Trump: Það „getur verið“ að mannfólkið eigi sök á hlýnun jarðar

Nýkjörinn forseti Banda­ríkjanna, Donald J. Trump, segir í viðtali við New York Times að það „geti verið“ að mann­fólkið á jörðinni eigi sök á hlýnun jarðar og hann segist ætla að nálgast það með „opnun huga“ hvort Banda­ríkin ætli sér að draga sig út úr Parísar­samkomu­laginu þar sem markmiðið er að draga verulega úr mengun og vinna gegn hlýnun jarðar. Samtals hafa 195 þjóðir skuld­bundið sig til að vinna eftir samkomu­laginu og hefur full­gilding þess farið fyrir þing þjóðanna til samþykktar, meðal annars á Íslandi.

Þetta er í fyrsta skipti sem Trump opnar á mögu­leikann á því að vísindi sem sýna að hlýnun jarðar sé af manna­völdum geti verið rétt. Í kosninga­baráttunni marg­ítrekaði hann að Banda­ríkin myndu fara úr Parísar­samkomu­laginu og að hlýnun jarðar væri bull og vitleysa.

Svo virðist sem þessi sjónarmið Trumps hafi ekki rist djúpt því nú boðar hann að skoða málin með opnum huga.

Það sama gildir um pyntingar við yfirheyrslur en í kosninga­baráttunni talaði hann fyrir því að það ætti að vera „sjálfsagt mál“ að nota pyntingar­aðferðir til að ná í upplýsingar frá hryðju­verkamönnum, þar á meðal köfnunar­pyntingar með vatni (Waterboarding). Hann segist hafa skipt um skoðun eftir að hafa rætt málin við hers­höfðingja og sérfræðinga.

Trump vinnur nú að því að setja saman starfslið sitt og fer vinnan fram í Trump turninum skammtfrá fjölmiðla­torginu í New York borg, sem er við 59. stræti skammt frá horni Central Park vestan megin á Manhattan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár