama tíma og skortir fjármuni til að tryggja mönnun og viðunandi aðstæður. Og ætli það skapi ekki líka ákveðin hughrif að í tíð núverandi hæstvirts forsætis­ráðherra í fjármála­ráðuneytinu lækkaði skatt­byrðin á tekju­hæstu hópana og þyngdist á aðra hópa. Sumir myndu reyndar kalla þetta stað­reyndir fremur en hughrif.“ 

Varar við auknum álögum á almenning  

Katrín hvatti til kerfis­breytinga á sviði skatta- og velferðar­mála og sagði brýnt að leiðrétta stöðu tekju­lægstu hópanna í ljósi kannana sem sýni að nokkur þúsund börn líða efnis­legan skort á Íslandi.

„Til að tryggja jöfnuð og félags­legan stöðug­leika þarf að ráðast í kerfis­breytingar, skatt­leggja fjár­magnið og létta skatt­byrðinni af tekju­lægstu hópunum. Þar væri hægt að byrja á sjúklinga­sköttunum sem eru hærri hér en annars staðar og um leið væri hægt að afla aukinna tekna af þeim sem hafa mest milli handa því að ef aðhald er sett á útgjöld í velferðar­málum í stað þess að hækka skatta á auðmenn er í raun verið að hækka álögur á venjulegt fólk fremur en þá ríkustu.“

Þá vék hún almennt að umræðunni um kerfis­breytingar:

„Kerfis­breytingar voru orð síðustu kosninga­baráttu. Heilir flokkar voru stofnaðir um slíkar breytingar í sjávar­útvegs­málum og land­búnaðar­málum sem og Evrópu­sambands­aðild. Þessir sömu flokkar eru mættir í ríkis­stjórn sem fyrst og fremst mótast af stefnu Sjálfstæðis­flokksins — allt á réttri leið, sagði hann í síðustu kosninga­baráttu og nánast endur­prentar stefnu­skrána í stjórnar­sáttmálanum. Kerfis­breytingar bíða betri tíma. Ekki er hægt að gera allt í einu enda er framtíðin löng, segir nýr fjármála­ráðherra. Manni kemur annar ráðherra í hug úr sjónvarps­þáttunum „Já, ráðherra“ sem var einmitt ritstjóri blaðsins „Reform“ sem mætti þýða sem „Kerfis­breytingar“ áður en hann varð ráðherra stjórnsýslu­málefna. Frasinn um að Róm hafi ekki verið byggð á einum degi varð honum einmitt mjög tamur eftir að hann tók við embætti og kynntist sínum ágætu embættis­mönnum.“

Katrín benti á að eftir­kosningar vildu forystu­menn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar skyndi­lega að þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB yrði frestað.

„Skyndi­lega er Róm ekki byggð á einum degi og menn fara að vitna í Tómas Guðmundsson í leit að innblæstri. Tómas Guðmundsson orti raunar fleira en Hótel jörð, t.d. þetta:„Og satt er það að stundum hef ég þurft / á öllu mínu ístöðu­leysi að halda.“ Einhvern veginn komu mér þessi orð í hug þegar nýr stjórnar­sáttmáli birtist eftir margra mánaða tal um kerfis­breytingar, nokkurn veginn kerfis­breytinga­laus.“

Hér má lesa stefnu­ræðu Bjarna Benedikts­sonar í heild. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár