Í þá tíð… Bandaríkjaþing herðir á innflytjendalögum

Banda­ríkjaþing ógildir neitun forseta og stað­festir lög sem eiga að takmarka fjölda innflytjenda svo um munar.

Innflytjendur fagna þegar Frelsisstyttan sést við innsiglinguna til New York.
Inn­flytj­endur fagna þegar Frels­is­styttan sést við inn­sigl­ing­una til New York.

Á þessum degi fyrir réttum 100 árum, hinn 5. febrúar 1917, samþykkti bandaríska þingið löggjöf um innflytjendur, The Immigration Act. Lögunum var ætlað var að stemma stigum við straumi innflytjenda til landsins, meðal annars með því að hækka umsýslu­gjald á hvern innflytjanda og bæta við ákvæði um að innflytjendur þyrftu að sýna fram á læsi.

Woodrow Wilson forseti hafði nokkrum vikum áður beitt neitunar­valdi sínu til að ógilda laga­setninguna, sem honum fannst mismuna gegn ómenntuðum innflytjendum, en með auknum meirihluta, fleiri en tveimur af hverjum þremur þing­mönnum, var hægt að ganga framhjá ákvörðun forseta og staðfesta lögin.

Læsis­skilyrði þetta hafði verið eitt helsta baráttumál þeirra sem börðust fyrir strangari innflytjenda­löggjöf, en forsetar höfðu í þrígang fyrir þetta beitt neitunar­valdi gegn slíku ákvæði, fyrst Grover Cleveland árið 1897, svo Taft árið 1912 og Wilson sjálfur árið 1915.

Hræðsla við fjölgun innflytjenda

Banda­ríkin höfðu byggst afar hratt upp á árunum eftir að borgara­styrjöldinni lauk, ekki síst vegna aukins straums innflytjenda sem komu til landsins til að freista gæfunnar eða flýja harðræði í fæðingar­landi sínu. Eftir aldamótin 1900 og fram að upphafi fyrri heims­styrjaldar komu um það bil milljón manns árlega að ströndum Banda­ríkjanna í von um betra líf.

Á þessum tíma, og raunar ansi oft, bæði fyrr og síðar, var hræðsla við hugsanlegan yfirgang útlendinga afar sterk í samfélaginu. Það voru ekki síst kínverskir farand­verkamenn sem urðu fyrir barðinu á því, þar sem sett voru margs konar lög, bæði á ríkis­stigum og á landsvísu, til að koma í veg fyrir að kínverjar settust að í Banda­ríkjunum til frambúðar. Meðal annars var öllum kínverskum konum bannað að koma til landsins til að minnka líkurnar á að kínverskir karlar ílengdust.

Asíubúum bönnuð innganga

Í lögunum sem hér um ræðir var hins vegar gengið lengra en nokkru sinni áður þar sem hluti Asíu var skilgreindur þannig að innflytjendur þaðan voru hreinlega bannaðir. Það svæði náði allt frá Tyrklandi og Sádi Arabíu í vestri og austur til Kyrra­hafseyja. Undan­tekningar þar á voru lönd þar sem Banda­ríkin áttu hagsmuna að gæta, eins og t.d. Japan og Filippseyjar. Þetta svæði, „the Asiatic Barred Zone“ eins og það kallaðist, var við lýði í bandarískri löggjöf fram til ársins 1952.

Fleiri hópar sem voru útilokaðir með innflytjenda­lögunum sem „óæskilegir“ voru meðal annars þroska­skertir, geðsjúkir, fatlaðir, floga­veikir, berkla­veikir, glæpamenn, betlarar, vændis­konur, anarkistar, fjölkvænis­menn, róttæklingar og fleiri. Ákvæði um bann við komu samkyn­hneigðra innflytjenda var að finna í bandarískri innflytjenda­löggjöf allt fram til árins 1990.

Innflytjenda­lögin tóku gildi í maí árið 1917 og hafði ekki mikil áhrif á fjölda innflytjenda það ár, en næstu tvö ár á eftir dróst fjöldi innflytjenda saman um meira en helming áður en tók að fjölga á ný árið 1920, en þá var gripið í taumana á ný með harðari innflytjenda­lögum, t.d. 1921, 1924 og 1929.

Einangrunarstefna tekur við

Þessi aukna harka í innflytjenda­málum rímar ágætlega við ríkjandi stefnu Banda­ríkjanna í alþjóða­málum á þessum árum Á árnum eftir fyrri heims­styrjöld var vaxandi vilji meðal almennings og stjórn­málamanna í Banda­ríkjunum til þess að standa utan við alþjóðamál að sem mestu leyti og blanda sér ekki í mál nema þau sem tengdust bandarískum hagsmunum með beinum hætti.

Meðal annars hafnaði Banda­ríkjaþing aðild að Þjóða­bandalaginu árið 1920. Banda­lagið var hugar­fóstur Wilsons forseta, sem sá það sem vettvang fyrir þjóðir heimsins til að leysa deilur og álitamál með friðsömum hætti, en það náði aldrei að sanna sig og heimurinn horfði upp á uppgang fasisma og vald­stjórnar allt frá Þýska­landi til Japans án þess að geta rönd við reist. Afleiðingarnar af því eru öllum eru kunnar.

Banda­ríkin tóku ekki af skarið fyrr en með þátttöku sinni í Seinni heims­styrjöld, en síðan þá hafa Banda­ríkin verið forystu­ríki Vestur­veldanna og í raun eina risaveldi heimsins.

Ekki þarf að píra augun sérstak­lega mikið til að sjá ákveðna samsvörun í áherslum bandarískra stjórn­valda þá og nú í innflytjenda­málum og hlutverki Banda­ríkjanna á alþjóða­sviðinu, en vonandi verður eftir­leikurinn ekki eins afdrifa­ríkur í þetta skiptið.

Aðrir markverðir atburðir sem gerðust 5. febrúar

1885

Leópóld II konungur Belgíu stofnar Afríkuríkið Kongó, sem hans persónulegu eign.

1887

Óperan Óþelló eftir Giuseppe Verdi er frumflutt í La Scala-óperuhúsinu.

1911

Sænski stórsöngvarinn Jussi Björling fæðist í bænum Borlänge.

1937

Frank­lin D. Roos­evelt Banda­ríkja­for­seti leggur til að hæsta­rétta­dóm­urum verði fjölgað svo að hann geti skipað dóm­ara að eigin vali sem muni tryggja málum hans og áherslum brautargengi.

1939

Fasistaforinginn Fransisco Franco tekur við völdum á Spáni. Hann ríkir allt til dauðadags árið 1975.

1941

Adolf Hitler skammar Benito Mussolini fyrir aumingjaskap ítalska hersins, sem var þá lagður á flótta undan Bretum í Líbýu. Hitler sendi herlið undir forystu Erwin Rommel Ítölum til stuðnings.

1971

Alan Shepard og Edgar Mitchell , geimfarar á Appollo 14 lenda á tunglinu. Shepard notar tækifærið og slær nokkra golfbolta.

1983

Nasistaforinginn Klaus Barbie fluttur frá Bólivíu til Frakklands þar sem hann var dæmdur fyrir þáttöku sína í stríðsglæpum á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.

1986

Popprisinn Prince gefur út smellinn „Kiss“.

1989

Síðustu sovésku hermennirnir yfirgefa Kabúl, höfuðborg Afganistans eftir misheppnaða herför sem stóð í áratug og kostaði þúsundir mannslífa.

1994

Fleiri en 60 láta lífið og hundruð manna særast í sprengjuárás serbneskra aðskilnaðarsinna á markaðstorg í Sarajevó i Bosníu Hersegóvínu.

2008

Bandaríska leyniþjónustan, CIA, gengst við því að hafa notað vatnspyntingar til að ná upplýsingum upp úr grunuðum hryðjuverkamönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár