Landeigendur á Geysi segjast neyddir til að selja ríkinu

Land­eigendur Geysis segjast hafa verið neyddir til sölu á svæðinu, en tilkynnt var um það í gær að ríkið hefði keypt tæplega tuttugu hektara land þeirra. Þetta segir Hjör­leifur B. Kvar­an, lög­maður Land­eig­enda­fé­lags Geysis ehf., í samtali við Frétta­blaðið í dag.

Hjör­leifur og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­rit­uðu samn­ing um kaup rík­is­ins á öllum eign­ar­hluta land­eig­enda­fé­lags­ins á Geys­is­svæð­inu í gær. Kaup­verðið hefur ekki verið ákveðið en sam­kvæmt samn­ingnum verður það lagt í mat þriggja dóm­kvaddra mats­manna.

Hjörleifur segir að salan hafi verið ill nauðsyn. „Okkur hafði verið tilkynnt að ef við gengjum ekki að samkomu­laginu, þá yrði landið tekið eignar­námi. Það var mat land­eigenda að með þessu móti hefðu þeir betri aðkomu til að tryggja rétt sinn varðandi verðmæti landsins.“

Svæðið innan girð­ingar á Geysi er um það bil. 19,9 hekt­arar að stærð. Innan þess svæðis á ríkið sem sér­eign um 2,3 hekt­ara lands fyrir miðju svæð­is­ins en þar eru hver­irnir Geys­ir, Strokk­ur, Blesi og Óþverris­hola. Það sem eftir stend­urm um 17,6 ha., er í sam­eign rík­is­ins og Land­eig­enda­fé­lags­ins. Ríkið hefur um margra ára skeið átt í við­ræðum við sam­eig­endur sína innan girð­ingar á Geys­is­svæð­inu um hugs­an­leg kaup rík­is­ins á eign­ar­hluta þeirra og deilur hafa staðið yfir um rétt land­eig­end­anna til að rukka inn á svæð­ið. Við und­ir­ritun samn­ings­ins tók ríkið form­lega við umráðum alls lands sam­eig­enda innan girð­ingar við Geysi. Þar með er ríkið orðið eig­andi alls þess svæð­is, en ríkið á þegar stóran hlut aðliggj­andi lands­svæða utan girð­ing­ar.

Garðar Eiríksson, talsmaður eigenda­félagsins, segir rúmlega tveggja ára þrauta­göngu að baki „þar sem skilnings­leysi og vanhæfni stofnana­ræðisins skein í gegn. Úr því þetta ekki ekki upp var alveg eins gott að íslenska þjóðin eignaðist landið og legði sitt skattfé í það.“ Hann segir skiptar skoðanir hjá land­eigendum um söluna, enda sé þarna verið að þjóðnýta einstaklings­eign til að „þjónusta græðgi ferða­þjónustunnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár