Efni frá Sagafilm verður boðið víðar í kjölfar erlendrar fjárfestingar

Dóttur­félag stærsta sjálf­stæða kvikmynda­fyrirtækis Evrópu hefur keypt 25 prósent hlut í Sagafilm. Kaup­verðið er trúnaðarmál, en forstjóri Sagafilm segir kaupin staðfesta að áætlanir fyrir­tækisins undan­farin misseri hafi gengið.

Fjórðungshlutur í Sagafilm er kominn í eigu dótturfélags stærsta sjálfstæða kvikmyndafyrirtækis Evrópu.
Fjórð­ungs­hlutur í Sagafilm er kom­inn í eigu dótt­ur­fé­lags stærsta sjálf­stæða kvik­mynda­fyr­ir­tækis Evrópu. Mynd: Sagafilm

Beta Nordic Studios, sem er dóttur­fyrirtæki Beta Film, stærsta sjálf­stæða kvikmynda­fyrirtækis Evrópu, hefur keypt fjórðungs­hlut í íslenska fyrir­tækinu Sagafilm. Verður Sagafilm þar með hluti af Beta Nordic Studios, rétt eins og sænska framleiðslu­fyrirtækið Dramacorp og finnska fyrir­tækið Fisher King. Kaup­verðið er trúnaðarmál.

„Þetta er bara frábært, það er í fyrsta lagi einhver sem hefur áhuga á þessu og í öðru lagi er tilbúinn að borga fyrir það og koma með beina fjár­festingu inn,“ segir Hilmar Sigurðsson forstjóri Sagafilm í samtali við Kjarnann. Hann segir að Sagafilm hafi verið í örum vexti undan­farin ár og að fjár­festing Beta-samsteypunnar sé stað­festing á því að áætlanir fyrir­tækisins hafi verið að virka.

Beta Film er sem áður segir stærsta fyrir­tækið í kvikmynda- og sjónvarps­framleiðslu í Evrópu og hefur verið starfandi frá 1953. „Þetta er alveg risa­fyrirtæki, með skrif­stofur út um alla Evrópu og Ameríku og Suður-Ameríku. Beta Nordic Studios er svo norræni vinkillinn þeirra,“ segir Hilmar.

„Þetta styrkir okkur í dreifingu, það er alveg ljóst, en okkur finnst líka mikilvægt að við munum halda áfram að vinna með sömu samstarfs­aðilum í verkefnum og við höfum verið að gera. En þetta styrkir okkur í dreifingu og það efni sem er til hérna mun koma til með að verða boðið víðar en núna er. Það er hluti af þessu markmiði og að halda áfram að framleiða hágæða sjónvarps- og kvik­myndaefni,“ segir Hilmar.

Fyrst var greint frá kaupunum á vefnum Variety í dag, en þar var haft eftir Justus Riesenkampff, sem stýrir Norður- og Niður­landa­deildinni hjá Beta Film að það sé mikilvægt að hafa snertifleti við Skandinavíu fyrir þýskt fyrirtæki. „Við höfum komist að því að Norður­löndin fram­leiðar sumar af vinsælustu drama­seríum heimsins á öðrum tungu­málum en ensku, rétt á eftir spænskum þátta­röðum,“ segir Riesenkampff. Hann mun taka sæti í stjórn Sagafilm og það mun framkvæmda­stjóri Beta Nordic Studios, Martin Håkansson, einnig gera.

Ekki er gert ráð fyrir að kaupin hafi í för með sér neinar breytingar á starfsemi Sagafilm, sem var stofnað árið 1978. Eigendur Sagafilm eru KPR ehf. og HilGun ehf. og nú Beta Nordic Studios. Félagið velti 2,3 milljörðum á árinu 2019 og skilaði hagnaði.

Sagafilm fram­leiðir hvers kyns kvik­myndir og sjónvarps­efni, auk þess að sinna þjónustu við erlend verkefni og auglýsingar. Samkvæmt frétta­tilkynningu frá Sagafilm er félagið með fjögur stór verkefni á mismun­andi stöðum í fram­leiðslu og þar af tvö í tökum um þessar mundir, en næsta frum­sýning hjá Sagafilm er sjónvarps­þátta­röðin Ráðherrann með Ólafi Darra Ólafssyni í aðal­hlutverki. Sýningar hefjast á RÚV þann 20. september og í kjölfarið víða um heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár